Innlent

Orður og kjólföt við innsetningu

Er umgjörðin um embættistöku forsetans orðin hégómleg eða ber hún vott um valdabaráttu? Þessu veltu sumir fyrir sér á Austurvelli í dag. Athygli vakti að þegar Vigdís Finnbogadóttir var sett inn í embætti forseta árið 1988 sniðgekk Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi þingmaður, kröfur um klæðaburð. Forsetaskrifstofan gerði kröfu um kjólfatnað við hina formlegu embættistöku forseta Íslands. Umgjörðin vakti mikla athygli, ekki síst fyrir þær sakir að ýmsir úr hópi gestanna báru orður utan á sér, en hingað til hefur slíkt ekki verið áberandi við samskonar athafnir hér á landi. Ljóst er að umgjörðin í þessum efnum hefur breyst með hverjum forseta landsins. Þegar Vigdís Finnbogadóttir, sór embættiseið fyrir sitt þriðja kjörtímabil sem forseti Íslands, árið 1988, þá vakti það athygli að Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi þingmaður, sniðgekk kröfur um klæðaburð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×