Lífið Twilight sigurvegari á MTV-hátíð Það er alltaf mikið um dýrðir þegar tónlistarstöðin MTV blæs til fagnaðar, en um helgina voru veitt kvikmyndaverðlaun MTV. Lífið 7.6.2011 02:00 Marvel hamrar járnið X-Men: First Class er skemmtilegt ævintýri sem tekur sig mátulega alvarlega. Enda engin ástæða til annars. Gagnrýni 6.6.2011 22:30 Bono bjargað af íshokký-leikmanni Íshokký-leikmaðurinn Gilbert Brule átti sennilega eki von á því, þegar hann var að keyra með kærustunni sinni Kelsey Nichols í vesturhluta Vancouver, að hann ætti eftir að rekast á írska söngvarann Bono við vegakantinn. Lífið 6.6.2011 20:00 Sverrir keppir hjá Sameinuðu þjóðunum „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á auglýsingum sem bæta samfélagið og hef gert nokkrar slíkar áður fyrir Stígamót og Auga," segir Sverrir Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta Hússins, en hann er með framlag í auglýsingasamkeppni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Lífið 6.6.2011 19:00 Catherine Zeta-Jones kvartaði aldrei Lífið 6.6.2011 18:30 Áttburamamman pósar léttklædd Áttburamóðirin Nadya Suleman, 35 ára, pósar léttklædd í sjávarmáli eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fæðing áttburanna vakti heimsathygli í janúar árið 2009 þegar Nadya, þá sex barna móðir, varð skyndilega fjórtán barna móðir. Nadya, sem eignaðist áttburana með aðstoð sæðisgjafa, leitar allra leiða til að auka tekjurnar hvort sem um er að ræða raunveruleikasjónvarpsþátt þar sem börnin fara með aðalhlutverkin eða myndatökur þar sem hún situr fyrir fáklædd. Lífið 6.6.2011 17:02 Að fanga hverfandi andrá Núið og hverfulleiki andartaksins eru inntak bókverksins Júní eftir Hörpu Árnadóttur myndlistarmann. Bókin er nátengd sýningunni Mýraljós en báðar byggja þær á eins konar dagbókarbrotum Hörpu frá dvöl hennar á Bæ á Höfðaströnd í fyrrasumar. Menning 6.6.2011 16:30 Ofurhugar mæta á Galtalæk Tjaldsvæðið á Galtalæk er líklega þekktast fyrir fjölskylduhátíðina sem þar fer fram um verslunarmannahelgar. Innan tíðar verður breyting þar á því fyrsta jaðar-útihátíð landsins fer fram á Galtalæk dagana 24. til 26. júní. Lífið 6.6.2011 16:00 Brynja Jónbjarnardóttir heillar tískuheiminn Myndaþáttur með fyrirsætunni Brynju Jónbjarnardóttur í aðalhlutverki hefur vakið mikla athygli í netheimum og hlotið mikið lof. Brynja er búsett í London þar sem hún sinnir fyrirsætuhlutverkinu. Lífið 6.6.2011 14:45 Liðið skemmti sér greinilega Meðfylgjandi myndir voru teknar í teiti hjá auglýsingastofunni PIPAR/TBWA 1. júní þar sem ný deild í samfélagsmiðlum var kynnt. 1.017 manns sóttu um vinnu í umræddri deild og voru fjórir ráðnir. Auglýsingastofan átti 17 ára afmæli þennan dag og Valli, Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri stofunnar varð 43 ára þann dag líka. Margt var um manninn og stóð gleðskapurinn fram eftir nóttu. Lífið 6.6.2011 10:51 Og allir að hoppa svo! FM Belfast sló í gegn svo um munaði með fyrstu plötunni sinni How to Make Friends sem kom út haustið 2008. Það getur verið erfitt að fylgja eftir svo vel heppnaðri frumsmíð, en meðlimir FM Belfast hafa greinilega ákveðið að flana ekki að neinu og nú, tæpum þremur árum seinna, er plata númer tvö loksins komin út. Gagnrýni 6.6.2011 10:30 Fox hætti út af kynþokkanum Shia Labeouf, stjarnan úr Transformers-myndunum, hefur útskýrt af hverju Megan Fox hvarf á braut úr myndaflokknum. Henni hugnaðist víst ekki að leika hálfgerða kynlífsdúkku eins og leikstjórinn Michael Bay vildi láta hana líta út fyrir að vera á hvíta tjaldinu. Lífið 6.6.2011 09:30 Erum enn saman Lífið 6.6.2011 09:00
Twilight sigurvegari á MTV-hátíð Það er alltaf mikið um dýrðir þegar tónlistarstöðin MTV blæs til fagnaðar, en um helgina voru veitt kvikmyndaverðlaun MTV. Lífið 7.6.2011 02:00
Marvel hamrar járnið X-Men: First Class er skemmtilegt ævintýri sem tekur sig mátulega alvarlega. Enda engin ástæða til annars. Gagnrýni 6.6.2011 22:30
Bono bjargað af íshokký-leikmanni Íshokký-leikmaðurinn Gilbert Brule átti sennilega eki von á því, þegar hann var að keyra með kærustunni sinni Kelsey Nichols í vesturhluta Vancouver, að hann ætti eftir að rekast á írska söngvarann Bono við vegakantinn. Lífið 6.6.2011 20:00
Sverrir keppir hjá Sameinuðu þjóðunum „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á auglýsingum sem bæta samfélagið og hef gert nokkrar slíkar áður fyrir Stígamót og Auga," segir Sverrir Björnsson, hönnunarstjóri Hvíta Hússins, en hann er með framlag í auglýsingasamkeppni á vegum Sameinuðu þjóðanna. Lífið 6.6.2011 19:00
Áttburamamman pósar léttklædd Áttburamóðirin Nadya Suleman, 35 ára, pósar léttklædd í sjávarmáli eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fæðing áttburanna vakti heimsathygli í janúar árið 2009 þegar Nadya, þá sex barna móðir, varð skyndilega fjórtán barna móðir. Nadya, sem eignaðist áttburana með aðstoð sæðisgjafa, leitar allra leiða til að auka tekjurnar hvort sem um er að ræða raunveruleikasjónvarpsþátt þar sem börnin fara með aðalhlutverkin eða myndatökur þar sem hún situr fyrir fáklædd. Lífið 6.6.2011 17:02
Að fanga hverfandi andrá Núið og hverfulleiki andartaksins eru inntak bókverksins Júní eftir Hörpu Árnadóttur myndlistarmann. Bókin er nátengd sýningunni Mýraljós en báðar byggja þær á eins konar dagbókarbrotum Hörpu frá dvöl hennar á Bæ á Höfðaströnd í fyrrasumar. Menning 6.6.2011 16:30
Ofurhugar mæta á Galtalæk Tjaldsvæðið á Galtalæk er líklega þekktast fyrir fjölskylduhátíðina sem þar fer fram um verslunarmannahelgar. Innan tíðar verður breyting þar á því fyrsta jaðar-útihátíð landsins fer fram á Galtalæk dagana 24. til 26. júní. Lífið 6.6.2011 16:00
Brynja Jónbjarnardóttir heillar tískuheiminn Myndaþáttur með fyrirsætunni Brynju Jónbjarnardóttur í aðalhlutverki hefur vakið mikla athygli í netheimum og hlotið mikið lof. Brynja er búsett í London þar sem hún sinnir fyrirsætuhlutverkinu. Lífið 6.6.2011 14:45
Liðið skemmti sér greinilega Meðfylgjandi myndir voru teknar í teiti hjá auglýsingastofunni PIPAR/TBWA 1. júní þar sem ný deild í samfélagsmiðlum var kynnt. 1.017 manns sóttu um vinnu í umræddri deild og voru fjórir ráðnir. Auglýsingastofan átti 17 ára afmæli þennan dag og Valli, Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri stofunnar varð 43 ára þann dag líka. Margt var um manninn og stóð gleðskapurinn fram eftir nóttu. Lífið 6.6.2011 10:51
Og allir að hoppa svo! FM Belfast sló í gegn svo um munaði með fyrstu plötunni sinni How to Make Friends sem kom út haustið 2008. Það getur verið erfitt að fylgja eftir svo vel heppnaðri frumsmíð, en meðlimir FM Belfast hafa greinilega ákveðið að flana ekki að neinu og nú, tæpum þremur árum seinna, er plata númer tvö loksins komin út. Gagnrýni 6.6.2011 10:30
Fox hætti út af kynþokkanum Shia Labeouf, stjarnan úr Transformers-myndunum, hefur útskýrt af hverju Megan Fox hvarf á braut úr myndaflokknum. Henni hugnaðist víst ekki að leika hálfgerða kynlífsdúkku eins og leikstjórinn Michael Bay vildi láta hana líta út fyrir að vera á hvíta tjaldinu. Lífið 6.6.2011 09:30
Frægir komast upp með brjóstakáf Mila Kunis, 27 ára, og Justin Timberlake, 30 ára, létu vel að hvort öðru á MTV tónlistarhátíðinni, eins og sjá má á myndunum, sem fram fór í Kaliforníu í gærkvöldi. Þau sögðust komast upp með káfið því þau væru vinir en ekki kærustupar. Þau leika saman í kvikmyndinni Friends With Benefits (sjá í meðfylgjandi myndskeiði). Lífið 6.6.2011 00:00
Þarf að berjast fyrir laununum Sorgarsaga Cheryl Cole í bandaríska X-Factor tekur á sig nýja mynd á hverjum degi. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum var Cole rekin úr bandarísku raunveruleikaseríunni X-Factor. Hún á hins vegar inni laun upp á 226 milljónir íslenskra króna og hún hyggst ekki gefa tommu eftir til að fá þá summu greidda inn á launareikning sinn. Lífið 5.6.2011 15:00
Daðrar í Cannes Samband Scarlett Johansson og Sean Penn hefur liðið undir lok. Parið hafði verið að hittast frá því í febrúar. Lífið 5.6.2011 13:15
Hemmi Hreiðars söng Hjálpaðu mér upp á Næsta bar Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson tók tapinu gegn Dönum létt og brá sér í hlutverk trúbadors á Næsta bar í gærkvöldi. Hápunktur sönglagasyrpu Hermanns var þegar hann söng lagið Hjálpaðu mér upp eftir Ný dönsk. Lífið 5.6.2011 13:08
Beckham til í tattú á typpið Knattspyrnugoðið David Beckham íhugar að fá sér húðflúr á sitt allra heilagasta. Beckham mætti í viðtal til sjónvarpsfréttamannsins Craig Ferguson á dögunum og spurði fréttamaðurinn hann meðal annars út í húðflúrin, sem hafa löngum vakið mikla athygli. Lífið 5.6.2011 11:00
Allen skiptir um nafn Söngkonan Lily Allen hefur ákveðið að taka upp eftirnafn verðandi eiginmanns síns, Sam Cooper, þegar þau ganga í það heilaga hinn 11. júní. "Lily hefur nú þegar sagt umboðsskrifstofunni og yfirmönnum plötufyrirtækisins að héðan í frá hljóðriti hún undir nafninu Lily Cooper,“ sagði heimildarmaður söngkonunnar. Lífið 5.6.2011 08:30
Það þarf fagmenn í faginu til að fara ekki út af laginu "Þetta er þáttur sem fjallar um yngri hljómsveitir og eldri tónlistarmenn. Smá samanburður á kynslóðunum," segir tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Lífið 4.6.2011 19:00
Röddin er hljóðfærið mitt Rokkararnir í Steelheart spila á Nasa á miðvikudag. Söngvarinn Mili passar vel upp á háa rödd sína, sem er alveg jafn kraftmikil og fyrir tuttugu árum. Lífið 4.6.2011 17:30
Quarashi aftur í ræturnar Rappararnir í Quarashi ætla að sækja aftur í ræturnar á endurkomutónleikum sínum í sumar. Gísli Galdur og Opee stíga báðir á svið með hljómsveitinni. Í tilefni af endurkomu Quarashi á Bestu útihátíðinni í júlí hefur hljómsveitin ákveðið að sækja aftur í ræturnar hvað útsetningar á tónlistinni varðar. Lífið 4.6.2011 14:15
Ísland í gegnum hliðargluggann Ljósmyndasýning Svavars Jónatanssonar verður opnuð Skaftafelli í dag. Myndirnar eru unnar úr myndbandsverki sem hann lauk við í fyrra. Lífið 4.6.2011 14:00
Spila tónlist við kvikmyndaverk Daníel Bjarnason og Ben Frost flytja tónverkið We don’t need other worlds, we need mirrors – Music for Solaris, á tónleikum í Hörpunni í kvöld. Lífið 4.6.2011 14:00
Haffi Haff: Sjómennskan heillar enn Hafsteinn Þór Guðjónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, hefur sýnt að honum er fleira til lista lagt en tónsmíðar og tískuráðleggingar, eins og sannaðist rækilega með sigrinum í þrautaþættinum Wipeout. Þótt ungur sé að árum, einungis 26 ára, hefur Haffi marga fjöruna sopið og hélt snemma til sjós ásamt föður sínum við strendur Alaska. Lífið 4.6.2011 11:00
Fjölskyldan útskrifast saman „Við vorum eitthvað að hlæja að því fyrr í vetur að kannski mundum við útskrifast öll á sama tíma en vorum ekki viss um að það mundi takast,“ segir Eva Ýr Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og master í mannauðsstjórnun, sem útskrifast laugardaginn 11. júní frá Háskóla Íslands. Dagurinn verður viðburðaríkur í fjölskyldunni þar sem móðir hennar og bróðir eru einnig að útskrifast úr sama skóla. Lífið 4.6.2011 10:00
Málflutningur Gillzeneggers á villigötum „Af þessum myndum að dæma virðist Egill hafa rangt fyrir sér. Því miður," segir ljósmyndarinn Árni Torfason. Lífið 4.6.2011 09:00
Eignaðist stúlku Poppsöngkonan Pink eignaðist sitt fyrsta barn í fyrrinótt og greindi sjálf frá því á samskiptavefsíðunni Twitter skömmu síðar. "Við erum í skýjunum yfir fæðingu litlu fallegu stúlkunnar okkar, Willow Sage Hart. Hún er gullfalleg eins og pabbi hennar.“ Lífið 4.6.2011 08:00
Magabolir aftur í tísku Ef marka má helstu hönnuði og tískuspekinga eru stuttir bolir og fatnaður sem sýnir beran maga ein af tískubólum sumarsins. Tíska tíunda áratugarins hefur verið að koma aftur í litlum skömmtum undanfarið og magabolirnir eru hluti af þeirri þróun. Hönnuðirnir vinsælu Alexander Wang og Vivienne Westwood eru meðal þeirra hönnuða sem eru með stutta boli og skyrtur í fatalínum sínum. Lífið 4.6.2011 07:30
Stefnir í spurningastríð Logi Bergmann Eiðsson undirbýr nú af kappi nýjan spurningaþátt sem fer í loftið á Stöð 2 í haust. Þátturinn verður með svipuðu sniði og Bomban sem var á dagskrá í fyrra. Logi gerir ráð fyrir að þættirnir hefji göngu sína strax í haust. Lífið 3.6.2011 21:00