Hallgrímur er gott rauðvín 17. júní 2004 00:01
Eftir tólf ár verður hann vel þroskaður, þungur, höfugur með ríkum ilmi. Stefán Jón Hafstein líkti með þessum orðum nýjum borgarlistarmanni við gott rauðvín í dag. Hallgrímur Helgason hlaut titilinn í ár, ekki síst fyrir að hafa gert víðreist og meðal annars komið, einn fárra listamanna, á teppið. Stefán Jón Hafstein sagði Hallgrím ekki síður verðan þessa heiðurs sem notandi hefðar sem allir listamenn hafi rétt á og það væri rétturinn til að segja valdhöfunum til syndanna. Hallgrímur sagði: "Flestar heimsins borgir eru löngu fullskipulagðar og lifðu sín glæstusu tímabil fyrir öldum síðan en Reykjavík er borg tækifæranna. Hér getur allt gerst því hér hefur ekkert gerst ennþá" Þá sagði hann einnig: "Þessi borg hefur gefið mér hundrað tækifæri og leyft mér að gera allan fjandann, að vera hvað sem er og vera svo eitthvað allt annað daginn eftir. Á leiðinn niður á vinnustofu getur maður bæði komið við í bókabúðinni, galleríinu, leikhúsinu og stjórnarráðinu. Reykjavík er lítil borg en stórhuga og það sem er mest um vert hún er orðin alþjóðleg. Við verðum samt að passa okkur á því að varðveita þennan handhæga og galopna sköpunarsuðupott sem borgin okkar er. Nú er nýbúið að setja lög sem meina sjónvarpsmönnum að gefa út dagblöð. Ég tel mig heppinn að lifa þann tíma þar sem ekki er búið að setja lög sem meina myndlistarmönnum að gefa út bækur." Hallgrímur er hins vegar hlynntari því að auðmenn Íslands láti eitthvað af gróða sínum skila sér aftur til samfélagsins, og segir að menningin hafi ævinlega risið hæst, þar sem peningarnir voru. "Það verður að viðurkennast eins og er að án peninga eru listamenn ekkert. Líklega er það þess vegna sem þeir þola ekki peninga. En ef þið endilega viljið skal ég taka við þessu."
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira