Innlent

„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“

Tónlistarmaðurinn og íslenskufræðingurinn Bragi Valdimar Skúlason gagnrýnir metnaðarleysi við hönnun límmiða frá lögreglunni sem dreift hafi verið til grunnskólabarna. Fyrir löngu sé búið að „færa metnaðarstikuna undir slormörk þegar kemur að hönnun og prófarkalestri.“

Innlent

Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af

Maður sem er grunaður um að skjóta annan mann í höndina á heimili síðarnefnda mannsins í Kópavogi í vor vildi í fyrstu meina að fjórir arabískir menn sem hefðu selt þeim sveppi hafi verið að verki. Síðan breytti hann framburði sínum og sagði að um slys hafi verið að ræða.

Innlent

Þriðjungur borgar­búa vill skipta um ferða­máta

Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu.

Innlent

„Hverjir tala við mömmu mína?“

Samhæfingastjóri Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu segir að hægt hefði verið að gera miklu betur miklu fyrr hvað varðar nemendur af erlendum uppruna í skólakerfinu. Allir geti lagt eitthvað af mörkum þegar tekið sé á móti þessum hópi inn í samfélagið.

Innlent

Tvær þyrlur út á ystu nöf lög­sögunnar

Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar eru nú í útkalli sem felst í að sækja veikan skipverja á erlendu þjónustuskipi sem statt er út á ystu nöfum efnahagslögsögu Íslands, í um tvö hundruð sjómílna fjarlægð frá landi. Ástæða þess að tvær þyrlur halda út er fjarlægðin.

Innlent

Sökk í þriðja sinn í höfninni

Báturinn Jökull sökk í nótt í Hafnarfjarðarhöfn. Þetta er í þriðja skiptið sem báturinn sekkur í höfninni. Að sögn stjórnarmanns hafnarinnar stóð til að fjarlæga bátinn úr höfninni á næstu dögum.

Innlent

„Nú er þessi sleggja að koma fram“

Hækkanir ríkisins á gjaldskrám gætu orðið minni en kom fram í fjárlagafrumvarpi ef þríhliða kjaraviðræður við aðila vinnumarkaðarins ganga vel. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á Sprengisandi í morgun og þá sagðist hún gefa lítið fyrir þá nálgun að hækkun kílómetragjalds kæmi sérstaklega illa við íbúa á landsbyggðinni.

Innlent

Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr

Hertar reglur um aðgengi í sundlaugar í Reykjavík tóku gildi með breyttri gjaldskrá í maí. Sundlaugagestur sem gleymdi sundkorti þurfti frá að hverfa þar sem ekki dugir lengur að gefa upp kennitölu í afgreiðslunni.

Innlent

Krist­rún ræðir málin á Sprengi­sandi

Á Sprengisandi í dag verður Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, í ítarlegu viðtali um stjórnmálaástandið núna þegar ríkisstjórnin er að verða hálfnuð með starfstíma sinn.

Innlent

Óttast að fjár­magn til náms­gagna rati ekki rétta leið

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra tilkynnti fyrr í vikunni að til þess að bregðast við slæmum niðurstöðum PISA-könnunarinnar ætti að verja 445 milljónum í námsgagnagerð. Námsgagnaskortur hefur síðustu mánuði verið mikið gagnrýndur. Sérfræðingur segir það geta skipt sköpum fyrir kennara og íslenskt menntakerfi hvernig þessu fjármagni verður varið og hvert það fer.

Innlent

Óttast að um­ræðan muni dragast fram á sumar

Atvinnuvegaráðherra hyggst í febrúar leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar þar sem sérstaklega verður litið til sjónarmiða um bann til frambúðar. Formaður Hvalavina hefði viljað sjá frumvarpið fyrr á dagskrá enda megi búast við mikilli umræðu en fagnar þó málinu.

Innlent

Fékk nóg og er hættur á Facebook

Jón Frímann Jónsson sem haslað hefur sér völl með skeleggum skrifum um jarðhræringar á samfélagsmiðlinum Facebook hefur ákveðið að segja skilið við miðilinn. Hann segir fréttir af gervigreind og auglýsingasölu fyrirtækisins þar sem kynferðisofbeldi gegn börnum bregði fyrir sé um að kenna. Jón vonar að lesendur muni fylgja honum yfir á nýja samfélagsmiðla.

Innlent

Guð­mundur Ari í vara­for­manninn

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns flokksins. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook en Guðmundur Árni Stefánsson tilkynnti að loknum sveitastjórnarkosningum að hann myndi hætta sem varaformaður á haustdögum.

Innlent

Flug­virkjar hafi þegar fengið hækkanir

Forstjóri Icelandair segir að ef flugvirkjar samþykki að fara í verkfall hafi það verulega alvarlegar afleiðingar fyrir félagið sem nú þegar glími við krefjandi aðstæður. Hann segir að þó samningur flugvirkja sé sex ára gamall hafi komið til hækkanir á samningstímabilinu í takt við þróun á almennum vinnumarkaði.

Innlent

„Þetta er full­komið á­fall“

Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum.

Innlent

Þrír kærðir fyrir líkams­á­rásir

Tveir ökumenn voru handteknir fyrir fíkniefnaakstur í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sér um Kópavog og Breiðholt, í gærkvöldi eða gærnótt. Annar þessara tveggja er einnig grunaður um söludreifingu fíkniefna, peningaþvætti og brot á útlendingalögum.

Innlent

„Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“

Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, segir ekki nóg gert til að verja embættismenn fyrir hótunum og ofbeldi. Hann telur að Mohamad Th. Jóhannesson, áður Kourani, geti komist aftur til landsins þrátt fyrir endurkomubann en efast um að hann hafi áhuga á því. 

Innlent