Erlent
Póstmeistari neitar að afgreiða þá sem tala ekki ensku Deva Kumarasiri er frá Sri Lanka og stjórnar pósthúsi í Nottingham. Hann hefur átt í harðvítugri deilu við póstmálayfirvöld í borginni eftir að hann tók þá ákvörðun að neita viðskiptavinum, sem ekki eru mæltir á enska tungu, um þjónustu. Erlent 23.3.2009 08:14
Danskur ökuþór á vel yfir 200 km hraða Lögreglan í Ribe í Danmörku eltist í nótt við rúmlega tvítugan vélhjólamann sem ók á tímabili vel yfir 200 kílómetra hraða á klukkustund meðan á eftirförinni stóð. Fjöldi lögreglubíla kom að eftirförinni sem náði yfir 30 kílómetra vegalengd. Ökumaðurinn reyndi að lokum að fela sig fyrir lögreglunni en til hans sást og var hann handtekinn. Erlent 23.3.2009 08:11
Bretar læra viðbrögð við hryðjuverkum Um það bil 60.000 manns í Bretlandi gangast um þessar mundir undir þjálfun í að bregðast við hryðjuverkaárásum og bera kennsl á mögulega hryðjuverkamenn. Erlent 23.3.2009 08:07
Tveir létust þegar kviknaði í flugvél Flugmaður og aðstoðarflugmaður biðu bana þegar eldur kom upp í flugvél hraðflutningafyrirtækisins Federal Express á Narita-flugvellinum í Tókýó í gærkvöldi. Erlent 23.3.2009 07:33
Sautján létust í flugslysi í Montana Allt að 17 manns létu lífið, þar af nokkur börn, þegar eins hreyfils farþegaflugvél hrapaði til jarðar í Butte í Montana í Bandaríkjunum í gær. Erlent 23.3.2009 07:30
Bretar réttlæta beitingu hryðjuverkalaganna „Forsvarsmenn breskra stjórnvalda, þar með taldir þingmenn úr báðum deildum breska þingsins, halda fast við þá afstöðu að það hafi verið fyllilega réttlætanlegt að beita umdeildum hryðjuverkavarnalögum til að frysta eigur Landsbankans og íslenskra stjórnvalda í Bretlandi í því skyni að verja hagsmuni breskra sparifjáreigenda.“ Þetta segir Ólafur Elíasson, einn talsmanna Indefence-hópsins svonefnda, eftir fund sem hópurinn átti í þinghúsinu í Lundúnum fyrr í vikunni. Erlent 23.3.2009 05:00
Hundruð þúsunda sáu Páfann í Angóla Hundruð þúsunda íbúa í Angóla komu saman í dag til þess að hlusta á Beneditkt 16 páfa. Engu skipti þó að tvær konur létu lífið á laugardaginn vegna troðnings. Öryggisgæslan var gríðarlega ströng. Erlent 23.3.2009 00:00
Spítali dauðans virti aðvaranir af vettugi Spítalinn Stafford Hospital í Staffordshire hefur lent í hringiðu hneykslis í Bretlandi eftir að í ljós kom að tala látinna á spítalanum var gríðarlega há og mun hærri en hjá svipuðum sjúkrahúsum í Englandi samkvæmt Telegraph. Í ljós hefur komið að spítalinn var margagnrýndur fyrir lélegan aðbúnað af heilbrigðiseftirlitinu í Bretlandi, án þessa þó að bregðast nokkurn tímann við því. Erlent 22.3.2009 23:00
Óttast að Fritzl svipti sig lífi Fangelsismálayfirvöld í Austurríki hafa aukið eftirlit með Josef Fritzl sem í síðustu viku var dæmdur til ævilangrar vistunar á hæli fyrir geðsjúka vegna dóms fyrir nauðgun, sifjaspell og morð. Talið er að hann muni reyna að svipta sig lífi og á að koma í veg fyrir það. Breska blaðið Guardian greinir frá þessu í dag. Erlent 22.3.2009 13:52
Komu í veg fyrir mannskæða árás Ísraelska lögreglan tilkynnti í morgun að hún hefði komið í veg fyrir mannskæða sprengjuárás herskárra Palestínumanna fyrir utan troðfulla verslunarmiðstöð í Haifa í norðurhluta Ísraels. Erlent 22.3.2009 10:08
Boðar hertar aðgerðir gegn bónusgreiðslum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur boðað harðara aðhald með bónusgreiðslum fyrirtækja sem hafa hlotið aðstoð bandaríska ríkisins. Erlent 22.3.2009 06:00
Vítisengill laminn til dauða á áströlskum flugvelli Maður, sem talið er að sé Vítisengill, var laminn til dauða af fjórum mönnum vopnuðum hafnaboltakylfum í gær. Maðurinn var að koma með flugi til Sidney þegar mennirnir komu gangandi upp að honum og lömdu hann til dauða. Vitni sögðu að mennirnir fjórir hefðu beitt kylfunum eins og sverðum á meðan maðurinn lá á gólfinu. Erlent 22.3.2009 01:15
Gyurcsany segir af sér Ferenc Gyurcsany, foræstisráðherra Ungverjalands, tilkynnti í morgun að hann ætlaði að láta af embætti. Vinsældir ríkisstjórnar hans hafa hrunið vegna efnahagsþrenginga í alheimskreppunni. Erlent 21.3.2009 13:17
Bandaríkjamenn styðja Fogh Rasmussen Bandaríks stjórnvöld ætla að styðja Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Þetta fullyrðir Pulitzer verðlaunaður dálkahöfundur á vef bandaríska blaðsins Washington Post í dag. Erlent 21.3.2009 12:14
Khamenei krefst aðgerða Khamenei æðstiklerkur í Íran segist ekki sjá neina breytingu á afstöðu Bandaríkjamanna gagnvart Íran. Hann vill þó ræða málin. Obama Bandaríkjaforseti bauð fyrir helgi nýtt upphaf í samskiptum Bandaríkjanna og Írans. Erlent 21.3.2009 12:00
Óvenjuleg samskipti við ótamin ljón Suður-Afríkumaðurinn Kevin Richardson á í vægast sagt óvenjulegum samskiptum við ljón. Hann hefur unnið með atferli ljóna í meira en áratug á verndarsvæði sínu nærri Jóhannesarborg. Ljónin virðast viðurkenna hann fullkomlega, en rétt er að taka það fram að ekki er um tamin ljón að ræða. Erlent 20.3.2009 19:30
Móðir henti nýfæddu barni í ruslatunnu Hugsanlegt er að kona á Nýja Sjálandi sem ól barn á snyrtingu í flugvél Airline Pacific Blue flugfélagsins og skildi barnið eftir í tunnu í flugvélinni verði ákærð fyrir athæfið. Erlent 20.3.2009 11:09
Fritzl gæti verið laus eftir 14 ár Vissulega hafa austurrískir dómstólar dæmt Josef Fritzl til ævilangrar vistunar á hæli fyrir geðsjúka. Óvíst er þó að sú vistun verði í raun svo löng þar sem lögin gera ráð fyrir því að sýni Fritzl framför við geðlæknismeðferð megi færa hann til afplánunar í venjulegt fangelsi þar sem hann getur svo sótt um reynslulausn að liðnum 15 árum en sú regla gildir um lífstíðardóma í Austurríki. Erlent 20.3.2009 08:08
Birtu mynd af Manson Fangelsisyfirvöld í Kaliforníu hafa birt mynd af raðmorðingjanum Charles Manson sem setið hefur inni í tæp 40 ár. Erlent 20.3.2009 07:34
Einn slátrari ábyrgur fyrir E-coli-faraldri Einn slátrari er ábyrgur fyrir næststærsta E-coli-bakteríufaraldri sem herjað hefur á Bretland en faraldurinn varð fimm ára dreng að bana og 156 manns veiktust í suðurhluta Wales árið 2005. Erlent 20.3.2009 07:28
Lífvörður Baggers tekinn með kókaín Daninn Brian Sandberg, sem er hvað þekktastur fyrir að vera lífvörður fjárglæframannsins Stein Bagger og félagi í vélhjólasamtökunum Vítisenglum, var handtekinn af lögreglu í Kaupmannahöfn í gær með kókaín í fórum sínum. Magn efnisins reyndist vera minni háttar og var Sandberg sleppt úr haldi að lokinni skýrslutöku. Erlent 20.3.2009 07:22
Rússar flugu lágflug yfir bandarísk skip Rússneskar herflugvélar flugu lágflug yfir tvö bandarísk herskip á mánudaginn þar sem skipin voru við heræfingar á Japanshafi ásamt herskipum frá Suður-Kóreu. Erlent 20.3.2009 07:21
Mörg fyrirtæki sem þáðu aðstoð skulda skatta Mörg þeirra fyrirtækja sem hlutu aðstoð frá Bandaríkjastjórn skulda ríkinu skatta og nemur upphæð vangoldinna skatta fyrirtækjanna um 220 milljónum dollara. Erlent 20.3.2009 07:18
Bretum gengur illa að loka hryðjuverkasíðu Breskum yfirvöldum hefur enn ekki tekist að loka heimasíðu, þar sem hryðjuverkamenn birta áróður sinn, þrátt fyrir að þáverandi forsætisráðherra, Tony Blair, hafi upphaflega óskað eftir því að síðunni yrði lokað árið 2005. Erlent 20.3.2009 07:10
Neðansjávargos undan ströndum Tonga Mikið og tignarlegt neðansjávareldgos er nú undan ströndum Tonga eyja á Kyrrahafi. Byggð á eyjunum er ekki talin í hættu. Erlent 19.3.2009 20:00
Vilja stöðva frekari stækkun ESB Heimskreppan gerir að verkum að æ fleiri aðildarríki Evrópusambandsins vilja stöðva frekari stækkun þess. Meðal þeirra eru bæði Frakkland og Þýskaland. Erlent 19.3.2009 19:00
Tíu forystumenn Hamas handteknir Ísraelskir hermenn handtóku tíu áhrifamenn úr Hamassamtökunum á Vesturbakka Palestínu í morgun. Meðal hinna handteknu voru fjórir þingmenn og Nasser Shaer, fyrrum aðstoðarforsætisráðherra Palestínu. Erlent 19.3.2009 14:44
Fritzl dæmdur til ævilangrar vistunar á geðdeild Josef Fritzl, Austurríkismaðurinn sem hélt dóttur sinni í gíslingu í 24 ár og átti með henni sjö börn, var í dag fundinn sekur um öll ákæruatriði, þar á meðal morð af völdum vanrækslu þegar eitt barna hans lést. Hann mun enda ævina á geðsjúkrahúsi. Erlent 19.3.2009 13:12
Páfi í vandræðum vegna smokka Benedikt páfi er lentur í sannkallaðri orrahríð eftir að hann lýsti því yfir í heimsókn sinni í Afríku að smokkar veittu ekki vernd gegn alnæmi. Erlent 19.3.2009 12:10
Elísabet Fritzl var í dómsalnum Helsta ástæða þess að Austurríkismaðurinn Josef Fritzl lýsti sig að fullu sekan í gær af ákærum um nauðgun, sifjaspell og morð var sú að dóttir hans Elísabet var í dómssalnum. Erlent 19.3.2009 09:11