Lífið

ENDURUNNIN ÁST ÞÓTTI BERA AF

Verkefnið Love Recycled var kosið besta verkefnið á námskeiði á vegum Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, en þar fengu nemendur að vinna úr hugmyndum að fjórtán fyrirtækjum og var þema námskeiðsins „góðverk“. „Hugmyndin að baki Love Recycled er að endurvinna skart. Það er fullt af fólki sem byrjar saman og hættir síðan saman einhverju seinna.

Lífið

Eins og traktor á þjóðvegi

Fyrsta plata Feldberg, Don‘t Be a Stranger, er komin út. Feldberg er samstarfsverkefni söngkonunnar Rósu Birgittu Ísfeld, sem syngur að auki með hljómsveitinni Sometime, og Einars Tönsberg, sem hefur gert það gott sem einyrkinn Eberg. Allt byrjaði þetta með grípandi popplagi í auglýsingu. „Það var vegna Kringluauglýsingar (lagið „Running Around“) sem við hittumst fyrst. Upp úr því fórum við að hittast reglulega til að sjá svona hvað kæmi út úr því,“ segir Einar.

Lífið

Farðaði stórstjörnurnar í Forbrydelsen

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, hárgreiðslu- og förðunarfræðingur, sá um förðun á helstu stórstjörnum sakamálaþáttarins Forbrydelsen II (Glæpnum) sem nú slær öll áhorfsmet í dönsku sjónvarpi. Þetta er önnur þáttaröðin um lögreglukonuna Söruh Lund en fyrri þáttaröðin naut mikilla vinsælda hér á landi á sínum tíma.

Lífið

Missti vinnuna og opnaði líkamsræktarstöð

„Mér og samstarfskonu minni datt þetta í hug þegar við vorum að vinna saman því við höfðum báðar mikinn áhuga á líkamsrækt. Þegar kreppan skall á misstum við báðar vinnuna og í stað þess að sitja aðgerðarlausar heima ákváðum við að opna okkar eigin líkamsræktar­stöð. Við opnuðum Studio Fitt saman í janúar en hin flutti út í sumar og nú er ég ein eftir ásamt tveimur þjálfurum,“ segir Elísabet Tanía Smáradóttir, viðskiptafræðingur og Fit Pilates kennari sem rekur líkamsræktarstöðina Studio Fitt við Seljaveg. Stöðin býður meðal annars upp á tíma í Fit Pilates, boot camp fyrir konur og jóga, svo fátt eitt sé nefnt.

Lífið

Ásdís og Eldfuglinn

Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari tekst í kvöld á við einn helsta víólukonsert liðinnar aldar eftir William Walton á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ásdís er ein þeirra Íslendinga sem hafa náð hvað lengst í tónlist á alþjóðlegum vettvangi. Hún lærði við Juilliard-tónlistarskólann og var víóluleikari Chilingirian-kvartettsins um árabil, auk þess sem hún hefur komið fram með mörgum helstu tónlistarmönnum heims, meðal annars Claudio Abbado, Maxim Vengerov og Gidon Kremer, og hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og EMI.

Lífið

Finnst strákar einfaldir

Leikkonan Kate Hudson er á forsíðu nýjasta heftis tímaritsins Elle UK. Í viðtali við blaðið segist Hudson líta á karlmenn sem drengi. „Þegar ég tala við stráka þá finnst mér sem þeir heyri bara sumt af því sem maður segir. Ef það væri lítil talblaðra yfir höfðinu á þeim gæti maður séð að þeir hugsuðu aðeins um íþróttir, kynlíf og mat," segir leikkonan sem sjálf á fimm ára gamlan son.

Lífið

Fékk drykk yfir sig

Leikkonan unga Mischa Barton var orsök slagsmála sem brutust út á öldurhúsi nokkru í New York-borg.

Lífið

Kaupir nýtt mótorhjól

Hjartaknúsarinn Brad Pitt hefur notað ferðalag sitt til Japans, þar sem hann kynnir myndina Inglorious Basterds, til að leita sér að nýju mótorhjóli. Uppáhaldsmótorhjólið hans eyðilagðist í síðasta mánuði og hefur hann því notað frítíma sinn í Japan til að finna nýtt. Pitt skemmdi gamla hjólið í Los Angeles þegar hann klessti á kyrrstæðan bíl. Sjálfur slapp hann með skrámur. „Það skaddaðist ekkert nema egóið mitt,“ sagði Pitt. „Ég var að reyna að stinga einhverja papparassa af en í staðinn höfðu þeir góða frétt upp úr krafsinu.“

Lífið

Hudson náin móður sinni

Jennifer Hudson segist enn vera mjög náin móður sinni, Darnell. Ár er liðið síðan hún var skotin til bana ásamt bróður Hudson, Julian, fyrir utan heimili þeirra í Chicago. Lík sjö ára frænda hennar fannst sömuleiðis í yfirgefnum bíl þremur dögum síðar. Hudson segir að móðir hennar sé verndarengillinn sinn og fylgi henni hvert sem hún fer. Hún segist finna mikið fyrir nærveru hennar á hverjum einasta degi. „Ég áttaði mig ekki á því að ég væri svona lík móður minni þar til núna. Hún var ótrúlega sterkur persónuleiki."

Lífið

Guðrún María á tónleikum í dag

Mætt er til landsins Guðrún María Finnbogadóttir sópran sem hefur dvalið lengi í Englandi við nám og störf. Hún heldur tónleika í Hafnarborg í hádeginu við undirleik Antoníu Hevesi. Guðrún María Finnbogadóttir sópran flytur þar tilfinningaríkar aríur meðal annars eftir Händel. Hefjast tónleikarnir kl. 12.15.

Lífið

Robbie aftur í Take That

Söngvarinn Robbie Williams hefur staðfest að hann ætli að starfa aftur með fyrrverandi félögum sínum í Take That. Robbie yfirgaf strákabandið árið 1995 og hóf eigin sólóferil sem hefur gengið vonum framar. Í spjallþætti Jonathan Ross á BBC sagðist Robbie vonast til að bralla eitthvað nýtt með Take That.

Lífið

Eyðir millum í eigið öryggi

Milljarðamæringurinn og harðjaxlinn 50 Cent lýsti nýlega yfir að hann eyddi rúmlega tveimur milljónum króna í öryggi sitt í hverri einustu viku.

Lífið

Í fótspor Bítlanna og Zeppelin

Bandaríska hljómsveitin The Flaming Lips hefur löngum verið talin með þeim skrítnari í tónlistarbransanum. Sýrukenndur og tilraunakenndur poppbræðingurinn hefur oft á tíðum hitt í mark hjá gagnrýnendum, sérstaklega með plötunum The Soft Bulletin og Yoshimi Battles the Pink Robots, og hljómsveitin á sér dyggan aðdáendahóp innan indí-geirans.

Lífið

DÁÐST AÐ MERKUM GÍTURUM

Merkileg sýning á gíturum hófst í Tónlistarsafni Íslands, Hábraut 2 í Kópavogi, á þriðjudaginn. Margar kempur úr tónlistar­bransanum lögðu leið sína í safnið til að berja fagrar fjalirnar augum.

Lífið

Íslensk list á alheimsvefnum

„Þetta er vefrit um íslenska list, allt frá tón- og myndlist til kvikmyndagerðar og arkitektúrs. Við höfum nú þegar gefið út þrjú blöð á heimasíðu okkar pdflistin.is, en þangað getur fólk sótt vefritin. Hvert rit er um þrjátíu til fjörutíu blaðsíður og hver listamaður fær í það minnsta eina opnu undir verk sín og stutta umfjöllun,“ segir Heimir Gústafsson, einn aðstandenda vefritsins PDFlistin. Ritið er gefið út mánaðarlega og fjallar um íslenska neðanjarðarlist auk þess sem stefnt er að því að halda listasýningar í kjölfar hverrar útgáfu.

Lífið

Sonur Penns handtekinn í skólanum

Sextán ára gamall sonur leikarans Seans Penn, Hopper Jack Penn, var handtekinn í skóla sínum í síðustu viku. Lögreglan í Malibu neitaði að tjá sig um málið þar sem Hopper Jack er enn undir lögaldri. Þrátt fyrir þagmælsku lögreglunnar hafa þær fréttir borist að pilturinn hafi verið handtekinn fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum.

Lífið

Framleiðir kvikmynd

Katie Holmes mun bæði framleiða og leika í kvikmyndinni Romantics ásamt Önnu Paquin úr þáttunum True Blood. Upphaflega átti leikkonan Liv Tyler að fara með aðalhlutverkið í kvikmyndinni en eftir að hún hætti við var Holmes fengin í staðinn. Kvikmyndin fjallar um tvær háskólavinkonur sem hittast aftur síðar þegar önnur þeirra giftir sig. Tökur á myndinni fara fram í New York og hefjast í næstu viku.

Lífið

Ingó gefur út jólalag

„Lagið er algjörlega hefðbundið. Fyrsta hefðbundna lagið sem ég sem,“ segir Ingólfur Þórarinsson – betur þekktur sem Ingó Veðurguð.

Lífið

Tjáir sig loks um árásina

Söngkonan Rihanna ætlar að tjá sig í fyrsta sinn um árás fyrrverandi kærasta síns, Chris Brown, á sig í febrúar. Diane Sawyer hjá sjónvarpsstöðinni ABC ætlar að ræða við söngkonuna og verður viðtalið sýnt í kvöld og á morgun. Í viðtalinu segir hin 21 árs Rihanna að Brown hafi verið fyrsta ástin sín og að fyrst þetta kom fyrir hana þá geti þetta komið fyrir hvern sem er. Einnig ræðir hún um uppvaxtarár sín á Barbados-eyjum, fjölskylduna sína og hvernig henni hefur liðið síðan árásin átti sér stað. Chris Brown var dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi fyrir árásina og til sex mánaða samfélagsþjónustu.

Lífið

Casablancas með jólalag

Julian Casablancas, söngvari The Strokes, ætlar á næstunni að gefa út sitt fyrsta jólalag. Lagið er hans útgáfa af I Wish It Was Christmas Today, sem heyrðist fyrst í bandaríska gamanþættinum Saturday Night Live.

Lífið

Músefjun flækir sig

Hljómsveitin Múgsefjun kom firnasterkt inn í fyrra með frumburð sinn, plötuna Skiptar skoðanir. Nú er farið að heyrast nýtt lag með sveitinni, „Lesið í marmarann“, þar sem Spilverks-legur Múgsefjunartónn er sleginn með ógn „ástandslegum“ texta.

Lífið

Borgfirðingar sækja á

Stundum segja menn í ábyrgðarleysi að flest skáld landsins komi úr Borgarfjarðarhéraði: ekki skal deilt um það, en þessa dagana sitja þrír Borgfirðingar í efstu sætum metsölulista Pennans Eymundssonar.

Lífið

Tveir kynnar á Óskarnum

Steve Martin og Alec Baldwin verða kynnar á næstu Óskarsverðlaunahátíð. Síðast þegar kynnar voru fleiri en einn var árið 1987 en þá fóru Chevy Chase, Goldie Hawn og Paul Hogan með gamanmál. Vangaveltur eru uppi um að Tina Fey, sem leikur á móti Baldwin í sjónvarpsþáttunum 30 Rock, muni taka þátt í að semja grínefni fyrir hátíðina.

Lífið

Kossaflens á almannafæri

Tímaritið Star Magazine heldur því fram að Chris Martin, söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, hafi haldið framhjá eiginkonu sinni með Kate Bosworth. Martin hefur verið giftur leikkonunni Gwyneth Paltrow frá árinu 2003 og eiga þau saman tvö börn.

Lífið

Mel með bakþanka

Samband leikarans Mel Gibson við kærustu sína, hina rússnesku Oksönu, ku vera nokkuð stirt aðeins nokkrum dögum eftir að dóttir þeirra fæddist. „Mel áttaði sig á því að vegna Oksönu hefur hann lítið samband við börn sín. Auk þess er hún mjög upptekin af sjálfri sér, ferill hennar hefur forgang, ekki sambandið," sagði vinur leikarans um málið. Að sögn vinarins saknar Gibson fyrrverandi konu sinnar, Robyn, og sér mikið eftir því að hafa komið eins illa fram við hana og hann gerði. Vinurinn segir jafnframt að Gibson hafi hætt við væntanlegt brúðkaup sitt og Oksönu og að tvísýnt sé hvort sambandið endist mikið lengur.

Lífið

Ófrýnilegur í Prince of Persia

„Þetta er mun meira en ég átti von á, kemur kannski svolítið á óvart,“ segir Gísli Örn Garðarsson. Honum bregður fyrir nokkrum sinnum í stiklu kvikmyndarinnar Prince of Persia: The Sands of Time þar sem Jake Gyllenhaal, Gemma Arterton og Ben Kingsley eru meðal helstu leikara.

Lífið

Stór dagur fram undan hjá skeggkokkum

Úlfar Eysteinsson og Tómas Tómasson ætla að leigja sér hestvagn og jólasveinabúning og gefa öllum leikskólabörnum eina litla gjöf ef Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti niður fyrir tíu prósent á morgun. „Við ætlum að fá styrk hjá Seðlabankanum fyrir þessu. Þeir geta ekki sagt nei við þeirri bón,“ segir Úlfar.

Lífið

Rangar aðsóknartölur á bíólista

„Það kom upp atvik sem benti til að um rangar tölur væri að ræða," segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri Smáís, Samtaka myndrétthafa á Íslandi.

Lífið