Lífið

Hönnun Lindu eftirsótt

Scintilla hönnun Lindu Bjargar Árnadóttur fagstjóra fatahönnunardeildar LHÍ, hefur ekki aðeins vakið athygli á Íslandi heldur einnig úti í hinum stóra heimi...

Tíska og hönnun

Léttklæddar íslenskar mæðgur hneyksla Bandaríkjamenn

"Það hefur enginn stoppað okkur úti á götu eða hringt en gagnrýnin á netinu hefur ekki farið fram hjá okkur,“ segir Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður um viðbrögðin við auglýsingaherferð sem skartar henni og dóttur hennar, Indíu Salvöru Menuez, í aðalhlutverki.

Lífið

Hætti við veisluhöld

Pippa Middleton er í það mikilli ástarsorg að hún hætti við að fara á grímuball hjá hæstarétti landsins. Að fá boðskort í þá veislu þykir viðurkenning en Middleton, sem sló eftirminnilega í gegn í brúðkaupi systur sinnar Kate Middleton, treysti sér ekki til að fara. Breskir fjölmiðlar greindu frá því fyrir helgi að Middleton hefði hætt með kærasta sínum, Alex Loudon.

Lífið

Ívar Hauksson: Bestur í öllu

Ívar Hauksson PGA-golfkennari hættir ekki fyrr en hann skarar fram úr í einu og öllu sem hann gerir. "Líf mitt á Spáni er draumur í dós. Það eru forréttindi að geta unnið við það sem manni þykir skemmtilegast," segir Ívar, sem er mörgum ógleymanlegur fyrir að hafa unnið allt sem hann unnið gat á sviði íþrótta, karlmennsku og fegurðar hér áður.

Lífið

Signý á topplista hjá Taschen

Teikningar eftir listakonuna Signýju Kolbeinsdóttur prýða dagatal útgáfurisans Taschen fyrir komandi ár. Signý er þar í hópi heimsþekktra listamanna á borð við Söru Antoinette Martin og Gary Baseman.

Lífið

Óttar Guðnason vinnur með John Cusack

Óttar Guðnason verður, samkvæmt vefsíðunni imdb.com, kvikmyndatökumaður á hasarmyndinni The Numbers Station eftir danska leikstjórann Kasper Barfoed. Framleiðendur eru meðal annars bræðurnir Bryan Furst og Sean Furst en þeir eiga meðal annars endurgerðarréttinn að Mýrinni eftir Baltsar Kormák.

Lífið

Uppselt á snjóbrettamynd

Snjóbrettamyndin Art of flight var sýnd í Bíó Paradís 11. nóvember síðastliðinn. Red bull stóð fyrir sýningunni og kom auk þess að gerð myndarinnar sem tók tvö ár...

Lífið

Britney í Brasilíu

Söngkonan Britney Spears, 29 ára, var mynduð brosandi á hótelsvölum í Rio de Janeiro í Brasilíu...

Lífið

Dikta stefnir enn hærra

Það eru eflaust einhverjir sem bíða spenntir eftir fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar Diktu, Trust Me. Hún dettur í hús á föstudaginn en síðasta plata sveitarinnar, Get It Together, náði platínumsölu og vel það.

Tónlist

Hljóðrituðu bestu lögin aftur

„Við ákváðum að fara þessa leið til að samræma hljóminn, Paparnir hljóma allt öðruvísi í dag en þeir gerðu fyrir nokkrum árum,“ segir Matthías Matthíasson, oftast kallaður Matti eða Matti í Pöpunum.

Lífið

Söngveisla í Iðnó

Íslenski sönglistahópurinn kemur fram í Iðnó á degi íslenskrar tungu, næstkomandi miðvikudag. Dagskrá hópsins er tileinkuð ljóðskáldunum Jónasi Hallgrímssyni og Tómasi Guðmundssyni. Á efnisskránni verða lög eins og Dagný, Tondeleió, Enn syngur vornóttin, Fagra veröld, Smávinir fagrir, Sáuð þið hana systur mína, Ég leitaði blárra blóma og fleira í þessum dúr.

Menning

Glóir ekki

Söngfuglinn Jessica Simpson á von á sínu fyrsta barni ásamt unnustu sínum, íþróttakappanum Eric Johnson. Að hennar sögn gengur meðgangan vel en viðurkennir þó að henni fylgi ýmsir leiðinlegir fylgikvillar.

Lífið

Ástin blómstrar hjá Beckham

Victoria Beckham, 37 ára, tók þéttingsfast utan um eiginmann sinn, David, 36 ára, á meðan þau fylgdust með drengjunum sínum spila fótbolta á laugardaginn í Los Angeles. Stúlkan þeirra, Harper, svaf á meðan...

Lífið

Ósátt við Hilton

Chloé Sevigny hefur hannað sína eigin fatalínu sem hún vonar að höfði ekki til fólks eins og Hilton systranna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sevigny reynir fyrir sér sem hönnuður því hún hefur hannað fatalínu í samstarfi við fatamerki Opening Ceremony.

Lífið

Hýsir leikara uppá jökli í 25 fermetra gámahúsum

"Þeir eru aðallega að hugsa um gámahúsin. Ég get sett þau niður hvar sem er og er með hita á þeim þannig að leikararnir geta farið inn og ornað sér þegar þeir eiga stund milli stríða. Og svo er ég búinn að innrétta eldhús í eitt þeirra,“ segir Gísli D. Reynisson, eigandi Mýrdælings, fyrirtækis sem sérhæfir sig í ansi fjölbreytilegum verkefnum í Vík og næsta nágrenni.

Lífið

Tónleikaplötu Sigur Rósar vel tekið

Fyrsta tónleikaplata Sigur Rósar er komin út. Platan hefur hlotið góðar viðtökur gagnrýnenda helstu tónlistartímarita heims. Sigur Rós hefur sent frá sér tónleikapakkann INNI. Í pakkanum má finna tvöfalda tónleikaplötu sem var tekin upp á tónleikum hljómsveitarinnar í Alexöndruhöll í Lundúnum í nóvember árið 2008, þá fyrstu sem hljómsveitin sendir frá sér ásamt mynd eftir Vincent Morisset um sömu tónleika.

Tónlist

Heimsfrægar þrátt fyrir ungan aldur

Systurnar Dakota, 17 ára, og Elle Fanning, 13 ára, eru vinsælar leikkonur í Hollywood þrátt fyrir ungan aldur. Saman prýða þær desemberhefti W tímaritsins eins og sjá má í myndasafni...

Lífið

Rukkar meira

Það hefur ýmsa kosti að vera í sambandi með frægri Hollywood-leikkonu líkt og Justin Theroux, kærasti Jennifer Aniston, hefur komist að. Í hans tilfelli eru kostirnir aukin frægð og hærri tekjur.

Lífið

Hryllingur á hálendinu

Gríðarflott, frumlegt og hyldjúpt skáldverk. Frá fyrstu síðu Hálendisins liggur einhver heimsendastemning yfir öllu og andrúmsloftið er mettað beyg.

Gagnrýni

Fötin lausari eftir jógaáskorun

Fötin eru farin að verða aðeins lausari á manni, segja leikkonurnar Brynja Valdís Gísladóttir og Ingibjörg Reynisdóttir meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði...

Lífið

Nína Dögg ráðin til að leika Nínu Tryggva

„Mér líst rosalega vel á myndina, handritið er æðislegt og þetta er virkilega vel skrifuð og falleg saga hjá honum,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir, sem hefur verið ráðin til að leika listakonuna Nínu Tryggvadóttur í stórmynd Jóns Óttars Ragnarssonar, Kill the Poet. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum munu þau Nick Stahl og Anita Briem leika ljóðskáldið Stein Steinarr og myndlistarkonuna Louisu Matthíasdóttur.

Lífið

Sandler skotinn niður

Nýjasta kvikmynd Adams Sandler, Jack and Jill, hefur verið harðlega gagnrýnd vestanhafs af bandarískum kvikmyndagagnrýnendum en leikarinn hefur ekki alltaf átt góðu gengi að fagna hjá þeim. Nú þykir hann hins vegar hafa náð botninum og er myndinni lýst sem kvikmyndalegum geðhvörfum. Sandler leikur bæði aðalhlutverkin í myndinni, tvíburasystkinin Jack og Jill. Þrátt fyrir að myndin skarti einnig röddum frá Johnny Depp og Al Pacino nægir það ekki til að bjarga Sandler, sem fær því á baukinn hjá bandarísku pressunni.

Lífið