Lokaskammturinn kynntur 23. janúar 2010 05:30 KeppenduR kvöldsins Steinarr Logi Nesheim, Hera Björk Þórhallsdóttir, Sigurjón Brink, Anna Hlín og Arnar Jónsson.
Í kvöld er komið að síðustu fimm lögunum í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Tvö þeirra komast í lokakeppnina 6. febrúar. Þrír karlar og tvær söngkonur verða á sviðinu, tvö lög eru á íslensku og þrjú á ensku. Hera Björk var nálægt því að syngja fyrir Dani í fyrra en reynir nú að verða fulltrúi Íslands með laginu „Je ne sais quoi“. Hún semur það með Örlygi Smára, sem þegar hefur gert það gott í Eurovision, samdi sem kunnugt er lag Eurobandsins 2007. Lag þeirra ber höfundunum fagurt vitni, er þróttmikið euro-diskó með kröftugum dívusöng, hækkun á hárréttum stað og sprengingu í endann. Annað lagið sem Sigurjón Brink syngur í keppninni í ár heitir „Waterslide“ og er eftir hann sjálfan. Sjonni var áður í rokkböndunum In bloom og Flavors og er einn af stofnendum Vesturports. Hann gaf út fyrstu sólóplötuna sína í fyrra og vinnur nú sem tónlistarmaður og útvarpsmaður á Bylgjunni. Lagið hans í kvöld er afslappað banjóknúið sólskinspopp með la-la-la-kafla. Steinarr Logi Nesheim var söngvari í Dead Sea Apple og Kúng Fú en vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem er væntanleg í ár. Lagið sem hann syngur í kvöld er frumsamið og heitir „Every word“. Þetta er gallabuxnapopp í amerískum stíl með texta um afleiðingar eineltis. Poppsöngvarinn Arnar Jónsson syngur lag eftir augnlækninn Jóhannes Kára Kristinsson. Jóhannes samdi lagið „You Knocked Upon My Door“ sem Sigurjón Brink söng á fyrsta undanúrslitakvöldinu. Lagið sem Arnar syngur, „Þúsund stjörnur“, er hreinræktuð poppballaða og hefði næstum því getað verið í Eurovisionkeppninni 1970. Geðlæknirinn Grétar Sigurbergsson semur lagið „Komdu á morgun til mín“, djassaða ballöðu sem Anna Hlín syngur. Anna varð í öðru sæti í Idol-stjörnuleit í fyrra. Grétar fór að semja lög – algjörlega óvart að eigin sögn – árið 1999 og hefur áður átt þrjú lög í úrslitakeppnum Söngvakeppni Sjónvarpsins. Lögin fjögur sem eru komin í úrslit eru „Out of sight“ með Matta Papa, „The One“ með Írisi Hólm, „Gleði og glens“ með Hvanndalsbræðrum og „One more day“ með Jógvan. Spennandi verður að sjá hvaða tvö lög bætast við þennan hóp í kvöld. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Leikstjórinn James Foley er látinn Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Fleiri fréttir Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Sjá meira