Sport

Vala og Örn fengið mest

Þrjátíu og þrír íþróttamenn hafa fengið styrki úr Afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á undanförnum fimm árum. Sex einstaklingar hafa fengið meira en fimm milljónir í styrki á þessum fimm árum en þar bera þrír einstaklingar, stangarstökkvarinn Vala Flosadóttir, sundmaðurinn Örn Arnarson og tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon höfuð og herðar yfir aðra íþróttamenn. Vala, Örn og Jón Arnar voru á A-styrk á þessu ári sem er að líða en það gaf þeim 120 þúsund krónur á mánuði í aðra hönd. Auk þeirra voru fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson, stangarstökkskonan Þórey Edda Elísdóttir og júdókappinn Bjarni Skúlason á A-styrk. Vala Flosadóttir var ein besta stangarstökkskona heims árið 1999 og sýndi það enn frekar árið 2000 þegar hún vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Sydney. Síðan þá hefur hvorki gengið né rekið hjá Völu. Hún hefur verið mikið meidd og varla verið skugginn af sínu besta sjálfi. Þrátt fyrir það hefur þegið hæsta styrkinn undanfarin þrjú ár og spurning hvort hún nýtur enn vilvildar Afrekssjóðs þegar kemur að því að útdeila styrk fyrir næsta ár. Sama gildir um Örn Arnarson, sem hefur verið á hæsta styrk undanfarin ár. Örn stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Sydney og stefndi síðan á verðlaunasæti í Aþenu. Heldur hallaði undan fæti hjá honum á þessu ári og þegar kom að stóru stundinni þá var hann ekki í nægilega góðu formi til að synda sín bestu sund. Örn þarf að sanna sig upp á nýtt en mun væntanlega verða áfram á fullum styrk enda sá sundmaður sem á mesta möguleika á því að vera í fremstu röð ef skrokkur og haus eru í lagi. Jón Arnar Magnússon hefur í hyggju að hætta sem afreksmaður en ferill hans hefur verið meiðslum stráðum. Hann hefur á góðum degi verið einn sá besti í heiminum en allt of oft hefur hann ekkki náð að klára þrautir á stórmótum. Það má eiginlega segja að tveir íþróttamenn, Rúnar Alexandersson og Þórey Edda Elísdóttir, sem fengu A-styrk hafi staðið undir væntingum. Þórey Edda tvíbætti Íslands- og Norðurlandametið í stangarstökki og hafnaði í fimmta sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu og Rúnar hafnaði í sjöunda sæti á bogahesti á Ólympíuleikunum. Þau fengu bæði viðbótarstyrk út árið og eru örugg með A-styrk á næsta ári. Júdókappinn Bjarni Skúlason náði ekki að fylgja eftir góðu ári í fyrra þegar hann hafnaði í níunda sæti á HM. Bjarna gekk illa á A-mótum sem gefa stig fyrir Ólympíuleika og komst ekki til Aþenu. Ekki er líklegt að þeir íþróttamenn sem voru á B-styrk í ár, kringlukastarinn Magnús Aron Hallgrímsson, sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveinsson og taekwondokappinn Björn Þorleifsson, eigi möguleika á því að hækka upp í A-flokk frekar en aðrir íþróttamenn sem voru á styrk á síðasta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×