Erlent
Skátar fagna afmæli hreyfingarinnar Skátahreyfingin fagnar í dag eitt hundrað ára afmæli. Íslenskir skátar sem staddir eru á alheimsmóti skáta í Englandi buðu upp á kjötsúpu í tilefni dagsins. Erlent 1.8.2007 19:19
Olíuverð náði sögulegu hámarki Verð á olíu náði sögulegu hámarki í dag þegar verð á olíutunnunni komst í tæpa sjötíu og níu bandaríkjadali. Talið er að hækkunina megi rekja til áhyggna af því hvort olíuframboð geti mætt eftirspurn eftir olíu á heimsvísu. Erlent 1.8.2007 19:17
Öflugur jarðskjálfti í Vanuatu Jarðskjálfti sem mældist 7.2 á richter varð í dag 45 kílómetra suðaustur af eyjunni Santo sem tilheyrir Vanuatu eyjaklasanum. Upptök skjálftans voru á 172 kílómetra dýpi í Kyrrahafinu um 1.996 kílómetra norðaustur af Brisbane í Ástralíu. Erlent 1.8.2007 17:47
Hillary eykur forskot sitt Hillary Clinton, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum og fyrrum forsetafrú, hefur aukið forskotið á helsta keppinaut sinn í forkosningum Demókrata ef marka má nýja skoðannakönnun sem birt var í dag. Könnunin var unnin af bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal í samvinnu við NBC sjónvarpsstöðina. Erlent 1.8.2007 16:54
Tengsl milli tekna og offitu barna Ný rannsókn bendir til þess að börn ríkra foreldra og vinnandi mæðra séu í meiri hættu á að verða of feit. Vísindamenn hjá „The Institute of Child Health“ í London fylgdu eftir þrettán þúsund börnum frá fæðingu til þriggja ára aldurs. Erlent 1.8.2007 16:32
Verður boðað til kosninga í Danmörku strax í haust? Stjórnmálaskýrendur í Danmörku gera að því skóna að forsætisráðherra landsins, Anders Fogh Rasmussen, muni boða til kosninga strax í haust. Flokkur ráðherrans, Venstre, nýtur mikils fylgis í könnunum, efnahagur landsins er við góða heilsu og atvinnuleysi hefur ekki verið minna í þrjá áratugi. Kjörtímabilinu lýkur í febrúar 2009. Erlent 1.8.2007 15:53
Forsætisráðherra Spánar skoðar eyðilegginguna á Kanarí Forsætisráðherra Spánar, Jose Luis Rodriguez Zapatero, er kominn til Kanaríeyja en hann mun skoða þá eyðileggingu sem hefur orðið vegna skógareldana sem hafa logað þar síðustu fimm daga. Meira en 12 þúsund manns hafa flúið heimili sín á Gran Kanarí og Tenerife, þar sem eldarnir hafa brennt 35 þúsund hektara lands. Erlent 1.8.2007 14:56
Mikið mannfall í Bagdad í dag Tvær mannskæðar sprengjuárásir voru gerðar í Bagdad í dag. Að minnsta kosti fimmtíu fórust þegar eldsneytistrukkur var sprengdur í loft upp eftir að fólk hafði safnast í kringum hann í von um eldsneyti í vesturhluta borgarinnar. Erlent 1.8.2007 13:35
Frétt um frelsun gísla dregin til baka Reuters fréttastofan hefur dregið til baka frétt þess efnis að hernaðaraðgerðir séu hafnar í Afganistan í því augnamiði að frelsa Suður kóresku gíslana sem talíbanar hafa haft í haldi tæpar tvær vikur. Engar aðgerðir munu vera hafnar. Fréttir af aðgerðunum voru hafðar eftir háttsettum embættismanni í Ghazni héraði í samtali við Reuters fréttastofuna. Erlent 1.8.2007 12:50
Danir senda friðargæsluliða til Darfur Danmörk mun að öllum líkindum taka þátt í herliðinu sem er ætlað að gæta friðar í Darfur héraði í Súdan. Þessu lofaði varnarmálaráðherra Dana, Sören Gade, eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær einróma að senda 26.000 friðargæsluliða og lögreglu þangað. Erlent 1.8.2007 12:39
Alþjóðlegt friðargæslulið kemur of seint fyrir of marga Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að senda tuttugu sex þúsund manna alþjóðlegt friðargæslulið til héraðsins Darfur í Súdan. Allt of seint fyrir of marga segir framkvæmdastjóri Mannréttindavaktarinnar en yfir tvö hundruð þúsund manns hafa látið lífið í átökum í héraðinu síðastliðin fjögur ár. Erlent 1.8.2007 12:15
Reykingar drepa Sænsk kona féll út um glugga og niður fimm hæðir á hóteli í Kaupmannahöfn í nótt. Slysið varð þegar konan reyndi að svindla á reykingabanni á Skt Petri hótelinu, með því að reykja út um gluggann. Erlent 1.8.2007 11:56
Gíslarnir heilir á húfi Suður-Kóresku gíslarnir sem talibanar hafa í haldi í Afganistan eru á lífi, þrátt fyrir að enn einn fresturinn sem mannræningjarnir gáfu þarlendum stjórnvöldum til að sleppa talibönskum föngum hafi runnið út í morgun. Þetta fullyrða stjórnvöld í Afganistan. Erlent 1.8.2007 08:23
Dick Cheney viðurkennir mistök Dick Cheney varaforseti Bandaríkjanna viðurkenndi í viðtali við Larry King Live í gær að hann hafi haft rangt fyrir sér þegar hann hélt því fram árið 2005 að stríðið í Írak væri á lokasprettinum. Þetta er afdráttarlausasta viðurkenning Cheneys á mistökum sínum hingað til. Þá sagði hann að hann tryði því að ákvörðunin um að ráðast inn í Írak og Afganistan hafi verið rétt, og að hann myndi gera það sama nú, þó að hann vissi að rúmlega þrjú þúsund bandarískir hermenn myndu láta lífið. Erlent 1.8.2007 08:23
Tveir kúrdískir blaðamenn dæmdir til dauða í Íran Dómstólar í Íran hafa dæmt tvo kúrdíska blaðamenn til dauða fyrir að vera óvinir guðs. Blaðamennirnir hafa tuttugu daga til að áfrýja dómnum. Geri þeir það ekki, eða verði máli þeirra vísað frá í hæstarétti verða þeir hengdir. Talsmaður dómskerfisins gat engar nánari skýringar gefið á því hvað mennirnir hefðu gert af sér, en þeir skrifuðu fyrir kúrdískt blað sem var bannað árið 2005. Samtökin Blaðamenn án landamæra hafa fordæmt dóminn, sem þeir segja svívirðilegan. Erlent 1.8.2007 08:19
Talibanar hafa þýskan mann í haldi Sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi í gær myndband af þýskum manni sem Talibanar í Afganistan hafa í haldi. Í myndbandinu fer maðurinn fram á að þýsk og bandarísk stjórnvöld dragi heri sína til baka frá Afganistan. Byssu er beint að manninum sem stendur upp við klett. Hann sést tala en Al Jazeera lét hljóðið ekki fylgja myndskeiðinu. Erlent 1.8.2007 08:15
Fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu-1 í ökutímum Nelson Piquet, fyrrverandi þrefaldur heimsmeistari í Formúlu-1 akstri, hefur verið skikkaður í ökuskóla eftir að hann missti ökuskírteini sitt. Piquet sem er frá Brasilíu missti bílprófið eftir að hafa fengið of marga punkta í bókum lögreglunnar. Erlent 31.7.2007 23:29
Landamæragirðing ógnar vistkerfi Stjórnvöld í Mexíkó hvetja Banaríkjamenn til þess að breyta áætlunum sínum um viðbætur við girðingu á landamærum ríkjanna. Mexíkóskir umhverfissérfræðingar telja að þær geti haft skaðleg áhrif á umhverfið og villt dýralíf. Þeir segja girðinguna ógna einstöku vistkerfi þar á meðal í Sonora eyðimörkinni. Erlent 31.7.2007 22:38
Liðsmaður Rauðu Khmeranna ákærður Fyrrum yfirmaður í fangelsi Rauðu Khmeranna hefur verið ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu af dómstól í Kambódíu sem Sameinuðu þjóðirnar standa að. Kang Kek Ieu, einnig þekktur sem Duch, stjórnaði hinu illræmda fangelsi S21 í Phnom Penh höfuðborg Kambódíu. Erlent 31.7.2007 21:15
26.000 friðargæsluliðar sendir til Darfur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag einróma að senda 26.000 friðargæsluliða og lögreglu til Darfur-héraðsins í Súdan. Markmiðið er að draga úr ofbeldi á svæðinu. Erlent 31.7.2007 19:56
Al Jazeera sýnir myndbandsupptöku af þýskum gísl Sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi í dag myndband af þýskum manni sem Talibanar í Afganistan hafa í haldi. Samkvæmt sjónvarpsstöðinni fer Þjóðverjinn fram á að þýsk og bandarísk stjórnvöld dragi heri sína til baka frá Afganistan. Erlent 31.7.2007 19:32
Þúsundir þurfa að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda á Kanaríeyjum Yfir ellefu þúsund manns á Kanaríeyjum hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda sem þar hafa logað undanfarna daga. Rúmlega fjórtán þúsund hektarar land hafa orðið eldunum að bráð á eyjunum Grankanaría og Tenerife. Erlent 31.7.2007 18:48
Leysisprentarar skaðlegir heilsunni Það getur ógnað heilsu fólk að umgangast leysisprentara. Ástralskir vísindamenn hafa uppgötvað örsmár skaðlegar agnir sem leysisprentarar gefa frá sér í talsverðum mæli. Erlent 31.7.2007 18:18
Kúbverjar eygja von -og þó Sumir Kúbverjar þykjast nú eygja vonarglætu eftir ræðu sem settur forseti landsins Raul Castro flutti á byltingardaginn í síðustu viku. Hann sagði þar meðal annars að laun opinberra starfsmanna væru sýnilega alltof lág og að landbúnaðurinn væri hlægilega óskilvirkur. Hann sagði einnig að erlendir fjárfestar væru velkomnir til Kúbu og það þyrfti að gera grundvallarbreytingar til þess að auka matvælaframleiðslu. Erlent 31.7.2007 16:44
Átta miljón ára kýprustré finnast Nokkrar afar heillegar leifar af átta miljón ára gömlum kýprustrjám uppgötvuðust í Ungverjalandi á dögunum. Fundurinn þykir merkilegur því upprunalegi viður trjánna hefur varðveist að stóru leyti, en ekki steingerst. Trén gætu því svarað mörgum spurningum um loftslag á nýlífsöld. Erlent 31.7.2007 16:29
Óhollara lungum að reykja kannabis en tóbak Það er jafn óhollt að reykja eina kannabissjónu og fimm sígarettur. Þetta er niðurstaða vísindamanna á Nýja-Sjálandi sem skoðuðu 339 reykingamenn beggja efna. Samkvæmt rannsókninni hefur kannabisreykur mun víðtækari og meira eyðileggjandi áhrif á lungun. Erlent 31.7.2007 15:30
Belgar deila um innflytjendastefnu stjórnvalda Belgískir fjölmiðlar og mannréttindafrömuðir önduðu léttar í dag þegar frestað var að reka úr landi unga stúlku frá Ekvador og móður hennar sem eru þar ólöglegir innflytjendur. Málið hefur vakið upp spurningar varðandi innflytjendastefnu í Belgíu. Erlent 31.7.2007 15:03
Þarf fótboltastjórn í Írak? Fyrst 11 ungir menn gátu vakið þjóðarstolt og samkennd írösku þjóðarinnar, af hverju geta þá ekki 275 þjóðkjörnir stjórnmálamenn gert hið sama ? Þetta er spurning sem menn velta fyrir sér í Írak eftir þann gríðarlega fögnuð sem greip um sig meðal þjóðarinnar þegar knattspyrnulandsliðið vann Asíubikarinn í fótbolta á sunnudaginn. Erlent 31.7.2007 14:34
Skurðaðgerð við farsímaljós Skurðlæknum við sjúkrahúsið í smábænum Villa Mercedes Argentínu brá í brún þegar rafmagn fór af stórum hluta bæjarins. Þarmeð talið sjúkrahúsinu. Og vararafstöðin fór ekki í gang. Á skurðborðinu lá hinn 29 ára gamli Leonardo Molina. Erlent 31.7.2007 14:21
11 þúsund flýja skógarelda á Kanaríeyjum Skógareldar geisa nú á fjórum stöðum á Kanaríeyjum og hafa leitt til þess að ellefu þúsund manns hafa orðið að flýja heimili sín og gististaði. Slökkviliðsmenn berjast við eldana allan sólarhringinn og er beitt bæði flugvélum og þyrlum. Sjóðheitir sterkir vindar halda hinsvegar áfram að breiða eldana út. Erlent 31.7.2007 13:52