Erlent
Ósáttur við hraðamælingu Danskur ökumaður, sem lögregla mældi á of miklum hraða, varð svo ósáttur við að lenda í mælingunni að hann lagði bíl sínum beint fyrir framan lögreglubílinn til að koma í veg fyrir að lögreglan gæti mælt hraða annarra bíla. Erlent 26.3.2009 07:25
Boy George á nýjum 20 punda seðli Söngvarinn Boy George prýðir nýjan 20 punda seðil í Bretlandi í stað Elísabetar drottningar. Reyndar er þessi nýi seðill falsaður og höfuð söngvarans er í vatnsmerkinu en ekki á myndfleti seðilsins. Erlent 26.3.2009 07:21
Dóu úr kolsýringseitrun í garðhúsi Tveir unglingar í Wales dóu úr kolsýringseitrun í garðhúsi við heimili annars þeirra um síðustu helgi en þar höfðu þeir lagst til svefns til þess að þurfa ekki að fara inn á heimilið og vekja þar með fjölskylduna. Þeir höfðu verið úti að skemmta sér um nóttina. Erlent 26.3.2009 07:18
Músaskítur fannst á skurðstofu í Bretlandi Hreinlæti á sjúkrahúsum var til umræðu á breska þinginu í gær eftir að músaskítur fannst á skurðstofu sjúkrahúss nokkurs. Það var skurðlæknir á sjúkrahúsinu ásamt öðrum starfsmanni sem kom að máli við þingmann Íhaldsflokksins og greindi frá málinu en nafni sjúkrahússins er haldið leyndu og eins því hverjir komu upplýsingunum á framfæri. Erlent 26.3.2009 07:14
Vikið úr starfi vegna falinnar myndavélar Vísindakennara, sem myndaði ólátahegðun unglinga úr launsátri vegna heimildamyndar sem hún vann að, hefur verið bannað að kenna næstu tólf mánuðina. Erlent 25.3.2009 21:56
Rússneskir birnir flugu inn í íslenska lofthelgi Danski flugherinn sem sinnir loftrýmisgæslu yfir og í kringum Ísland bægði tveimur rússneskum orrustuþotum frá landinu í dag, en þær höfðu sett stefnuna í lofthelgi Íslands. Flugherinn brást við eftir að ferða Rússanna hafði orðið vart á ratsjám. Erlent 25.3.2009 21:40
Norður Kórea býr sig undir eldflaugaskot Talið er að Norður Kóreumenn hafi í dag komið fyrir langdrægri eldflaug af gerðinni Taepodong-2 á skotpall í Musudanri í Norður Kóreu. Kyodo fréttastofan í Japan greinir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum. Erlent 25.3.2009 16:18
Skemmdir á heimili bankamanns Skemmdarvargar unnu í morgun skemmdir á heimili og bifreið Freds Goodwin, fyrrverandi framkvæmdastjóra Royal Bank of Scotland. Bankinn er nú í gjörgæslu hjá breska ríkinu en tap á rekstri hans í fyrra var rúmlega tuttugu og fjórir milljarðar punda sem er met í breskri viðskiptasögu. Erlent 25.3.2009 12:16
Minntust flóttans mikla eftir 65 ár Hópur breskra hermanna minntist þess í gær að 65 ár voru liðin frá flótta þeirra úr fangabúðum Þjóðverja í Póllandi. Erlent 25.3.2009 08:24
Japanar þróa frjókornavélmenni Það er japanska veðurstofan sem stendur á bak við þessa nýstárlegu uppfinningu og hefur þegar hleypt 500 eintökum af stokkunum. Frjókornavélmennið er kúlulaga fyrirbæri sem mælir magn frjókorna í andrúmsloftinu og varar ofnæmissjúklinga við reynist magnið yfir ákveðnum mörkum. Erlent 25.3.2009 08:18
Kóróna Frelsisstyttunnar opnar á ný Kóróna Frelsisstyttunnar í New York verður að öllum líkindum opnuð fyrir gestum á ný á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna í sumar, 4. júlí. Erlent 25.3.2009 08:16
Obama kynnti fyrsta fjárlagafrumvarp sitt Barack Obama Bandaríkjaforseti átti fullt í fangi með að svara spurningum blaðamanna um gríðarmikinn fjárlagahalla sem vofir yfir Bandaríkjunum en hann kynnti sitt fyrsta fjárlagafrumvarp á blaðamannafundi í gær. Erlent 25.3.2009 08:15
Þrír í gæsluvarðhald í Kolding Þrír menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrir nokkrar sérstaklega hættulegar líkamsárásir í Kolding í Danmörku síðustu vikur. Mennirnir eru allir innflytjendur og félagar í glæpaklíku í Kolding. Erlent 25.3.2009 08:07
Obama ræddi við áhöfn geimstöðvarinnar Barack Obama Bandaríkjaforseti ræddi við geimfara, sem staddir eru í Alþjóðlegu geimstöðinni, gegnum síma í gær og sagði þeim meðal annars að hann væri stoltur af þeirri vinnu sem þar ætti sér stað. Hópur nemenda við barnaskóla í Washington var viðstaddur þegar símtalið átti sér stað í Hvíta húsinu. Erlent 25.3.2009 07:32
Hætta á efnavopna- eða kjarnorkuárás eykst Hættan á hryðjuverkaárás með efna- eða kjarnorkuvopnum hefur aukist til muna í Bretlandi. Erlent 25.3.2009 07:27
Þriðja ríkisstjórnin sem fellur vegna kreppunnar Minnihlutastjórnin í Tékklandi tapaði atkvæðagreiðslu um vantrausttillögu sem stjórnarandstöðuflokkarnir lögðu fram. Erlent 24.3.2009 21:55
Kaupmannahafnarlögreglan fann 36 kíló af amfetamíni Lögreglan í Kaupmannahöfn upplýsti í dag að hún hefði fundið ferðatöskur með tæpum 36 kílóum af amfetamíni á Aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn. Virði fíkniefnanna nemur um fimm milljónum danskra króna, eftir því danska ríkisútvarpið, DR, hefur eftir yfirmönnum úr fíkniefnadeild lögreglunnar. Erlent 24.3.2009 20:38
Dauðadómur fyrir skógarelda Fimm slökkviliðsmenn fórust þegar þeir börðust við skógarelda sem voru kveiktir í suðurhluta Kaliforníu árið 2006. Erlent 24.3.2009 12:00
Lifði af tvær kjarnorkuárásir Tsutomu Yamaguchi var á viðskiptaferðalagi í Hiroshima þann sjötta ágúst árið 1945 þegar Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á borgina. Erlent 24.3.2009 12:00
Flestir karlmenn læknast af krabbameini á Íslandi Hlutfall þeirra sjúklinga sem læknast af krabbameini fer hækkandi í evrópu, ef marka má mikla rannsókn sem birt er í dag. Hæsta hlutfall karlmanna sem læknast af krabbameini er á Íslandi eða 47%. Flestar konur sem læknast eru í Frakklandi og Finnlandi eða 59%. Fæstir læknast af krabbameini í Póllandi eða 21% karla og 38% kvenna. Erlent 24.3.2009 10:49
Barak og Netanyahu ætla að mynda stjórn Ehud Barak, leiðtogi Verkamannaflokksins í Ísrael, hefur náð bráðabirgðasamkomulagi við Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likudflokksins, um myndun meirihlutastjórnar. Verði stjórnarþátttakan samþykkt í helstu stofnunum flokkanna hefur ný samsteypustjórn stuðning 66 þingmanna af 120 á Knesset, ísraelska þinginu. Netanyahu hefur frest til 3. apríl til að mynda nýja ríkisstjórn en þingkosningarnar fóru fram um miðjan febrúar. Erlent 24.3.2009 10:30
Kona í Texas lét bílinn fyrir geitur Miranda Walton í Austin í Texas fer ekki í geitarhús að leita ullar. Síður en svo. Hún skipti á gamla Ford-pallbílnum sínum og nokkrum geitum og fær nú úr þeim alla mjólk til heimilisins en ekki er nóg með það. Erlent 24.3.2009 08:22
Fyrsta bjórverksmiðjan í Súdan Í Suður-Súdan gantast íbúarnir með að áfengi sé þeim ákaflega mikils virði. Það hafi kostað þá tveggja áratuga blóðuga borgarastyrjöld að koma sér í þá stöðu að geta fengið sér kaldan bjór að loknum erfiðum, og alla jafna heitum, vinnudegi. Erlent 24.3.2009 08:18
Kaupmannahafnarbúar í skotheld vesti Vargöldin í Kaupmannahöfn er orðin slík að almennir borgarar eru sumir hverjir farnir að kaupa sér skotheld vesti til að klæðast á götum borgarinnar. Einnig er mikið um að lögregluþjónar kaupi sér skotheld vesti en lögreglan á ekki vesti fyrir nema um helminginn af liðinu og gildir þar reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Þetta hefur orðið til þess að lögregluþjónar grípa til þess ráðs að kaupa sér sín eigin vesti segir dagblaðið Berlingske Tidende. Erlent 24.3.2009 08:12
Fljúgandi furðuhlutir í brennidepli í Bretlandi Bretar ræða nú um fljúgandi furðuhluti sem aldrei fyrr. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan bresk stjórnvöld birtu vitnisburði og teikningar fjölda fólks sem sagðist hafa séð slíka hluti og voru óvenjumargar skýrslnanna frá árinu 1989 og margar lýsinganna nokkuð samhljóða. Erlent 24.3.2009 08:07
Selveiðin hafin í Kanada Árlegt selveiðitímabil Kanada er hafið og er leyfilegur veiðikvóti ársins 280.000 dýr sem er 5.000 meira en í fyrra. Selveiðimenn flykkjast nú til austurstrandar landsins þar sem veiðin fer að mestu fram en hún er ekki með öllu óumdeild. Erlent 24.3.2009 07:35
Unglingur ákærður fyrir morð á lögregluþjóni Sautján ára gamall piltur hefur verið ákærður fyrir morðið á Stephen Carroll, lögreglumanninum sem var skotinn til bana í Craigavon á Norður-Írlandi fyrir um hálfum mánuði. Erlent 24.3.2009 07:28
Krónprins Dana setti umhverfis- og orkuráðstefnu í Chicago Það er auðvelt að sameina hagvöxt, atvinnusköpun og umhverfisverndarstjórnmál, sagði Friðrik krónprins Danmerkur þegar að hann opnaði umhverfis- og orkuráðstefnu í Chicago í Bandaríkjunum í dag. Erlent 23.3.2009 21:59
Dalai Lama neitað um vegabréfsáritun í S-Afríku Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa neitað Dalai Lama leiðtoga Tíbeta um vegabréfsáritun. Þau eru sökuð um að hafa látið undan þrýstingi frá Kína. Erlent 23.3.2009 12:24
Rannsókn hafin á flugslysinu í Montana Sautján manns flest börn fórust með einshreyfils flugvél sem hrapaði í lendingu í Montana í Bandaríkjunum í dag. Gott skyggni var og hæg gola þegar slysið varð. Rannsókn er hafin á hvað olli slysinu. Þá fórust tveir flugmenn fragtflugvélar sem varð alelda í lendingu á Narita flugvelli í Tokyo. Erlent 23.3.2009 12:17