Íslenskir dómstólar ekki á tánum 5. júlí 2004 00:01
Fjórum árum eftir að þrjú færeysk börn báru vitni gegn móður sinni og föður fyrir dómstólum fyrir meinta kynferðismisnotkun hafa þau dregið framburð sinn til baka og segjast hafa logið. Vitnisburður barnanna á sínum tíma kostaði hjónin fangelsisdóm og hefur áfrýjunardómstóll í Færeyjum ákveðið að taka málið upp að nýju en börnin vilja meina að stjúpmóðir þeirra hafi hvatt þau til að fremja meinsæri með þessum hætti. Stjúpmóðirin býr ásamt fjölskyldu sinni í Garði á Reykjanesi. "Það er skýrt í íslenskum lögum að það er refsivert að gefa rangan vitnisburð fyrir dómi," segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður, og vísar þar til 15. kafla almennra hegningarlaga. Þar segir í 148. grein að hver sá sem með rangri kæru, röngum framburði, rangfærslu eða undanskoti gagna, öflun falsgagna eða á annan hátt kemur því til leiðar að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað, skal sæta allt að tíu ára fangelsi. Enn fremur segir að hafi brot verið ætlað að hafa í för með sér velferðarmissi fyrir nokkurn mann skal refsað með fangelsi ekki skemur en tveimur árum og allt að 16 árum. Jón Steinar segir hins vegar að margir sem starfi við rekstur dómstóla hafi upplifað að vitni hafi mætt fyrir dóm og gefið vitnisburð sem grunur leikur á að sé ekki eftir bestu vitund. "Rétturinn hefur ekki verið nógu virkur við að draga menn til ábyrgðar við slík brot hér á landi. Erlendis sjáum við það oft að slík brot eru litin afar alvarlegum augum en hér á landi má segja að íslenska réttarkerfið hefur ekki verið nóg á tánum gagnvart þessum brotum." Sé heimasíða Hæstaréttar skoðuð kemur fram eitt dæmi um refsingu til handa einstaklingi sem fremur meinsæri. Það var árið 1998 þegar Ari Þorsteinsson var ákærður fyrir að hafa borið rangt fyrir dómi í máli ákæruvaldsins gegn Franklin Kristni Steiner. Var hann dæmdur til fangelsisvistar í þrjá mánuði.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira