Innlent

DNA ákvarðar stefnu rannsóknar

Tæknideild lögreglu var enn að störfum í gær í íbúð mannsins sem er í gæsluvarðhaldi vegna hvarfs 33 ára indónesískrar konu í Reykjavík. Niðurstaðna erfðaefnisgreiningar blóðs sem fannst í íbúð og bíl mannsins er ekki að vænta fyrr en í vikulokin eða í byrjun næstu viku. Sigurbjörn Víðir Eggertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að menn hafi ef til vill verið full bjartsýnir á það hversu hratt DNA-prófið gæti gengið fyrir sig, en upphaflega var gert ráð fyrir niðurstöðum í byrjun þessarar viku. Tilgangur greiningarinnar, sem fram fer í Noregi, er að komast að því hvort blóðið sem fannst sé úr horfnu konunni. Sigurbjörn segir að þegar niðurstaða greiningarinnar á blóðinu liggur fyrir kunni frekar að verða upplýst um stefnu rannsóknarinnar á hvarfi konunnar, en hennar hefur verið saknað í tæpan hálfan mánuð. Maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi er fyrrverandi sambýlismaður og barnsfaðir konunnar. Enn er unnið að rannsókn á vettvangi í íbúð mannsins sem er í gæsluvarðhaldi og mátti sjá starfsmenn tæknideildar lögreglu þar að störfum í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×