Erlent

Obama hóf daginn á kirkjuheimsókn

Hinn nýi forseti Bandaríkjanna hóf daginn á því að fara í kirkju ásamt Bill og Hillary Clinton. Þaðan fór hann á skrifstofuna sína til þess að byrja að stjórna landinu.

Erlent

Liðsmenn al Kaida féllu í mislukkaðri tilraun

Al Kaida hópur í Alsír þurrkaði sjálfan sig út þegar tilraun með sýklavopn fór úrskeiðis. Bandaríska blaðið Washington Times hefur eftir heimildarmanni í leyniþjónustunni að al-Kaida liðarnir hafi verið að rækta sýkla fyrir kýlapestina Svartadauða sem felldi þriðjung íbúa Evrópu á þrettándi öld.

Erlent

Ísraelar segjast farnir frá Gaza

Ísraelar segjast hafa lokið brottflutningi allra hermanna sinna frá Gaza ströndinni. Eyðileggingin er óskapleg. Ísraelar höfðu flutt flestalla sína hermenn frá Gaza ströndinni áður en Barack Obama sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur telja að þeir hafi vilja forðast spennu í upphafi samskipta sinna við hinn nýja forseta.

Erlent

Hátíðarstemmning vestanhafs

Mikil hátíðarstemmning hefur ríkt í Bandaríkjunum síðan Barack Obama sór embættiseið sinn sem 44. forseti landsins að viðstöddu mannhafi í Washington í gær.

Erlent

Fjölskylduerjur urðu að hópslagsmálum

Um það bil 40 manns tóku þátt í hópslagsmálum sem brutust út um þrjúleytið í gær við verslun Nettó í Árósum í Danmörku. Allir sem að átökunum komu eru innflytjendur og segir lögreglan að eftir því sem næst verði komist hafi deilur innan stórfjölskyldu leitt til slagsmálanna.

Erlent

Flugáhöfn klyfjuð fíkniefnum

Fimmtán manns úr áhöfn flugfélagsins South African Airlines voru handteknir á Heathrow-flugvellinum í London í gær eftir að 50 kíló af kannabisefnum og fjögur kíló af kókaíni fundust í farangri þeirra.

Erlent

Nauðgaði konu til að hljóta enskukennslu í fangelsi

Rúmenskur flækingur nauðgaði ungri konu og rændi hana í undirgöngum í West Yorkshire í Bretlandi í þeim tilgangi að komast í fangelsi þar sem hann gæti lært ensku og fengið fæði og húsaskjól. Þetta játaði maðurinn fyrir fangelsisgeðlækni.

Erlent

Vill að Bush og Rumsfeld verði ákærðir vegna pyntinga

Austurríkismaðurinn Manfred Nowak, sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum í heiminum, hvetur bandarísk stjórnvöld til þess að sækja George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, til saka fyrir pyntingar og meðhöndlun fanga í stjórnartíð Bush.

Erlent

Vill fylgjast vandlega með mörkuðum og leita sátta við múslima

Barack Obama varð nú síðdegis fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna þegar hann sór embættiseið fyrstur blökkumanna. Obama segir á valdatíma sínum verði fylgst vandlega með mörkuðum svo þeir fari ekki aftur framúr sér. Herlið yrði kallað heim frá Írak með ábyrgum hætti og friður tryggður í Afganistan. Sátta yrði leitað við múslima um heim allan.

Erlent

Embættistöku Obama fagnað á Íslandi

Embættistöku Baracks Obama var fagnað víða um heim í dag þar á meðal hér í Reykjavík. Íslensk Ameríska viðskiptaráðið blés til veislu þar sem fylgst var með valdatöku Obama. Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal viðstaddra, þar á meðal Bandaríkjamanna búsettum hér á landi, þegar hann hafði formlega tekið við embættinu.

Erlent

Barack Obama er nýr forseti Bandaríkjanna

Barack Hussein Obama yngri var rétt í þessu settur í embætti forseta Bandaríkjanna. Hann er fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna og jafnframt fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því embætti í rúmlega tvö hundruð ára sögu Bandaríkjanna.

Erlent

Joe Biden sver embættiseið

Joe Biden var rétt í þessu settur í embætti varaforseta Bandaríkjanna þegar sór embættiseið sinn. Innan skamms tekur Barack Obama formlega við sem 44. forseti Bandaríkjanna.

Erlent

Embættistaka Obama í beinni á Vísi

Barack Obama sver á eftir embættiseið sem fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna. Hann verður fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því embætti í rúmlega tvö hundruð ára sögu Bandaríkjanna. Embættistakan verður í beinni útsendingu á Vísi og hefst hún klukkan 16.

Erlent

Þétt dagskrá hjá Obama í dag

Barack Obama sver í dag embættiseið sem fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna. Hann verður fyrsti blökkumaðurinn til að gegna því embætti í rúmlega tvö hundruð ára sögu Bandaríkjanna. Dagskrá Obama hjónanna í dag er þéttskipuð. Gríðarleg öryggisgæsla er í borginni fyrir embættistökuna sem verður sýnd í beinni útsendingu hér á Vísi og hefst útsendingin klukkan fjögur.

Erlent

Ban Ki-moon til Gaza

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir Gaza-svæðið í dag og skoðar ummerkin eftir heiftarlegar árásir Ísraelsmanna sem hófust í lok desember og urðu rúmlega 1.300 Palestínumönnum að bana.

Erlent

Rússar lofa gasi í dag

Rússneski gasframleiðandinn Gazprom segist munu skrúfa á ný frá gasi til Evrópu klukkan sjö árdegis í dag. Þetta staðfestir Sergei Kypriyanov, talsmaður fyrirtækisins, í samtali við BBC.

Erlent

Danskur bankaræningi kærði húsleit

Tæplega þrítugur Dani sem rændi banka í Kaupmannahöfn á fimmtudaginn gerði mistök sem hann gerir væntanlega ekki oftar. Lögreglu grunaði hver verið hefði á ferð í bankanum og fóru lögregluþjónar á heimili mannsins þar sem framkvæmd var húsleit, sem staðfesti grun hennar.

Erlent

Fljúgandi furðuský herja á Breta

Margir Bretar hafa talið sig sjá geimför frá öðrum hnöttum undanfarna daga og hefur því jafnvel heyrst fleygt að dularfullt loftfar hafi rekist með ljósagangi og hávaða á vindmyllu í Lincolnskíri.

Erlent

Ísraelar ætla frá Gasa í dag

„Fólk er svo sannarlega ánægt að sjá okkur,“ sagði Ahmed, einn af lögreglumönnum Hamas-hreyfingarinnar, sem nú eru komnir aftur út á götur Gasaborgar eftir þriggja vikna stanslausar árásir Ísraelsmanna.

Erlent

Samningurinn um gasdeilu undirritaður

Forsætisráðherrar Rússlands og Úkraínu, þau Vladimír Pútín og Júlía Tímosjenko, fylgdust í gær með undirritun samnings um lausn á gasdeilunni, sem hefur orðið til þess að íbúar víða í Evrópu hafa ekki fengið gas til húshitunar.

Erlent

Svellkaldur Obama

Fjölmiðlar vestanhafs hafa tekið eftir því hversu yfirvegaður Barack Obama hefur verið í dag þrátt fyrir að einungis fáeinar klukkustundir séu þangað til að hann tekur við einu ábyrgðarmesta starfi heims.

Erlent