Innlent

Hríseyingar samþykktu sameiningu

Hríseyingar samþykktu með afgerandi meirihluta sameiningu við Akureyrarbæ. Atkvæði um sameininguna voru greidd samhliða forsetakosningum. Á kjörskrá í Hrísey voru 133 og greiddu 124 atkvæði eða 93,5%. Já sögðu 116 eða 87,2% en nei sögðu 8. Niðurstöðu úr sameiningarkosningu á Akureyri vantar en ólíklegt má telja að sameiningu verði hafnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×