Lífið
Tónsmíðakeppnin Demó yfirstaðin Demó, tónsmíðakeppni okkar Verzlinga, var haldin með glæsibrag fimmtudaginn 21. janúar síðastliðinn. Í ár stigu tólf atriði á stokk og það heyrðist greinilega að mikið er af hæfileikaríkum lagasmiðum í Verzló. Það voru drengirnir í Molotov Cocktail Party sem báru sigur úr býtum með lagið Sky High. Hljómsveitina skipa þeir Arnar Kári Axelsson, Sævar Már Óskarsson, Sindri Snær Harðarson og Dagur Sigurðsson. Lífið 27.1.2010 22:41
Íslendingar gera allt vitlaust í Danmörku „Þessi skemmtilegi siður sem fylgir þorra er árlegur viðburður hjá Íslendingafélögum hér í Danmörku," segir Hrafnhildur og heldur áfram: Lífið 27.1.2010 17:00
Bólu-Hjálmar í Þjóðleikhúsinu Í kvöld og annað kvöld sýnir Stoppleikhópurinn verðlaunaleikritið Bólu-Hjálmar í Þjóðleikhúsinu. Aðeins er um þessar tvær sýningar að ræða. Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem Barna- og unglingaleiksýning ársins 2009. Lífið 27.1.2010 06:00
Syngja fyrir íbúa Haítí Tónleikar til styrktar hjálparstarfi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Unicef, á Haítí verða haldnir á Sódómu Reykjavík á fimmtudagskvöld klukkan 20.30. Þar koma fram Mugison, Bloodgroup, Kimono, Morðingjarnir, Ourlives, 13 og Retro Stefson dj"s. Miðaverð er 1.000 krónur og rennur allur ágóðinn til Unicef. Einnig verður tekið á móti frjálsum framlögum á síðunni Unicef.is og á tónleikunum sjálfum. Lífið 27.1.2010 05:45
Misskilningur á úrslitakvöldi Rokksveitin Endless Dark bar sigur úr býtum í hljómsveitakeppninni Global Battle of the Bands sem var haldin um síðustu helgi. Hljómsveitin verður fulltrúi Íslands í lokakeppninni sem verður haldin í London 27. apríl. Lífið 27.1.2010 05:30
Leikstýrði auglýsingu fyrir bandaríska sjóherinn „Þetta er náttúrlega mjög skemmtilegt,“ segir Egill Örn Egilsson, kvikmyndatökumaður og leikstjóri, sem búsettur hefur verið í Hollywood undanfarin ár. Hann er tilnefndur fyrir bestu kvikmyndatöku í sjónvarpsþáttunum Dark Blue hjá American Society of Cinematographers eða samtökum bandarískra kvikmyndatökumanna. Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem Egill er tilnefndur til þessara verðlauna en í hin tvö skiptin var Egill tilnefndur fyrir tökurnar í spennuþáttunum CSI:Miami. Lífið 27.1.2010 05:00
Hlegið að eigin raunum Leikritið Góðir Íslendingar var frumsýnt í Borgarleikhúsinu fyrir skömmu. Fjöldi þekktra einstaklinga mætti á frumsýninguna, þar sem kreppan er helsta umfjöllunarefnið. Lífið 27.1.2010 04:00
Fólkið valdi Rebekku „Þetta er rosalega spennandi og ég bjóst ekki við að vinna. Ég var mjög hissa þegar það var hringt í mig,“ segir listamaðurinn Rebekka Guðleifsdóttir. Lífið 27.1.2010 03:00
Mozart á Kjarvalsstöðum Annað kvöld verða haldnir Mozart-tónleikar á Kjarvalsstöðum í tilefni af fæðingardegi tónskáldsins. Hann fæddist 27. janúar árið 1756 og lést 5. desember 1791, 35 ára að aldri. Lífið 27.1.2010 02:30
Dexter á batavegi Leikarinn Michael C. Hall, sem fer með hlutverk Dexters í samnefndum sjónvarpsþáttum, hlaut nýverið bæði Golden Globe- og SAG-verðlaun fyrir leik sinn í þáttunum. Stuttu fyrir Golden Globe-verðlaunaafhendinguna tilkynnti leikarinn opinberlega að hann hefði greinst með eitilfrumukrabbamein, en að batahorfur væru góðar. Lífið 27.1.2010 02:00
Íslenskar Playboykanínur - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá rammíslenskar Playboykanínur sem skemmtu sér á Club 101 um helgina. Þá má líka sjá að gríðarleg stemning var einnig á Hressó, Jacobsen og Kaffi Zimsen. Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari. Superman.is Lífið 26.1.2010 09:30
Eddunni frestað fram í febrúar Eddu-verðlaunahátíðinni sem átti að halda í lok janúar hefur verið frestað fram í febrúar. Ástæðan er ákvörðun Sjónvarpsins um að hætta við að sýna beint frá henni vegna niðurskurðar. Lífið 26.1.2010 06:00
Föst í ástarþríhyrningi í virtu leikhúsi í London „Það er ástarþríhyrningur í gangi. Minn karakter og aðalgaurinn Edgar eru gift, en búa ekki saman lengur og hún á í ástarsambandi við lækninn hans,“ segir leikkonan María Dalberg. Lífið 26.1.2010 05:00
The Hurt Locker sigurvegari Kvikmyndin The Hurt Locker var kjörin besta myndin á verðlaunahátíð Samtaka framleiðenda í Bandaríkjunum. Sex af síðustu níu kvikmyndunum sem sigruðu á hátíðinni hafa í framhaldinu fengið Óskarsverðlaunin sem besta myndin. Lífið 26.1.2010 04:00
Gerir auglýsingu með íþróttastjörnum Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður hefur verið á ferð og flugi undanfarnar vikur en hann hefur verið að taka upp auglýsingar á Miami og í New York. Þegar Fréttablaðið náði tali af honum var hann hins vegar kominn til Mílanó og var að fara að taka upp auglýsingu með mörgum af skærustu íþróttastjörnum landsins. Lífið 26.1.2010 04:00
Geiri sextugur Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger, er sextugur í dag. Vísir hafði samband og óskaði honum til hamingju með daginn og forvitnaðist um leið út í veisluhöld. Lífið 25.1.2010 14:30
Dúndurgellur í Hafnarfirði - myndir Eins og meðfylgjandi myndir sýna var troðfullt út úr dyrum í kosningagleði Rósu Guðbjartsdóttur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði á föstudaginn síðasta. Sigríður Klingenberg, sem er mikil stuðningskona Rósu, blés viðstöddum hinn eina sanna baráttuanda í brjóst og gaf gestum náttúrusteina - sigursteina Rósu. „Ég var að hjálpa henni Rósu," svarar Sigríður aðspurð hvað hún töfraði fram umrætt kvöld og segir: Lífið 25.1.2010 10:30
Guðbörg sigraði Söngkeppni Skólafélagsins 2010 Söngkeppni Menntaskólans í Reykjavík var haldin í gær á vegum Skólafélagsins í Loftkastalanum. Mikið var í keppnina lagt enda mikil skipulagsvinna sem liggur að baki svona keppni. Umsjón með keppninni höfðu fjórar stelpur í skemmtinefnd og stóðu þær sig með miklum sóma. Þær eru: Anna Jia, Helga Þórunn Óttarsdóttir, Steinunn Kristín Jóhannsdóttir og Telma Geirsdóttir. Lífið 23.1.2010 17:21
Þráinn selur Fischersundið „Þetta er bara ákvörðun sem við höfum dregið mjög lengi en gátum ekki beðið með. Konan mín er með Parkinson-sjúkdóminn og svo erum við víst bæði að verða eldri," segir Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður og rithöfundur, en hann hefur sett hið sögufræga hús sitt við Fischersund 3 á sölu. Húsið er á þremur hæðum og er rúmir 250 fermetrar. Samkvæmt fasteignalýsingu var það byggt 1874 og stækkað árið eftir. Árið 2004 voru síðan gerðar miklar endurbætur á húsinu og heppnuðust þær það vel að Reykjavíkurborg veitti því sérstaka viðurkenningu fyrir vel heppnaða endurbyggingu á gömlu húsi með menningarsögulegt gildi. Lífið 23.1.2010 06:00
Fylgdi eftir manni götunnar Frosti Jón Runólfsson, nemi við Kvikmyndaskóla Íslands, gerði stuttmynd um æskuvin sinn sem hefur að mestu búið á götunni undanfarin ár. Myndin verður væntanlega frumsýnd á Skjaldborg á þessu ári. Lífið 23.1.2010 06:00
Lokaskammturinn kynntur Í kvöld er komið að síðustu fimm lögunum í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Tvö þeirra komast í lokakeppnina 6. febrúar. Þrír karlar og tvær söngkonur verða á sviðinu, tvö lög eru á íslensku og þrjú á ensku. Lífið 23.1.2010 05:30
Titlar sig fyrirsætu vegna sjónvarpsmannsins Egils „Það var alltaf verið að angra mig. Eftir hrunið þá var hringt í mig nánast tíu sinnum á dag. Fólk var að leita að Agli Helgasyni, alveg kolgeggjað,“ segir Egill Kári Helgason, nafni sjónvarpsmannsins þekkta og sonar hans Kára. Vegna áreitisins þurfti Egill Kári að setja starfsheitið módel aftan við nafnið sitt í símaskránni til að fæla æstan almúgann frá. „Ég hringdi í símaskrána og bað um að titla mig eitthvað sem tengdist Agli Helgasyni ekki neitt. Mér datt þetta nú í hug sjálfur en þær aðstoðuðu mig með þetta.“ Lífið 23.1.2010 05:00
Handrit Hellisbúans fer í hring Leikararnir Jóhannes Haukur Jóhannesson og Rúnar Freyr Gíslason hafa síðan um jólin setið sveittir við að þýða íslensku útgáfuna af Hellisbúanum yfir á ensku. Rétthafi verksins, Theater Mogul, óskaði eftir því að fá enska útgáfu af íslensku leikgerðinni en hún verður hugsanlega notuð þegar verkið verður sett upp í New York og París. Lífið 23.1.2010 04:45
Kysstust og drukku vín Jennifer Aniston og Gerard Butler mættu ein síns liðs á Golden Globe-hátíðina um helgina en að sögn sjónarvotta héldu þau hvort öðru félagsskap meðan á hátíðinni stóð. Þau Butler léku saman í kvikmyndinni The Bounty Hunter sem frumsýnd var í Bandaríkjunum stuttu fyrir jól. Lífið 23.1.2010 04:30
Tengja hnakka og venjulegt fólk „Við erum týndi hlekkurinn á milli hnakkanna og venjulegs fólks. Atli er náttúrlega hnakki frá helvíti. Þetta er Ebony and Ivory-pæling,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson. Lífið 23.1.2010 04:00
Hlífir sér við gjörningastússi Fyrirsæta Ragnars Kjartanssonar á Feneyjatvíæringnum - „Sundskýlumaðurinn frá Feneyjum" - var listamaðurinn Páll Haukur Björnsson. Í dag kl. 14 er opnun sýningar hans, Grár er ekki ástand en takk fyrir afnotin af sófanum, í Listasal Mosfellsbæjar. Lífið 23.1.2010 03:45
Sýnt fráHaítí-söfnun Alþjóðleg sjónvarpssöfnun fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí, sem var haldin í nótt í London, Los Angeles og New York, verður sýnd á Stöð 2 Extra í kvöld. Lífið 23.1.2010 03:00
Spears talar með hreim Söngkonan Britney Spears tók nýlega upp á því að tala með breskum hreim. Þeir sem þekkja til segja söngkonuna vera mikinn aðdáanda teiknimyndaþáttanna um Family Guy og að Britney sé að herma eftir hreimi hins barnunga Stewie úr þáttunum. Lífið 23.1.2010 02:00
Kominn í meðferð Tiger Woods skráði sig meðferð á meðferðarstofnunina Pine Grove Behavioral Health and Addiction Services í Hattiesburg fyrir viku. Lítið hefur sést til kylfingsins frá því að upp komst um framhjáhöld hans í lok síðasta árs. Rithöfundurinn Beniot Denizet-Lewis hélt því fram í sjónvarpsþætti að kylfingurinn væri að leita sér aðstoðar vegna kynlífsfíknar, en það hefur ekki fengist staðfest. Starfsmenn Pine Grove eru bundnir þagnareið og því hefur fjölmiðlum reynst erfitt að fá nokkrar upplýsingar um heilsu Woods. Lífið 23.1.2010 02:00
Mammút og vinir Hljómsveitin Mammút heldur tónleika á Grand rokki í kvöld klukkan 21. 1.000 krónur kostar inn á tónleikana og samkvæmt tilkynningu hefur hljómsveitin fengið til liðs við sig framtíð Íslands í tónlist. Ásamt Mammút koma fram hljómsveitirnar Agent Fresco, Sykur, sem gaf út plötuna Frábært eða frábært í fyrra, Rökkurró, sem gefur út plötu á næstunni, Muck, sem er ein bjartasta vonin í íslensku þungarokki og delta-blúsarinn Johnny Stronghands. Mammút er að hefja vinnu að nýrri plötu á næstunni, en útgáfudagur er óljós. - afb Lífið 23.1.2010 01:00