Seinagangur öryggisgæslu í Aþenu 3. júlí 2004 00:01
Öryggissérfræðingar sem varað hafa við hugsanlegum hryðjuverkum á Ólympíuleikunum í Aþenu í ágúst segja tímann til fullnægjandi uppsetningar og undirbúnings öryggisgæslu í borginni senn vera á þrotum. Framkvæmdum á íþróttamannvirkjum og öryggisútbúnaði í Aþenu hefur seinkað nokkuð og vara sérfræðingar í öryggismálum nú við hugsanlegri hættu vegna seinagangsins. Ekki sé nóg að öryggiskerfin séu fullbúin þegar leikarnir hefjist heldur sé nauðsynlegt að þau verði prófuð í þaula áður. Sérfræðingarnir vara við því að of lítill tími gefist til að þjálfa starfsfólk í notkun öryggisútbúnaðar og benda á að allur öryggisútbúnaður vegna Ólympíuleikanna í Sydney árið 2000 og Barcelona árið 1992 hafi verið tilbúinn heilu ári áður en leikarnir fóru fram. Þar með hafi gefist tækifæri til að reyna útbúnaðinn og þjálfa starfsfólk við raunverulegar aðstæður. Hættan nú sé því ekki falin í því að öryggisútbúnaður verði ónógur heldur í því að enginn tími gefist til að láta reyna á hann. Öryggisgæsla vegna leikanna er gríðarleg þrátt fyrir að engin gögn bendi sérstaklega til þess að hryðjuverkasamtök ætli sér að láta til skarar skríða á leikunum. Íþróttamenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Ísrael eru taldir í mestri hættu og hafa yfirvöld landanna sent fjölda öryggisvarða til Aþenu vegna þessa. Kostnaður vegna öryggisgæslunnar er talinn verða nálægt 100 milljörðum íslenskra króna sem er fjórum sinnum hærri upphæð en eytt var í öryggisgæslu vegna leikanna í Sidney fyrir fjórum árum.
Erlent Íþróttir Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Íslenski boltinn Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Curacao - Fílabeinsströndin | Kemur smáþjóðin aftur á óvart? Ekvador - Þýskaland | Veik von Ekvadora Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sjá meira