Innlent

Bannað að vitna í umræður

Í minnisblaði skrifstofustjóra borgarstjórnar Reykjavíkur sem lagt var fram á fundi borgarráðs sl. þriðjudag eru áréttaðar reglur um opinbera umfjöllun um það sem fer á fundum nefnda og ráða borgarinnar. Fram kemur að reglurnar kveði á um að ekki megi annað koma fram opinberlega en það sem skráð hefur verið í fundargerð á lokuðum fundum nefnda og ráða borgarinnar. Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar, vildi ekki tiltaka dæmi um hluti sem aflaga hefðu farið í umfjöllun eða umræðum og sagði einungis að gott væri að árétta reglur stöku sinnum fólki til upplýsingar. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra, telur að ein undirrót þess að minnisblaðið er lagt fram nú, sé umfjöllun um hörð orðaskipti sem urðu milli hans og Alfreðs Þorsteinssonar, á fundi borgarráðs fyrir skömmu. Ekki er þó víst að fjölmiðlaumfjöllun ein og sér hafi verið talin kalla á að áréttaðar væru gildandi reglur, því þar sem fundir borgarstjórnar eru opnir, er borgarfulltrúum í raun óheimilt að vitna í aðrar umræður í nefndum og ráðum en hafa verið bókaðar í fundargerð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×