Innlent

Vopnuð lögregla á Reykjavíkurvelli

Lögregluþjónar, vopnaðir skammbyssum, eru við öryggisgæslu á Reykjavíkurflugvelli og hafa afskipti af öllum þeim sem fara þar um í millilandaflugi. Það eru mörg ár síðan vopnaðir lögregluþjónar hófu störf í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í Keflavík. Litla innanlandsflugstöðin, í Reykjavík, hefur hinsvegar verið laus við slíkt. Með hryðjuverkaógninni hefur orðið á þessu breyting, og nú eru vopnaðir lögregluþjónar við gæslu á Reykjavíkurflugvelli, í tengslum við allt millilandaflug þar um, til dæmis til Grænlands og Færeyja. Lögregluþjónarnir hafa afskipti af öllum farþegum sem fara um borð í vélarnar, og bera saman farseðla þeirra og skilríki. Nokkuð er síðan þetta vopnaða eftirlit hófst. Yfirleitt hafa lögregluþjónanir hinsvegar borið byssurnar innan klæða, undir jakka eða peysu. En nú er komið sumar og hiti það mikill að yfirhafnir geta verið óþægilegar, og því eru byssurnar orðnar sýnilegar. Vaktstjóri í flugstöðinni, í Reykjavík, sagði í samtali við fréttastofuna, að þegar millilandaflug væri annarsvegar, þyrftu þeir að hlíta nákvæmlega sömu reglum og Flugstöðin í Keflavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×