Quarashi aftur í ræturnar 4. júní 2011 14:15 Gísli Galdur og Ólafur Páll Torfason, eða Opee, taka þátt í endurkomu Quarashi á Bestu útihátíðinni í júlí. Mynd/Vilhelm
Rappararnir í Quarashi ætla að sækja aftur í ræturnar á endurkomutónleikum sínum í sumar. Gísli Galdur og Opee stíga báðir á svið með hljómsveitinni. Í tilefni af endurkomu Quarashi á Bestu útihátíðinni í júlí hefur hljómsveitin ákveðið að sækja aftur í ræturnar hvað útsetningar á tónlistinni varðar. Þegar sveitin hóf störf um 1996 snerist allt um trommur, sömpl og tilburði plötusnúðarins. Gísli Galdur, sem var plötusnúður hjá Quarashi síðustu ár hennar, mun aðstoða við að færa eldri lög sveitarinnar í hipphopplegri búning og einhverjum lögum verður skotið saman. „Við ætlum að leika okkur með „playbackið" og reyna að keyra það dálítið skemmtilega þannig að þetta verði dálítið þéttur pakki," segir Gísli Galdur. „Þetta er rosamikið af hitturum og ég held að það verði mjög skemmtilegt að grufla aðeins í þessu. Þarna verður líka góð blanda af þessu gamla og nýja."Hvorki bassa- né gítarleikari verður því með Quarashi á tónleikunum og því er ekkert pláss fyrir náunga á borð við leikstjórann Gauk Úlfarsson og Smára „Tarf" Jósepsson sem spiluðu með sveitinni á sínum tíma. Rapparinn Ólafur Páll Torfason, betur þekktur sem Opee, var gestur í Quarashi um stund og söng með sveitinni lagið Mess It Up. Hann tekur einnig þátt í endurkomu Quarashi og flýgur hingað frá Danmörku. Þar er hann að útskrifast úr viðskiptanámi hjá Handelshøjskolen i København. „Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt. Það er svo langt síðan síðast og það er gaman að allir séu með," segir Ólafur Páll. „Það er langt síðan ég hef tekið þetta lag en ég reikna með því að það hafist." Eftir að Ólafur Páll hætti í Quarashi starfaði hann með hljómsveitinni O.N.E. Síðan hann flutti til Danmerkur árið 2009 hefur hann eitthvað gert af því að semja og spila sem plötusnúður en langmestur tími hefur þó farið í námið. Engu að síður segist hann vera í hörkuformi. „Ég stefni að því að mæta á æfingar í byrjun júlí og heilsa upp á mannskapinn. Það verður gaman að rifja upp gamlar stundir."freyr@frettabladid.is
Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira