Lífið

Syngja fyrir íbúa Haítí

Mugison spilar á styrktartónleikunum á Sódómu.
fréttablaðið/vilhelm
Mugison spilar á styrktartónleikunum á Sódómu. fréttablaðið/vilhelm

Tónleikar til styrktar hjálparstarfi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Unicef, á Haítí verða haldnir á Sódómu Reykjavík á fimmtudagskvöld klukkan 20.30. Þar koma fram Mugison, Bloodgroup, Kimono, Morðingjarnir, Ourlives, 13 og Retro Stefson dj"s. Miðaverð er 1.000 krónur og rennur allur ágóðinn til Unicef. Einnig verður tekið á móti frjálsum framlögum á síðunni Unicef.is og á tónleikunum sjálfum.

Aðgerðir Sameinuðu þjóðanna á Haítí eru þær umsvifamestu í sögu samtakanna og er það lýsandi fyrir þá miklu neyð sem ríkir í landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.