Innlent

Enski boltinn til Skjás eins

Útsendingar á enska boltanum hefjast 14. ágúst á Skjá einum. Gengið hefur verið frá öllum samningum um útsendingarétt, að sögn Magnúsar Ragnarssonar, sjónvarpsstjóra, og verða þeir formlega undirritaðir í Englandi á þriðjudag. Sjónvarpsstöðin Skjár einn stendur ein að þeim samningi sem gerður hefur verið við ensku úrvalsdeildina um útsendingar á leikjum úr deildinni, en þær verða ekki boðnar út að nýju, fyrr en að þremur árum liðnum. Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, segir að langri samningalotu sé loks lokið með bindandi samningi og búið sé að ganga frá og fá samþykktar allar áætlanir sem snúi að framkvæmd útsendinganna, en samningurinn verður undirritaður formlega í Englandi á þriðjudag. Magnús vildi ekki upplýsa um það hvað sjónvarpsstöðin þurfti að greiða fyrir samninginn og sagði það vera viðskiptaleyndarmál, en líklegt er að kostnaðurinn sé ekki undir 200 milljónum króna. Þetta er í fyrsta skipti sem enska úrvalsdeildin semur beint við allar sjónvarpsstöðvar um útsendingarréttinn, og segir Magnús, að af þeim sökum hafi samningaferlið verið flókið og tafist gríðarlega, en hingað til hafa ákveðnir aðilar séð um alla samningagerð fyrir úrvalsdeildina og dreift efninu. Leikir í ensku úrvalsdeildinni hefjast 14. ágúst næstkomandi og þá hefjast einnig útsendingar frá boltanum á Skjá einum. Magnús segir að sýnt verði beint frá sex leikjum í hverri viku, og verið sé að vega og meta hugsanlegt samstarf við aðra fjölmiðla í tengslum við kynningarmál, og meðal annars það hvar mörkin verði sýnd. Ákveðið sé að hafa íslenska dagskrárgerð í kringum útsendingarnar, en Skjár einn velti því fyrir sér að láta ensku þulina lýsa minniháttar leikjum og viðburðum í tengslum við boltann. Hann segir þessi atriði ófrágengin enn sem komið er, en allt verði komið á hreint fyrir blaðamannafund sem boðaður verði í lok næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×