Innlent

Fyrsta sjóferðin í 16 ár

Vestfirðingar minntust sögu sinnar um helgina. Gamlir Sléttuhreppingar og afkomendur þeirra gerðu gott betur en að fylla hina hundrað ára gömlu Staðarkirkju í Aðalvík á Ströndum og elsti varðveitti vélbátur landsins, Gestur frá Vigur sem er aldargamall, fór í sína fyrstu sjóferð í sextán ár. Hundrað ár eru um þessar mundir frá því að vélvæðing íslenska fiskiflotans hófst á Ísafirði en hún markaði í raun upphafið að nútímavæðingu á Íslandi. Í tilefni af tímamótunum var ráðist í að gera upp vélbátinn Gest frá Vigur sem þjónaði eigendum sínum vel í áttatíu ár. Þeir sem veg og vanda höfðu af endurgerðinni og allra áhugasömustu stuðningsmennirnir fóru í vígsluferðina á laugardag þegar haldið var heim í Vigur. Jón Sigurpálsson, safnvörður Byggðasafns Vestfjarða, segir þetta elsta varveitta sérsmíðaða vélbátinn á Íslandi. Hann hafi verið smíðaður fyrir séra Sigurðs Stefánsson í Vigur og hafi þjónað þar við fiskveiðar og aðflutning. Fimmtíu ár eru frá því að Sléttuhreppur lagðist í eyði en þar er lífleg byggð á sumrin. Mikill metnaður hefur verið lagður í að halda við kirkjunni á Sæbóli í Aðalvík og héldu átthagafélög Sléttuhrepps upp á aldar afmæli hennar með messu um helgina. Um klukkustundarganga er frá byggð að kirkju og þykir nútíma Íslendingum það nokkuð langt. Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Ísafirði, segir að þetta var kirkja sem þjónaði stóru svæði og hafi menn komið ofan af heiði. Þá hafi kirkjunni líklega verið valinn staður þar sem gott var fyrir prestinn og fjölskyldu hans að búa. Að venju þegar hátíðahöld eru í Aðalvíkinni var dansað fram á nótt í skólahúsinu á Sæbóli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×