Erlent

Forseti Gíneu borinn til grafar

Lansana Conté, fyrrverandi forseti Vestur-Afríkuríkisins Gíneu, var borinn til grafar með viðhöfn í höfuðborginni Conakry í dag. Conté, sem var forseti Gíneu í nær aldarfjórðung lést á mánudaginn eftir langvinn veikindi. Herforingjar hrifsuðu þegar til sín völd í landinu.

Erlent

Palestínskar stúlkur féllu í flugskeytaárás

Tvær palestínskar stúlkur týndu lífi þegar flugskeyti herskárra Palestínumanna skall fyrir mistök á húsi þeirra á Gaza-svæðinu í dag. Stúlkurnar voru 5 og 13 ára. Flugskeytin áttu að springa handan landamæranna í Ísrael.

Erlent

Þjóðarsorg í Úkraínu

Björgunarmenn í Jev-pa-tóríu í suðurhluta Úkraínu leita enn eftirlifenda í rústum fjölbýlishúss sem sprakk aðfaranótt jóladags. Tuttugu manns er enn saknað en vitað er að tuttugu og tveir týndu lífi.

Erlent

Eartha Kitt er látin

Söng- og leikkonan Eartha Kitt er látin 81 árs að aldri. Hún lést úr ristilkrabbameini á sjúkrahúsi í New York.

Erlent

Hjálpargögn til Gaza þrátt fyrir bann Ísraela

Hjálparsamtökin Rauði hálfmáninn hafa sent hjálpargögn af stað til Gaza-strandarinnar þrátt fyrir að Ísraelar hafi bannað nánast alla flutninga á hjálpargögnum á svæðið. Hjálparfarmur skips á vegum samtakanna inniheldur meðal annars lyf og mat fyrir nauðstadda á svæðinu.

Erlent

Árásarmaðurinn í Stokkhólmi er ófundinn

Þrír særðust mikið þegar karlmaður hóf skothríð í spilavíti í Svíþjóð í gær. Árásarmaðurinn er enn ófundinn. Árásin átti sér stað við Cosmopol spilavítið í miðborg Stokkhólms í gær. Mikil hræðsla greip um sig meðal gesta spilavítisins.

Erlent

Þjóðarsorg í Úkraínu - Rússar bjóða fram aðstoð

Að minnsta kosti 20 létu lífið þegar fjölbýlishús á í suðurhluta Úkraínu sprakk í loft upp í gær. Talið er að 24 séu enn grafnir í rústunum. Lýst hefur verið yfir þjóðarsorg í landinu og þá hafa Rússar boðið fram aðstoð sína.

Erlent

Elísabet drottning dauf í jóladagsávarpi

Áhyggjur af efnahagsástandinu og ofbeldi í heiminum hafa dregið úr jólagleðinni, að mati Elísabetar Englandsdrottningar. Samkvæmt Reuters-fréttastöðinni var heldur dauflegur tónn í ávarpi hennar í þetta sinn.

Erlent

Ísraelar aðvara Hamas-samtökin

Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels segist ekki hika við að beita hernum gegn liðsmönnum Hamas-samtakanna og öðrum herskáum samtökum Palestínumanna á Gaza-svæðinu. Tzipi Livni utanríkisráðherra segir að ísraelsk stjórnvöld geti ekki umborið árásir samtakanna sem beinast gegn ísraelskum þegnum.

Erlent

Nóbelsverðlaunahafinn Harold Pinter látinn

Breska leikskáldið og nóbelsverðlaunarhafinn Harold Pinter er látinn 78 ára að aldri. Pinter lést í gær á aðfangadagskvöld eftir að hafa barist við krabbamein undanfarin ár. Hans hefur verið minnst víða í Bretlandi í dag.

Erlent

Mikil snjókoma veldur vandræðum vestanhafs

Mikil snjókoma og slæm vetrarveður hafa sett stirk í reikinginn hjá þúsundum Bandaríkjamanna og Kanadabúa þessi jólin. Margir sitja fastir í flugstöðum og á járnbrautarstöðvum víða um landið.

Erlent

Páfinn hræðist samkynhneigð

Jafnmikilvægt er að bjarga mannkyninu frá sam- og tvíkynhneigð og að forða regnskógunum frá eyðileggingu. Þetta sagði Benedikt páfi XVI. í árlegu ávarpi sínu til kardínála og preláta í Vatíkaninu í gær. Hvort tveggja væri liður í að verja sköpunarverk Guðs.

Erlent

Bush undirbýr flutning úr Hvíta húsinu

George Bush, forseti Bandaríkjanna, er í óða önn að undirbúa brotthvarf sitt úr Hvíta Húsinu. Hann flytur út í janúar en í dag tæmdi hann fataskápinn sinn og fór með gamlar yfirhafnir til góðgerðarsamtaka sem sjá svo um að koma þeim áfram til þeirra sem minna mega sín.

Erlent

Viðhorf kvenna hefur áhrif á líkama þeirra á meðgöngu

Viðhorf eða skynjun kvenna á líkama þeirra fyrir fæðingu getur aukið líkur á að þær þyngist mikið á meðgöngu. Þetta kemur fram í nýrri amerískri rannsókn sem hefur verið gerð opinber. Rannsóknin, sem tók til 15 hundruð ófrískra kvenna, leiddi í ljós að þær sem skynjuðu líkamsþyngd sína rangt voru líklegri til þess að þyngjast á meðgöngu.

Erlent

Jarðskjálfti reið yfir N-Ítalíu

Snarpur jarðskjálfti reið yfir norðurhluta Ítalíu í dag í grennd við borgina Parma. Skjálftinn mældist 5,2 á Richter. Enn sem komið er hafa engar fréttir borist af slysum á fólki eða tjóni. Jarðskjálftans var vart í borgunum Mílan, Flórens og Trieste.

Erlent

Allir vilja vinna hjá Obama

Barack Obama, sem vann sögulegan sigur í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember er eftirsóttur atvinnuveitandi. Nú er verið að ráða í störf í Hvíta húsinu og eru átta þúsund stöður á lausu. Við fyrstu sýn ætti að reynast erfitt að að manna allar þær stöður í Washington en umsóknum rignir inn og nú þegar hafa þrjú hundruð þúsund manns sótt um vinnu hjá Obama, sem eins og fréttastofan CBS bendir réttilega á, jafnast á við að allir Íslendingar hafi sótt um starf hjá nýja forsetanum.

Erlent

Kínverjar gefa pöndur

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að færa vinum sínum í Taívan fallega gjöf fyrir jólin. Þeir hafa látið flytja tvær pöndur frá Kína til Taívan sem vott um vináttu þjóðanna.

Erlent

Ríkisstjórn Gíneu sett af í kjölfar andláts forseta

Lansana Conte, forseti Gíneu er látinn. Aðeins fáeinum klukkutímum eftir að andlát hans var tilkynnt var yfrlýsing lesin í ríkisútvarpinu þar í landi þar sem það var tilkynnt að stjórnarskráin væri ekki lengur í gildi og að ríkisstjórnin hefði verið sett af.

Erlent