Innlent

Yfir 20 látast árlega í umferðinni

228 einstaklingar hafa látist í umferðarslysum hér á landi frá árinu 1994, þar af hafa ellefu látist það sem af er þessu ári. Rannsóknir sýna að flest banaslysin verða að sumarlagi við bestu aðstæður. Hraðakstur er helsta orsök banaslysa og kemur vannotkun bílbelta þar á eftir. Vátryggingafélag Ísland stendur nú, fjórða sumarið í röð, í þjóðarátaki gegn umferðarslysum. Yfirskrift átakstins er "Það vantar einn í hópinn" og er athyglinni beint að fjölskyldum og aðstandendum þeirra sem láta lífið í umferðinni. Helmingur þeirra sem látist hafa síðustu tíu ár í umferðarslysum yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst eru þrjátíu ára og yngri. Alls hafa 73 látist í banaslysum yfir sumarmánuðina síðustu tíu ár. "Ég hef ekkert val heldur verð að lifa með þessu. Það er svo margt sem geymist því þetta er mikið meira en að lenda í hjólastól," segir Ágústa Dröfn Guðmundsdóttir sem slasaðist í mótorhjólaslysi í Vestmannaeyjum árið 1979 þegar hún var aðeins sextán ára. Hún var farþegi á hjóli hjá kærastanum sínum. Ágústa hálsbrotnaði og skaddaðist á mænu og hefur verið lömuð síðan. Þáverandi kærasti hennar slapp alveg án meiðsla en Ágústa segir það hafa verið erfitt fyrir hann að horfa upp á hana. Þá þurfi hann líka að bera þessa byrgði í gegnum lífið. Ágústa sem er að mestu skert segir margt fylgja því að vera í hjólastól. Fólk missir skin í skrokknum og hefur ekki stjórn á hægðum né þvagláti. Sólveig Svavarsdóttir sem missti föður sinn í bílslysi fyrir 30 árum síðan segir tímann ekki lækna sárið né missinn heldur geri hann einungis bærilegri. Henni finnist enn í dag sárt að faðir hennar geti ekki tekið þátt í lífi dætra hennar og að þær hafi ekki fengið tækifæri til að kynnast afa sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×