Lífið

Veit kærastinn að þú ert hérna?

Justin Fashanu varð fyrstur og er hingað til sá eini enski atvinnumaður í knattspyrnu til að koma opinberlega út úr skápnum. Hann svipti sig lífi árið 1998.nordicphotos/afp
Justin Fashanu varð fyrstur og er hingað til sá eini enski atvinnumaður í knattspyrnu til að koma opinberlega út úr skápnum. Hann svipti sig lífi árið 1998.nordicphotos/afp
Umræðan um samkynhneigð og íþróttir minnti rækilega á sig í Bretlandi í vikunni í kjölfar átaks leikmannasamtaka ensku deildarinnar til að berjast gegn fordómum og sýningu sjónvarpsþáttar um efnið. Kjartan Guðmundsson kannaði málið.

„Við vinnum að því af öllum mætti að uppræta hómófóbíu. Það er skylda okkar og allir ættu að finna til ábyrgðar gagnvart því verkefni. Við viljum að yfirvöld, félög og stuðningsmenn tileinki sér hugarfarið „og hvað með það?" varðandi samkynhneigð í fótbolta," segir í yfirlýsingu sem leikmannasamtök ensku deildarinnar sendu frá sér í síðustu viku.

Í yfirlýsingunni er greint frá þeim áformum samtakanna að senda öllum 92 félögunum í deildinni plakat og fræðslumynd sem tileinkuð eru baráttunni gegn fordómum gagnvart samkynhneigðum innan íþróttarinnar. Öðrum þræði er herferðinni, sem nýtur meðal annars stuðnings enska knattspyrnusambandsins, ætlað að fullvissa samkynhneigða knattspyrnumenn um að kjósi þeir að koma opinberlega út úr skápnum hljóti þeir stuðning liðs síns, liðsfélaga og almennings.

Brautryðjandinn FashanuUmræðan um samkynhneigð og íþróttir skýtur reglulega upp kollinum í Bretlandi. Hún minnti og rækilega á sig í vikunni vegna yfirlýsingar leikmannasamtakanna, en ekki síður þegar BBC frumsýndi nýjan sjónvarpsþátt um efnið, Britain's Gay Footballers, sem vakti mikla athygli þar í landi.

Í þættinum rifjar fyrirsætan Amal Fashanu, dóttir atvinnumannsins fyrrverandi Johns Fashanu, upp sorgarsögu föðurbróður síns, Justins Fashanu, sem var fyrsti atvinnumaðurinn í knattspyrnu sem kom opinberlega út úr skápnum árið 1990. Justin Fashanu varð einnig fyrsti svarti leikmaðurinn sem var seldur milli félaga fyrir meira en eina milljón punda, þegar Nottingham Forest keypti hann frá Norwich City árið 1981, og þannig brautryðjandi á ýmsum sviðum.

Velgengnin á vellinum endurspeglaðist þó ekki í einkalífi Fashanu. Snemma fóru að berast út sögusagnir um tíðar heimsóknir hans á skemmtistaði ætlaða samkynhneigðum og hlaut leikmaðurinn bágt fyrir hjá liðsfélögum sínum, knattspyrnustjórum (Brian Clough, stjóri Nottingham Forest, kallaði Fashanu opinberlega „poof", skammaryrði yfir homma, eftir að sá síðarnefndi kom út úr skápnum) og áhorfendum sem jusu yfir hann svívirðingum við hvert tækifæri.

Sjálfstraustið dvínaði með hverju árinu og náði Fashanu aldrei sínu fyrra formi. Hann gerði opinberlega grein fyrir samkynhneigð sinni í viðtali við slúðurblaðið The Sun árið 1990 og í kjölfarið afneitaði bróðir hans, John Fashanu sem lék meðal annars með Wimbledon á gifturíkum ferli, honum í fjölmiðlum.

Eftir að hafa þvælst á milli liða í Evrópu og Bandaríkjunum lagði Fashanu skóna á hilluna árið 1997. Ári síðar var hann kærður fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára gömlum dreng í Bandaríkjunum og framdi í kjölfarið sjálfsmorð í London. Í kveðjubréfi sínu hélt hann fram sakleysi sínu, en síðar kom í ljós að rannsókn málsins hafði þegar verið hætt vegna skorts á sönnunargögnum.

Hvers vegna engir fleiri?Fram til þessa dags er Justin Fashanu eini atvinnufótboltamaðurinn í Bretlandi sem komið hefur út úr skápnum, í það minnsta meðan á sjálfum knattspyrnuferlinum stendur. Slíkt er ólíkt algengra meðal knattspyrnukvenna, en ekki virðist miklu púðri hafa verið eytt í að kanna ástæður þess misræmis.

Undirliggjandi í sjónvarpsþætti Amal Fashanu á BBC er spurningin hvers vegna fleiri hafi ekki fylgt í fótspor frænda hennar og komið út úr skápnum, þar sem almennur líkindareikningur geri ráð fyrir að samkynhneigðir knattspyrnumenn hljóti að vera allnokkrir talsins. Svaranna leitar Fashanu í heimsóknum á fótboltavelli og samræðum við leikmenn, sem og aðra sem starfa innan geirans, og virðast ansi skiptar skoðanir um ástandið í dag.

Fashanu ferðast meðal annars til Brighton, sem stundum er nefnd höfuðborg samkynhneigðra í Bretlandi, sækir leik með Brighton Hove & Albion og spjallar við aðdáendur liðsins. Þar heyrir hún stuðningsmenn mótherjanna einbeita sér að tengingu borgarinnar við samkynhneigð í söngvum sínum og fræðist um að þannig sé það á hverjum einsta leik. „Does your boyfriend know you're here?" og „Stand up if you can't sit down" er meðal þess sem þeir kyrja, en stuðningsmenn Brighton svara með „You're too ugly to be gay".

Þá veltir ungur stuðningsmaður Brighton því upp hvort ekki ætti að gera fordóma gegn samkynhneigð á fótboltavöllum ólöglega rétt eins og kynþáttafordóma, en málaferli vegna hinna síðarnefndu hafa verið einkar áberandi í Englandi síðustu vikur og mánuði.

Joey Barton hrósaðÍ sama streng tekur fyrrum NBA-leikmaðurinn John Amaechi, sem einnig er breskur og vikið er að nánar hér á síðunni, og segir að ensk knattspyrnuyfirvöld gætu hæglega náð mun betri árangri í baráttunni við þessa fordóma en verið hefur. Peningarnir séu vissulega til staðar, og í ótrúlega miklu magni, en svo virðist sem enginn raunverulegur áhugi sé á að tækla vandamálið. Í framhaldi af því má velta fyrir sér hvort það að senda plaköt og DVD-myndir til félaganna í deildinni, eins og minnst var á í upphafi, endurspegli í raun einbeittan vilja til árangurs í þessum efnum.

Amal Fashanu segist í þættinum handviss um að þátttaka vinsælla leikmanna, sem margir hverjir eru fyrirmyndir ungs fólks um allan heim, í hvers kyns baráttu gegn slíkum fordómum myndi skila sér margfalt til baka. Hún hafði samband við marga af þekkstustu leikmönnum deildarinnar, meðal annarra þá John Terry, Rio Ferdinand, Frank Lampard og Theo Walcott, en enginn þeirra gaf kost á sér í viðtal fyrir þáttinn.

Eini úrvalsdeildarleikmaðurinn sem sem vildi, eða hafði tíma til, að ræða opinskátt um samkynhneigð í enska boltanum er Joey Barton, leikmaður QPR, sem oftar en ekki hefur komist í fréttir vegna skapofsa á vellinum og utan hans. Hefur Barton verið hrósað mjög í fjölmiðlum ytra fyrir þátttöku sína í þættinum, en þar ræðir hann meðal annars um frænda sinn sem er samkynhneigður og stemninguna í búningsherbergjum fótboltamanna, þar sem nánast virðist bannað að ræða um annað en stelpur, bíla og, jú, fótbolta.

Fyrsti NBA-leikmaðurinn til að koma út úr skápnum
John Amaechi.
Englendingurinn John Amaechi komst á spjöld sögunnar þegar hann skoraði fyrstu stig nýrrar aldar í NBA-deildinni. Öllu meiri athygli vakti þó sjálfsævisaga hans, Man in the Middle sem hann gaf út árið 2007, nokkrum árum eftir að hann lagði skóna á hilluna, en í henni kom Amaechi út úr skápnum og varð þannig fyrsti NBA-leikmaðurinn til að ræða samkynhneigð sína opinberlega.

Á ferlinum lék Amaechi meðal annars með Orlando Magic og Utah Jazz. Í bókinni ræðir Amaechi um þá innri baráttu sem hann átti í öll þau fimmtán ár sem hann lék körfubolta, hvernig hann hugsaði stöðugt um að koma út úr skápnum en gat ekki hugsað sér það vegna þess öfga-karlmennskuandrúmslofts sem ríkti í kringum íþróttina, og í raun flestar aðrar íþróttir. Í stað þess lifði Amaechi tvöföldu lífi, ferðaðist milli borga til að sækja skemmtistaði sem vinsælir voru meðal samkynhneigðra og lifði sínu ástalífi í felum. Jafnvel umboðsmaðurinn hans vissi ekki um samkynhneigðina fyrr en þeir höfðu unnið saman í dágóðan tíma.

„Það var ekki fyrr en hann kom heim til mín og heyrði óminn af rödd Karen Carpenter í gegnum útidyrahurðina sem hann grunaði eitthvað. Svo sá hann regnbogalitaða handklæðið mitt á baðherberginu og þá varð hann alveg viss," segir Amaechi í bók sinni. „Hann sagði mér að ég hlyti að vera eini íþróttakappinn í sögunni sem þurrkaði sér með handklæði í regnbogalitum og raulaði með laginu „We've Only Just Begun."

Viðbrögðin við bók Amaechi voru mikil og blendin. Leikmaðurinn Tim Hardaway sagðist til dæmis aðspurður „hata homma", en Shaquille O'Neal og Grant Hill studdu ákvörðun Amaechis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.