Innlent

Vilja Guðrúnu burt

Meirihluti norska Stórþingsins hefur brugðist harkalega við þeirri ákvörðun norska sjávarútvegsráðuneytisins að láta ekki hífa fjölveiðiskipið Guðrúnu Gísladóttur upp af hafsbotni við Lófóten. Stórþingsmenn krefjast frekari aðgerða, að öðrum kosti verði verðmætum fiskimiðum stefnt í hættu. Norska sjávarútvegsráðuneytið tilkynnti þá ákvörðun fyrir skemmstu að íslenska fjölveiðiskipið Guðrún Gísladóttir skyldi ekki híft upp af hafsbotni við Lófóten í Norður-Noregi, þar sem það hefur legið frá því það strandaði fyrir hartnær tveimur árum. Allri olíu yrði hins vegar dælt úr skipinu. Þessi ákvörðun er ekki í samræmi við fyrri yfirlýsingar stjórnvalda í málinu og hefur það vakið hörð viðbrögð, bæði meðal sjómanna og íbúa á svæðinu, og ekki síst þingmanna á norska Stórþinginu. Málið hefur verið til umfjöllunar á Stórþinginu að undanförnu, en mikill meirihluti þingmanna krefst þess að skipið verði híft upp. Búist er við að tillaga þar að lútandi, sem flestir stjórnmálaflokkar styðja, verði samþykkt fyrir vikulokin. Hill-Marta Solberg, varaformaður norska Verkamannaflokksins, segir mikið í húfi því mengunarhætta stafi af Guðrúnu Gísladóttur Hún viti að aðgerðin muni kosta tugi milljóna norskra króna en það sé einnig áhættusamt að láta hugsanlegan mengunarvald liggja á dýrmætum fiskimiðum. Ítrekaðar björgunaraðgerðir hafa ekki tekist sem skyldi, en fjölveiðiskipið er mikið skemmt og af þeim sökum telur norska sjávarútvegsráðuneytið heppilegra að láta það liggja áfram á hafsbotni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×