Ísraelinn var varaður við 28. júní 2004 00:01
Björgunarsveitarmenn fundu lík 25 ára Ísraela um einn kílómetra frá Hrafntinnuskeri um klukkan hálf eitt í nótt. Maðurinn, sem ætlaði sér að ganga frá Landmannalaugum í Þórsmörk, var varaður við áður en hann lagði af stað þar sem útbúnaður hans þótti ekki nægilega góður miðað við aðstæður. Rannsókn málsins stendur enn yfir og dánarorsök hefur ekki verið staðfest. Samkvæmt heimildum fréttastofu er dánarorsökin að öllum líkindum ofkæling. Maðurinn lagði upp frá Landmannalaugum um klukkan eitt í gær og ætlaði sér líklega að ganga til Þórsmerkur. Aðstæður til göngu voru slæmar, kalt var í veðri og mikil rigning. Að sögn skálavarðar í Landmannalaugum var maðurinn íklæddur þunnum buxum og afar vondum skóm, auk þess sem hann var einn á ferð. Hann var því varaður við og honum ráðlagt að leggja ekki í leiðangurinn nema klæðast betri skófatnaði og regnfötum. Ferðalangurinn hlýddi hins vegar ekki varnarorðum og lagði af stað í gönguna. Á sjötta tímanum barst neyðarlínu símtal frá manninum þar sem hann lýsti slæmu ástandi sínu og lélegum búnaði. Erfiðlega gekk að skilja manninn þar sem sambandið var slæmt og hann kalinn og átti því erfitt með að tjá sig. Skömmu síðar slitnaði sambandið við manninn. Björgunarleiðangur var þegar sendur út og alls tóku á milli 80 og 90 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni. Klukkan hálf eitt eftir miðnætti fannst maðurinn og læknir úrskurðaði hann þegar látinn. Maðurinn var 25 ára gamall og bjó í Lundúnum þar sem hann stundaði nám. Systir mannsins, sem einnig býr í Lundúnum, fékk símtal frá honum skömmu áður en neyðarlínu barst símtalið frá manninum. Hún kom hingað til lands í dag til þess að bera kennsl á lík mannsins. Líkið verður flutt til Ísrael að krufningu lokinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira