Innlent

Davíð ítrekar stuðning við innrás

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, ítrekaði í dag, á fundi með George Bush forseta Bandaríkjanna, stuðning sinn við innrásina í Írak. Nýlokið er fundi þeirra George Bush og Davíðs Oddssonar í Hvíta húsinu í Washington. Á fréttamannafundi fyrir stundu kom fram að engin niðurstaða hefði fengist í málið í viðræðum þjóðarleiðtoganna, en Bush tók fram að Davíð hefði sótt mál sitt af krafti og lagt mjög mikla áherslu á að bandarískar hersveitir og orrustuþotur yrðu áfram í Keflavík. Bush sagðist reiðubúinn að hlusta á rök Íslendinga og að Davíð hyggist senda greinargerð eftir að hann snúi til Íslands. Því næst barst umræðan að Írak, en í dag viðurkenndi Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, að engin gjöreyðingarvopn væri að finna í Írak. Bush kvað stríðið engu að síður réttlætanlegt. Davíð ítrekaði stuðning sinn við stríðið. Hægt er að hlusta á ummæli Davíðs á tengli sem fylgir fréttinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×