Erlent

Svarnir andstæðingar sóru embættiseiða

Heimastjórn tók til starfa á ný á Norður-Írlandi í morgun þegar svarnir andstæðingar sóru eiða í Stormont kastala. Tæp fimm ár eru frá því að heimastjórnin var aflögð vegna njósnahneykslis og málefni Norður-Íra færð í hendur ráðherra í Lundúnum.

Erlent

Fyrstu myndirnar af nýrri prinsessu birtar í Danmörku

Danska konungsfjölskyldan birti í morgun fyrstu opinberu myndirnar af nýfæddri prinsessu þeirra Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu. Þær sýna meðal annars að stúlkan, sem fæddist þann 21. apríl, er hárprúð og virðist þegar hafa lært að brosa til ljósmyndara.

Erlent

Sautján ára stúlka grýtt í hel

Sautján ára kúrdisk stúlka var grýtt í hel í Írak í síðasta mánuði fyrir að verða ástfangin af jafnaldra sínum af öðrum trúflokki. Mikill fjöldi karlmanna tók þátt í ódæðinu, sem ættingjar hennar áttu frumkvæði að. Lögreglumenn fylgdust með, en aðhöfðust ekkert. Myndir af morðinu hafa nú verið settar út á netið.

Erlent

Velferð barna og kvenna einna mest hér á landi

Ísland er í öðru sæti á lista Barnaheilla, Save the Children, yfir þau lönd þar sem velferð kvenna og barna er mest í heiminum. Í árlegri skýrslu samtakanna er birtur listi yfir þau lönd þar sem konur og börn hafa það best og skipa Svíar, Íslendingar og Norðmenn efstu þrjú sætin.

Erlent

Halldór Ásgrímsson sækir Eista heim

Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, er nú staddur í Eistlandi. Heimsóknin er liður í því að leggja áherslu á mikilvægi áframhaldandi samstarfs milli Eystrasaltsríkjanna og Norðurlanda.

Erlent

Göran Persson almannatengill

Göran Persson fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar hefur fengið nýtt starf sem almannatengill. Hann mun hefja störf hjá almannatengslaskrifstofunni JKL hinn fyrsta ágúst næstkomandi. JKL mun vera ein af stærstu stofum Norðurlanda á þessu sviði.

Erlent

Blair fagnar heimastjórn -iðrast einskis

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands, sagði í tilefni hinnar nýju heimastjórnar á Norður-Írlandi, að hann sæi ekki eftir því sem hann hefði gert til þess að koma henni á. Hann vissi vel að til væri fólk sem þærri hann hafa gengið of langt í málamiðlunum. Málamiðlanir væru hinsvegar stundum nauðsynlegur hluti af stjórnmálaferli.

Erlent

Wolfowitz braut reglur

Það hitnar enn í kolunum undir Paul Wolfowitz, forseta Alþjóðabankans sem sakaður er um að hygla kærustu sinni í starfi. Rannsóknarnefnd á vegum bankans hefur komist að þeirri niðurstöðu að forsetinn hafi gerst sekur um hagsmunaárekstur og að hann hafi brotið reglur bankans.

Erlent

Grafhýsi Heródesar fundið

Ísraelskur fornleifafræðingur hjá Hebreska háskólanum í Jerúsalem segist hafa fundið gröf Heródesar konungs. Grafhýsið er á hæð sunnan við Jerúsalem en konungurinn lét byggja borgina á sínum tíma.

Erlent

Björgunarbúnaðurinn er í Írak

Björgunar- og hreinsunarstörf í kjölfar stormsveipanna sem gengu yfir Kansas og urðu ellefu manns að bana ganga illa, vegna þess að björgunarbúnaðurinn er í Írak. Þetta fullyrðir Kathleen Sebelius, ríkisstjóri í Kansas.

Erlent

Sarkozy fékk umboð til umbóta

Nicolas Sarkozy, verðandi forseti Frakklands, ætlar sér engan tíma að missa í að hrinda í framkvæmd metnaðarfullum umbótum í anda markaðshyggju og baráttu gegn glæpum, en fyrsti slagurinn sem hann þarf að taka eftir að hann tekur við embætti hinn 16. maí er að berjast fyrir sigri flokks síns í þingkosningum í júní.

Erlent

Þakkaði stuðninginn

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, tók á móti Elísabetu Englandsdrottningu í gær með mikilli viðhöfn við Hvíta húsið í Washington.

Erlent

Enginn komst lífs af

Enginn þeirra 114 manna sem voru í kenýsku farþegaþotunni sem hrapaði í skógi í Kamerún á föstudag komst lífs af. Þetta fullyrti Luc Ndjodo, fulltrúi þarlendra yfirvalda, eftir að hafa kannað vettvang slyssins. Aðspurður sagðist hann ekki hafa séð neina á lífi. „Nei,“ svaraði hann. „Ég var þarna. Ég sá engan.“

Erlent

Með spjald sem sagði þá þjófa

Tveir búðarhnuplarar fengu óvenjulegan dóm á dögunum fyrir að stela úr búðinni Wal-Mart í bænum Attalla í Alabama. Þeir voru dæmdir til að standa fyrir utan búðina í fjórar klukkustundir tvo laugardaga í röð með spjöld þar sem á stóð: „Ég er þjófur, ég stal úr Wal-Mart“, eða sitja að öðrum kosti í fangelsi í 60 daga.

Erlent

Christian Klar ekki náðaður

Horst Köhler, forseti Þýskalands, hefur synjað náðunarbeiðni Christians Klar, fyrrverandi forsprakka hryðjuverkahópsins Rauðu herdeildarinnar. Klar er 54 ára og hefur setið í fangelsi í 24 ár. Hann var dæmdur í sexfalt lífstíðarfangelsi fyrir aðild að mörgum alræmdustu morðum samtakanna.

Erlent

Grátbiður stúlkunni vægðar

Ekkert hefur enn spurst til Madeleine McCann, þriggja ára gamallar breskrar stúlku sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal á fimmtudagskvöld. Talið er að stúlkunni hafi verið rænt og grátbað móðir hennar ræningjana að meiða hana hvorki né hræða í átakanlegu ákalli sem sjónvarpað var í Portúgal í gær.

Erlent

Krárnar finna fyrir samdrætti

Sala á áfengi hefur dregist saman um ellefu prósent síðan reykingabann var sett á skoskum krám fyrir tæpu ári. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar þarlends sambands vínveitingamanna. Starfsfólki hefur verið fækkað á þriðjungi kránna á sama tíma.

Erlent

Stærsta sprengistjarna sem sést hefur

Risastór sprengistjarna, sem er sú bjartasta sem vísindamenn hafa nokkru sinni séð, hefur leitt til þess að vísindamenn velta nú fyrir sér hvort að möguleiki sé á því að slík stjarna eigi eftir að sjást mun nær jörðu á næstunni. Vísindamenn hjá NASA skýrðu frá því í dag að þeir hefðu séð sprengistjörnuna. Fyrst var tekið eftir henni síðastliðið haust og hafa þeir fylgst með henni síðan.

Erlent

Yfir 20 létu lífið í Ramadi í Írak í dag

Tvær sjálfsmorðssprengingar urðu að minnsta kosti 20 manns að bana og særðu yfir 40 nálægt borginni Ramadi í Írak í dag. Fyrri árásin átti sér stað á markaði og sú seinni í nánd við varðstöð lögreglu.

Erlent

Zille segir flokk sinn ekki of hvítan

Nýkjörinn leiðtogi Bandalags demókrata í Suður-Afríku, Helen Zille, neitaði því í dag flokkur hennar sé of hvítur og of miðstéttarsinnaður. Zille, sem er borgarstjóri í Höfðaborg, sagði að minnsta kosti helmingur þeirra sem kusu hana sem leiðtoga í gær hefðu ekki verið hvítir. Hún segir ásakanirnar vera áróður ANC flokksins, sem er við völd í Suður-Afríku.

Erlent

Hermann fallinn í fjórða sinn

Charlton féll í kvöld úr ensku úrvalsdeildinni eftir 2-0 tap gegn Tottenham á heimavelli sínum. Hermann Hreiðarsson var í liði Charlton í kvöld og þarf nú að bíta í það súra epli að falla úr efstu deild á Englandi í fjórða sinn á ferlinum. Dimitar Berbatov kom gestunum yfir í byrjun leiks og Jermain Defoe innsiglaði sigurinn á lokamínútunum. Þessi úrslit þýða jafnframt að Fulham er öruggt með að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.

Erlent

592 handteknir vegna mótmæla í Frakklandi

Franska lögreglan handtók alls 592 einstaklinga um land allt vegna mótmæla í gær. Mótmælin voru vegna sigurs Sarkozy í frönsku forsetakosningunum. Lögreglan sagði einnig að kveikt hefði verið í 730 bifreiðum og að 28 lögregluþjónar hefðu slasast í átökum við mótmælendur. Lögreglan beitt táragasi í átökunum. Barist var í París, Toulouse, Marseille og Lyon.

Erlent

Væntanlegar keppnisgreinar á Vetrarólympíuleikum sýndar

Ein af keppnisgreinum á vetrarólympíuleikunum árið 2008 verður vængflug svokallað (e. wingsuit flying). Keppendur eru þá í sérgerðum búningi sem gerir þeim mögulegt að svífa um loftin blá og ná allt að 100 kílómetra hraða. Önnur tiltölulega ný keppnisgrein er hraðbrun (e. speed skiing) og þá bruna keppendur niður brekkurnar með aðstoð fallhlífar. Greinarnar tvær voru sýndar á laugardaginn var.

Erlent

Með tvær köngulær í eyranu

Læknir í Bretlandi varð heldur hissa eftir að hafa skoðað níu ára dreng vegna eyrnaverks. Í ljós kom að tvær köngulær höfðu tekið sér bólfestu í öðru eyra drengsins.

Erlent

Fillon hugsanlega næsti forsætisráðherra Frakklands

Nicolas Sarkozy mun velja Francois Fillon, náinn aðstoðarmann sinn og fyrrum menntamálaráðherra, sem forsætisráðherra sinn. Með þeirri skipan ætlar hann sér að lægja öldurnar í Frakklandi en óeirðir brutust út í París þegar ljóst varð að Sarkozy yrði næsti forseti landsins.

Erlent

Myrtur með sprengju

Sprengja sprakk í bílastæðihúsi Luxor spilavítisins í Las Vegas í dag. Lögregluyfirvöld sögðu að starfsmaður hótelsins hefði látið lífið þegar hann tók hana ofan af bílþaki. Lögregla sagði að ekki hefði verið um hryðjuverk að ræða heldur morð með framandi vopni.

Erlent

Interpol rannsakar nú hvarf stúlku í Portúgal

Kate McCann, móðir Madeleine litlu, þriggja ára stelpunnar, sem rænt var í Portúgal í fimmtudagskvöld, grátbað í dag ræningja hennar að meiða hana ekki eða hræða. Hún bað þá sem rændu henni að láta vita hvar hægt væri að finna hana. Á blaðamannafundi portúgölsku lögreglunnar í kvöld kom fram að Alþjóðalögreglan Interpol tæki nú þátt í rannsókn málsins og allt gert til að finna stúlkuna.

Erlent

Umdeildur verðandi forseti

Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, er umdeildur og veit af því. Hann er þekktur fyrir harða afstöðu í innflytjendamálum og hefur viðrað þá skoðun að genasamsetning geti ráðið glæpahneigð fólks. Stjórnmálaskýrendur í Frakklandi segja áhugaverða tíma í vændum í frönskum stjórnmálum eftir úrslit forsetakosninganna í gær.

Erlent