Lífið
Gerir mynd um Richards Leikarinn Johnny Depp er að undirbúa heimildarmynd um Keith Richards, gítarleikara Rolling Stones. Þeir tveir hafa verið vinir í nokkurn tíma og Depp hefur viðurkennt að hafa byggt persónu sína í myndunum Pirates of the Lífið 4.2.2010 05:00
Þóra framleiðir myndir í Noregi „Ég var boðuð í atvinnuviðtal um leið og mér var sagt upp á RÚV,“ segir Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi sjónvarpsmaður í Kastljósinu. Lífið 4.2.2010 05:00
Endalaus sambandsslit Í kvöld frumsýnir Íslenski dansflokkurinn nýtt verk, Endalaus eftir Alan Lucien Öyen, þrjátíu og tveggja ára norskan danshöfund á uppleið. Hann kom hingað í boði Kristínar Hall hjá dansflokknum í byrjun desember og samdi verkið á meðan hann dvaldist hér. Lífið 4.2.2010 05:00
Erótík í þrívídd Leikstjórinn Tinto Brass lýsti því á blaðamannafundi í Róm að hann langaði til að gera erótíska kvikmynd í þrívídd og nota sömu tækni og var notuð í Avatar. Lífið 4.2.2010 04:00
Sjálfkrafa á jaðarinn Í kvöld heldur Þorvaldur Þór Þorvaldsson tónleika á Café Rosenberg ásamt hljómsveit. Með honum leikur djasslandsliðið; þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Óskar Guðjónsson á saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa. Leikin verður tónlist af plötu Þorvaldar sem kom út fyrir síðustu jól og heitir í höfuðið á tónlistarmanninum. Lífið 4.2.2010 04:00
Átti að setja Björgvin á róandi lyf - myndband Snemma kom í ljós að Björgvin Páll Gustavsson landsliðsmaður í handbolta var afar fyrirferðarmikið barn. Eins og móðir hans lýsir í nærmynd sem Ísland í dag gerði um kappann. „Þegar hann var níu ára komu upp allskonar vandamál í skóla og á skóladagheimili sem hann var á og eins bara í hverfinu... og það var ákveðið að senda hann í greiningu." Björgvin dvaldi á barna- og unglingageðdeild í sex vikur en fékk að fara heim um helgar. Hann var talinn á mörkum þess að vera ófvirkur og mælst var til þess að hann yrð settur á róandi lyf. Lífið 3.2.2010 08:30
Baltasar gerir kvikmynd eftir einleik Jóns Atla Baltasar Kormákur hyggst gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla Jónassonar, Djúpinu. Hann sótti innblásur sinn til ótrúlegrar þrekraunar Guðlaugs Friðþórssonar sem synti í land eftir að skip hans, Hellisey VE-503, fórst við Vestmannaeyjar aðfaranótt 11.mars árið 1984. Fjórir vinir Guðlaugs fórust en hann komst einn lífs af eftir að hafa synt rúma fimm kílómetra og verið sex tíma í ísköldu Atlantshafinu. Lífið 3.2.2010 05:45
Gulljakkinn varð bronsjakki „Eigum við ekki að segja að jakkinn sé bronslitaður,“ segir varnarjaxlinn Ingimundur Ingimundarson. Lífið 3.2.2010 05:00
Broderick í sjónvarpið Gæðaleikarinn Matthew Broderick hefur tekið að sér að leika aðalhlutverkið í nýjum gamanþáttum NBC-sjónvarpsstöðvarinnar. Þeir heita Beach Lane og fjalla um þekktan rithöfund sem tekur að sér að ritstýra dagblaði í smábæ. Broderick bauðst hlutverkið fyrir ári en ákvað loks að láta slag standa eftir að hafa lesið handritið, að því er kemur fram í Hollywood Reporter. Væntanlega hefur það síðan ekki skemmt fyrir að eiginkona Brodericks, Sarah Jessica Parker, hefur átt farsælan feril í sjónvarpinu, í þáttunum Sex and the City. Lífið 3.2.2010 03:00
Kaffibarssjósund endaði á spítala „Það endaði einn á spítala síðast – ofkældist næstum því. Það var reyndar ég. Ég fór aðeins of langt út í,“ segir Karl West, formaður sjósundsselskapar Kaffibarsins. Lífið 3.2.2010 03:00
Bíður eftir Michael Janet Jackson, systir hins látna Michaels Jackson, bíður enn eftir því að heyra röddina hans í símanum sínum. Þetta kemur fram í viðtali við söngkonuna í tímaritinu Wonderland. „Stundum hringir síminn og þá vona ég að þetta sé hann,“ segir Janet í viðtalinu en hún hefur haldið sig til hlés eftir að bróðir hennar fór yfir móðuna miklu og aðeins birst opinberlega til að styðja við bakið á börnum Jacksons. „Fólk syrgir bara á mismunandi hátt.“ Lífið 3.2.2010 02:00
Hera Björk: Auðvitað bregður manni „Auðvitað bregður manni svona fyrst en svo er þetta nú fljótt að jafna sig. Sérstaklega þegar maður minnir sjálfan sig á í hvaða keppni maður er," segir Hera Björk Þórhallsdóttir. Lífið 2.2.2010 10:30
Lagið hans Bubba líka stolið? Á meðfylgjandi link má hlusta á samanburð á lögunum One more day sem Jogvan Hansen syngur í forkeppni Eurovision og Svefnljóð með Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Erindin í lögunum eru nauðalík eins og heyra má hér. „Mér finnst þetta varla svara vert. Þetta er árleg uppákoma sem tengist þessari keppni," sagði Örlygur Smári í samtali við Vísi í gær þegar við höfðum samband til að fá endanlega úr því skorið hvort lag hans og Heru Bjarkar, Je ne sais quoi, sé stolið eins og haldið er fram. Lífið 2.2.2010 06:15
Norðurlöndin í sérflokki Jóhannes Steinn Jóhannesson, matreiðslumeistari á veitingastaðnum VOX, tók þátt í hinni árlegu kokkakeppni Nordic Chef of the Year sem fram fór í Herning í Danmörku á miðvikudag. Tíu kokkar tóku þátt í keppninni og lenti Jóhannes Steinn í fjórða sæti. „Þetta er ein erfiðasta kokkakeppni í heimi og eru það kokkar ársins frá hverju landi sem taka þátt. Mér gekk ekki nógu vel því ég lenti í tímahraki með aðalréttinn,“ segir Jóhannes, sem var valinn matreiðslumeistari ársins 2009, annað árið í röð. Lífið 2.2.2010 06:00
Stoltur af kjúklingnum Egill Einarsson hefur verið stoppaður úti á götu, knúsaður og kysstur fyrir framgöngu Arons Pálmarssonar á EM. Egill segir Aron skólabókardæmi um mann sem nær sínum markmiðum. Lífið 2.2.2010 06:00
Anita á frumsýningu með Fergie Íslenska leikkonan Anita Briem var meðal stjarnanna í Hollywood þegar kvikmyndin When in Rome var frumsýnd. Aðdáendur flykktust að stjörnunum þegar þær mættu prúðbúnar í El Capitan-kvikmyndahúsið á miðvikudaginn í síðustu viku. When in Rome hefur reyndar ekki fengið rosalega góða dóma en hún skartar Kristen Bell, sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur ættu að kannast við úr Gossip Girls, og Josh Duhamel, eiginmanni Fergie úr The Black Eyed Peas, í aðalhlutverkum auk Anjelicu Houston og Jon Heder, nördaleikarans geðþekka úr Napeolon Dynamite og Blades of Glory. Lífið 2.2.2010 06:00
Bronser-gel keppir við Silver Vinirnir Logi Tómasson og Kolbeinn Þórðarson sem eru í 4. bekk í Digranesskóla hafa búið til sitt eigið hárgel sem nefnist Bronser. Fetar það í fótspor gelsins Silver sem silfur- og bronsdrengirnir Logi Geirsson og Björgvin Páll Gústafsson framleiða. Lífið 2.2.2010 04:30
Google kjaftaði frá Söngkonan Kate Perry komst að því í gegnum google.com að unnusti hennar, Russell Brand, hyggðist biðja hennar. Hún viðurkenndi í samtali við fjölmiðla að hún gúgglaði stundum sjálfa sig og sá þar að vefmiðlar voru farnir að fjalla um hvers vegna Russell væri að kaupa hringa. „Þetta er bara svona, því miður,“ sagði Kate. Lífið 2.2.2010 03:00
Skaut krókódíl með skammbyssu „Það þurfti bara eitt skot við brosið í munnvikinu,“ segir Páll Reynisson, eigandi Veiðisafnsins á Stokkseyri. Hann fór til Suður-Afríku í nóvember þar sem hann veiddi í fyrsta sinn krókódíl með skambyssu. Auk þess sem hann felldi hann strút með skambyssu og nokkrar tegundir af antílópum. Honum tókst þó ekki að klófesta híenu þrátt fyrir að hafa legið í leyni í þrjár nætur, tilbúinn með byssuna. Lífið 2.2.2010 02:30
Tilnefndar til sjö Razzies Kvikmyndirnar Transformers: Revenge of the Fallen og Land of the Lost fengu sjö tilnefningar hvor til hinna árlegu Razzies-skammarverðlauna í Hollywood. Báðar voru þær tilnefndar sem verstu myndir síðasta árs auk þess sem aðalleikararnir, Megan Fox og Will Ferrell, voru tilnefndir sem verstu leikararnir. Fox var sömuleiðis tilnefnd fyrir hlutverk sitt í Jennifer"s Body. Lífið 2.2.2010 02:00
Óska eftir íslensku slangri Íslenskufræðingarnir Einar Björn Magnússon og Guðlaugur Jón Árnason hafa stofnað slangurorðabók á netinu. Þar getur almenningur sett inn ný slangurorð sem mörg hver munu rata í nýja slangurorðabók sem þeir eru með í undirbúningi. Lífið 2.2.2010 02:00
Suðurríkin á Rosenberg Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir og trommarinn Hannes Friðbjarnarson höfðu lengi gengið með þá flugu í maganum að halda tónleika með góðu fólki. Hugmyndin spratt upp frá sameiginlegum áhuga á bandarískri suðurríkjatónlist. Útkoman varð hljómsveitin Nesi, Sjana og hinar kellingarnar. Í bandinu eru meðal annars Guðrún Gunnarsdóttir, Andrea Gylfadóttir og Pétur Örn Guðmundsson. Lífið 2.2.2010 01:30
Munaðarlausum boðið til Akureyrar Leikfélag Akureyrar hefur boðið leiksýningunni Munaðarlaus að vera Óvissusýning vetrarins hjá LA. Sýningin Munaðarlaus hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum vikum þar sem hún hefur verið sýnd í Norræna húsinu við glimrandi viðtökur og hefur verið fullt á nær allar sýningar. Í tilkynningu frá hópnum kemur fram að ákveðið hafi verið að nýta ferðina norður og sýna einnig á Vopnafirði og Egilsstöðum. Lífið 1.2.2010 20:11
Handboltalandsliðið og eiginkonurnar Sigrún Ósk Kristjánsdóttir annar þáttastjórnandi Ísland í dag var viðstödd þegar íslenska handboltalandsliðið okkar tryggði sér sín fyrstu bronsverðlaun frá upphafi á stórmóti. „Við eltum tæplega 200 Íslendinga út á leikinn þar sem við hittum strákana og konurnar þeirra," segir Sigrún spurð út í ferðalagið til Austurríkis. „Það var magnað fá að vera þarna á staðnum og fylgjast með þessu. Ég vona að við náum að skila smá broti af stemningunni heim í stofu í kvöld," segir Sigrún Ósk. Ekki missa af þættinum Ísland í dag sem hefst strax að loknum fréttum Stöðvar 2. Lífið 1.2.2010 17:09
Eurovisionstríð: Ég veit ekki hvað þetta er í Ögga „Ég veit ekki hvað þetta er í Ögga en í síðustu viku tókum við langt og mikið viðtal við Heru og lýstum því yfir að hún væri líklega að fara að vinna þessa forkeppni. Hann er greinilega ekki að hlusta á Kanann sem er hið versta mál, þó aðallega fyrir hann," segir Einar Bárðarson útvarpsstjóri Kanans eftir að Örlygur Smári annar höfundur lagsins Je ne sais quoi, minntist á áróðursstríð Kanans. Lífið 1.2.2010 14:30
Gleymdi mín að strauja andlitið á Brad? - myndir Brad Pitt, 46 ára, og Angelina Jolie, 34 ára, voru hamingjusöm á árlegu verðlaunahátíðinni Directors Guild of America Awards í fyrradag. Brad klæddist Tom Ford smóking og Angelina grænum kjól frá Elie Saab. Parið var lukkulegt á hátíðinni og sat við sama borð og Íslandsvinurinn Quentin Tarantino allt kvöldið. Lífið 1.2.2010 09:30
Örlygur Smári: Lagið er ekki stolið „Mér finnst þetta varla svara vert. Þetta er árleg uppákoma sem tengist þessari keppni. Það er að finna lög sem eru lík lögunum sem taka þátt í Söngvakeppninni. Það er hægt að finna samsvarandi líkindi með flestum dægurlögum ef vandlega er leitað," svarar Örlygur Smári þegar Vísir hefur samband til að fá endanlega úr því skorið hvort að lag hans og Heru Bjarkar, Je ne sais quoi, sé stolið. Er þetta lag stolið Örlygur? „Nei, lagið er ekki stolið," svarar hann yfirvegaður og segir: "Laglínan og hljómagangurinn er ekki eins og það er það sem skiptir máli og gerir hvert lag." Hvað ef gerð verður krafa á lagið, af höfundum lagsins Who do you love, sem fólk vill meina að sé líkt ykkar framlagi, ef þið vinnið keppnina? „Við höfum engar áhyggjur. Þetta lag er ekki stolið. Finnst þér lagið líkt, eða finnst þér bara sándið á lögunum líkt? Það er reginmunur á því," segir hann. „Annars er ég ekki að fara í einhvern fjölmiðlaslag við Bubba eða nokkurn mann eða konu í tengslum við þátttöku mína í þessari keppni," bætir hann við og segir: „Því má svo bæta við að þessi umfjöllun kom fyrst fram á Kananum hjá umboðsmanni Jógvans í síðustu viku. Greinilega liður í þeirra áróðursstríði. Get svo varla verið sammála um að umræður séu "eldheitar á Netinu" eins og stendur í fréttinni," segir Örlygur. Lífið 1.2.2010 08:00
Opnar sushibar á Stjörnutorgi „Ég er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og hef því verið í kringum fisk allt mitt líf. Ég fluttist sautján ára gamall til Reykjavíkur og fór að læra kokkinn. Stuttu eftir útskrift bauðst mér að læra að búa til sushi og ég fór til Kaupmannahafnar og var undir handleiðslu japansks meistara að nanfni Isao Susuki í tvö ár,“ útskýrir Sigurður Karl Guðgeirsson sem opnar veitingastaðinn suZushii á Stjörnutorgi í lok næstu viku ásamt sambýliskonu sinni, Ástu Sveinsdóttur. Lífið 1.2.2010 06:00
Plötu Seabear lekið á netið Nýjustu plötu hljómsveitarinnar Seabear, We Built a Fire, hefur verið lekið á netið, rúmum mánuði áður en hún kemur út. Lífið 1.2.2010 05:00
Útvarpskona verður dansmær „Ég ákvað að breyta starfsheitinu í magadansmær af því það er enginn að fara að leita að útvarpskonu til að taka að sér skemmtileg verkefni. Ég var áður skráð sem plötusnúður en er orðin mettuð af verkefnum á því sviði og ákvað þess vegna að breyta,“ útskýrir Margrét Erla Maack, útvarpskona á Rás 2, hefur breytt starfsheiti sínu í símaskránni og kallast nú magadansmær. Hún segist hafa staðið í ströngu til að fá starfsheitið í gegn þar sem starfsmenn símaskrárinnar hafi talið að um grín væri að ræða. „Magadansmær var ekki löglegt starfsheiti og þau héldu að þetta væri eitthvað grín, sem það er ekki því ég hef stundað magadans í fimm ár og kenni meðal annars í Kramhúsinu. Þegar ég fór svo á stúfana sá ég að það voru nokkrar ninjur í símaskránni, fimm geimkúrekar, ljónatemjarar og þó nokkrir snillingar. Það endaði með því að ein yndisleg kona sem vann þarna hafði samband við ritsjóra símaskráarinnar og nú er þetta komið í gegn.“ Lífið 1.2.2010 03:00