Innlent

Hallgrímur er gott rauðvín

Eftir tólf ár verður hann vel þroskaður, þungur, höfugur með ríkum ilmi. Stefán Jón Hafstein líkti með þessum orðum nýjum borgarlistarmanni við gott rauðvín í dag. Hallgrímur Helgason hlaut titilinn í ár, ekki síst fyrir að hafa gert víðreist og meðal annars komið, einn fárra listamanna, á teppið. Stefán Jón Hafstein sagði Hallgrím ekki síður verðan þessa heiðurs sem notandi hefðar sem allir listamenn hafi rétt á og það væri rétturinn til að segja valdhöfunum til syndanna. Hallgrímur sagði: "Flestar heimsins borgir eru löngu fullskipulagðar og lifðu sín glæstusu tímabil fyrir öldum síðan en Reykjavík er borg tækifæranna. Hér getur allt gerst því hér hefur ekkert gerst ennþá" Þá sagði hann einnig: "Þessi borg hefur gefið mér hundrað tækifæri og leyft mér að gera allan fjandann, að vera hvað sem er og vera svo eitthvað allt annað daginn eftir. Á leiðinn niður á vinnustofu getur maður bæði komið við í bókabúðinni, galleríinu, leikhúsinu og stjórnarráðinu. Reykjavík er lítil borg en stórhuga og það sem er mest um vert hún er orðin alþjóðleg. Við verðum samt að passa okkur á því að varðveita þennan handhæga og galopna sköpunarsuðupott sem borgin okkar er. Nú er nýbúið að setja lög sem meina sjónvarpsmönnum að gefa út dagblöð. Ég tel mig heppinn að lifa þann tíma þar sem ekki er búið að setja lög sem meina myndlistarmönnum að gefa út bækur." Hallgrímur er hins vegar hlynntari því að auðmenn Íslands láti eitthvað af gróða sínum skila sér aftur til samfélagsins, og segir að menningin hafi ævinlega risið hæst, þar sem peningarnir voru.  "Það verður að viðurkennast eins og er að án peninga eru listamenn ekkert. Líklega er það þess vegna sem þeir þola ekki peninga. En ef þið endilega viljið skal ég taka við þessu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×