Erlent
Ökumenn í New York eru allra verstir Ökumenn í New York hafa steypt ökumönnum í Miami úr toppsætinu yfir skapverstu ökumenn Bandaríkjanna. Erlent 16.6.2009 08:30
Aukið atvinnuleysi innan ESB Atvinnuleysi jókst umtalsvert innan Evrópusambandsins á fyrsta fjórðungi ársins, eða um 1,2 prósent miðað við fyrsta fjórðung ársins 2008. Erlent 16.6.2009 08:29
Nýjar aftökuaðferðir í Kína Kínverjar hyggjast taka upp þá aðferð að sprauta banvænu eitri í þá sakamenn, sem ætlunin er að taka af lífi, frekar en að skjóta þá. Erlent 16.6.2009 08:22
Augnaráð hunda reyndist ímyndun Nýleg rannsókn sem gerð var við Bernard-háskólann í New York hefur leitt í ljós að hið sakbitna augnaráð sem eigendur telja sig sjá hjá hundum sínum sé ímyndun ein. Erlent 16.6.2009 08:18
Búist við átökum í Teheran í dag Boðað hefur verið til tvennra mótmæla í Teheran, höfuðborg Írans í dag og óttast menn að uppúr kunni að sjóða. Annarsvegar er um að ræða stuðnings menn Mirhousseins Mousavis, sem tapaði í kosningum fyrir helgi gegn sitjandi forseta landsins Mahmoud Ahmadinejad og hins vegar ætla harðlínustuðningsmenn forsetans að hittast á sama stað og lýssa yfir stuðningi við sinn mann. Sjö létust í mótmælum í gær að því er íranskir miðlar greina frá en mikil óánægja hefur verið á meðal sumra í landinu yfir framkvæmd kosninganna sem forsetinn sigraði með óvæntum yfirburðum. Erlent 16.6.2009 07:13
Sakbitnir hundar bregðast við skömmum Nýleg rannsókn sem gerð var við Bernard-háskólann í New York hefur leitt í ljós að hið sakbitna augnaráð sem eigendur telja sig sjá hjá hundum sínum sé ímyndun ein. Þeir sem stóðu að rannsókninni töldu hundaeigendunum trú um að hundur þeirra hefði gert eitthvað af sér. Allir eigendurnir þóttust geta greint hið sakbitna augnaráð hjá hundinum, jafnvel þótt dýrið hefði ekkert af sér gert. Rannsóknin leiddi því í ljós að hundarnir voru ekki þjakaðir af samviskubiti heldur aðeins að bregðast við skömmum húsbónda sinna. Erlent 16.6.2009 02:00
Fjármálageirinn hefur tapað ljómanum Bankar og fjármálafyrirtæki hafa tapað ljómanum í augum nýútskrifaðra háskólanema í Bandaríkjunum. Eftir að efnahagskreppan skall á leita þeir í auknum mæli í störf hjá hinu opinbera. Erlent 15.6.2009 12:19
Fyrsta svínaflensudauðsfallið utan Ameríku staðfest Fyrsta dauðsfallið vegna Svínaflensunnar utan Ameríku hefur verið staðfest en Jacqueline Fleming, 38 ára gömul kona, lést vegna flensunnar í gær. Jacqueline hafði tveimur vikum áður fætt sitt þriðja barn og kom barnið í heiminn þremur mánuðum fyrir tímann. Erlent 15.6.2009 12:14
Fyrirhuguðum mótmælum Íran aflýst Fyrirhuguðum mótmælum í Teheran í Íran sem fram áttu að fara í dag hefur verið aflýst. Írönsk stjórnvöld lýstu því yfir að forsetaframbjóðandinn Mirhossein Mousavi yrði gerður ábyrgur fyrir mótmælunum. Erlent 15.6.2009 12:12
Vítisenglar flytja í glæsiíbúðir á Jótlandi Æðstu menn Hells Angels í Danmörku eru fluttir í glæsiíbúðir í Randers á Austur-Jótlandi. Erlent 15.6.2009 08:11
Airbus-menn vara við getgátum um slysið Talsmenn Airbus-flugvélaverksmiðjanna vara við getgátum um orsakir slyss Air France-þotunnar sem fórst í Atlantshafi um mánaðamótin og taka fram að Airbus A330-vélin sé ein af öruggustu flugvélum sem notaðar hafa verið til farþegaflugs. Erlent 15.6.2009 08:09
Rottueyja rottulaus í fyrsta sinn í 229 ár Rottur hafa verið ráðandi tegund á Rottueyju síðan árið 1780. Þá fórst japanskt skip í nágrenni eyjarinnar og allar rottur sem um borð voru syntu í land á Rottueyju, sem reyndar hét ekki Rottueyja þá heldur Aleutian-eyja. Erlent 15.6.2009 07:31
Fyrsta Gay Pride Kínverja gekk eins og í sögu Mörg hundruð manns tóku þátt í fyrstu Gay Pride-hátíð Kína á götum Shanghai á laugardaginn. Ekki var um skrúðgöngu að ræða eins og er tíðkað víðast hvar annars staðar þar sem stjórnvöld höfðu bannað það. Erlent 15.6.2009 07:26
Lifnaði við í líkhúsinu Starfsfólki í líkhúsi í pólska bænum Jablonowo brá í brún þegar líkpoki sem lá þar á borði tók að hreyfast. Þegar farið var að athuga málið reyndist pokinn innihalda 84 ára gamla konu sem verið hafði úrskurðuð látin nokkrum klukkustundum áður. Erlent 15.6.2009 07:22
Norður-Kórea segir Bandaríkin auka líkur á kjarnorkustríði Stjórn Norður-Kóreu ásakar Bandaríkjamenn um að setja kjarnorkuflaugar sínar í Suður-Kóreu í viðbragðsstöðu og auka með því líkurnar á kjarnorkustríði. Erlent 15.6.2009 07:13
Fyrsta svínaflensudauðsfallið í Evrópu Fyrsta dauðsfallið af völdum svínaflensu í Evrópu er komið fram og var þar um að ræða skoskan einstakling sem þó hafði verið heilsuveill áður en hann fékk svínaflensuna. Erlent 15.6.2009 07:11
Úlfaþytur í Írönum eftir kosningar Írönsk stjórnvöld hafa bannað mótmæli stuðningsmanna Mir Hosseins Mousavi en hann tapaði fyrir sitjandi forseta landsins, Mahmoud Ahmadinedjad, í kosningum fyrir helgi. Erlent 15.6.2009 07:09
Má ekki fá nýtt hjarta Hinn ellefu ára gamli Hiroki Ando mun líklega deyja ef hann fær ekki nýtt hjarta en hann þjáist af sjúkdómi sem örvar og skaðar hjartað. Sami sjúkdómur dró systur hans til dauða fyrir fimm árum. Hiroki má hinsvegar ekki fá nýtt hjarta. Erlent 14.6.2009 21:00
Setur skilyrði fyrir stofnun Palestínuríkis Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, setur skilyrði fyrir því að samþykkja stofnun Palestínuríkis svo leysa megi deilur Ísraela og Pelstínumanna. Erlent 14.6.2009 18:30
Líkir ástandinu í Teheran við knattspyrnuleik Mahmoud Ahmadinejad nýkjörinn forseti Írans líkti óánægju andstæðinga sinna og mótmælum þeirra við knattspyrnuleik. Hann lofaði kosningarnar og sagði þær endurspegla vilja fólksins fyrir umheiminum. Erlent 14.6.2009 14:53
Einn helsti fjáröflunarmaður Al Kaída handtekinn í Jemen Lögregla í Arabaríkinu Jemen handtók fyrir helgi einn helsta fjáröflunarmann Al Kaída hryðjuverkasamtakanna. Hassan Hússein Alvan er frá Sádí Arabíu og aflaði fé fyrir hryðjuverkasamtökin í heimalandinu og einnig í Jemen. Erlent 14.6.2009 13:18
Grunaður barnaníðingur segist hafa fjarvistarsönnun Barnaníðingurinn Raymond Hewlett talar í fyrsta skipti um rannsóknina á Madeleine McCann í breska blaðinu Sunday Mirror í dag. Hann segist hafa fjarvistarsönnun en vill ekki gefa hana upp. Raymond segist ekki hafa drepið Maddie litlu en hann berst við krabbamein og er kominn á garfarbakkann. Erlent 14.6.2009 10:44
Fleiri en hundrað handteknir í Teheran í nótt Fleiri en hundrað umbótasinnar voru handteknir í Íran í nótt eftir að þeir og mörg þúsund manns til viðbótar mótmæltu í gær úrslitum forsetakosninga í landinu fyrir helgi. Erlent 14.6.2009 09:28
Anna Frank daðraði við stráka og skipti stöðugt um hárgreiðslu „Hún sagði sögur, daðraði svívirðilega mikið við stráka og var sífellt að skipta um hárgreiðslu.“ Þessi lýsing gæti átti við hvaða unglinsstúlku sem ólst upp í Evrópu. En svona er það sem Eva Schloss man eftir æskuvinkonu sinni Önnu Frank, sem hefði fagnað áttatíu ára afmæli sínu í þessari viku ef hún hefði ekki látið lífið í útrýmingarbúðum nasista. Erlent 14.6.2009 03:00
Fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu flæktur í fíkniefnamál Háttsettur fyrrum yfirmaður hersins í Gíneu er meðal nítján annarra sem búist er við að eigi yfir höfði sér ákæru vegna flutnings á fíkniefnum á næstu dögum. Ríkisfjölmiðilinn þar í landi sagði í dag að Diarra Camara hafi verið meðal þeirra sem handteknir hafa verið eftir mikla rannsókn undanfarinna mánaða. Sonur Camara er einn hinna handteknu en þar má einnig finna aðra undirmenn hans í hernum. Erlent 13.6.2009 23:00
Segir kosningarnar hafa verið algjörlega frjálsar Mahmoud Ahmadinejad sem var endurkjörinn forseti Írans í gær segir að kosningarnar hafi veirð algjörlega frjálsar og heilbrigðar. Ahmadinejad var kosinn til næstu fjögurra ára en hann vísar þeirri gagnrýni á bug að einhver brögð hafi verið í tafli. Til átaka kom í höfuðborginni Teheran þegar ljóst úrslit kosninganna lágu fyrir en margir bjuggust við að Ahmadinejad myndi tapa kosningunum. Erlent 13.6.2009 19:36
Átök í Teheran vegna úrslita forsetakosninganna Til átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í Teheran, höfuðborg Írans, í dag eftir að tilkynnt var að Mahmoud Ahmadinejad hefði verið endurkjörinn forseti landsins í kosningum í gær. Erlent 13.6.2009 14:50
Feeney hreinsaður af ásökunum um aðild að morði Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, hefur verið hreinsaður af ásökunum um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. Erlent 13.6.2009 13:24
Feeney grunaður um morð í Írak Donald Feeney, sem sat í fangelsi á Íslandi fyrir barnsrán, er grunaður um aðild að hrottalegu morði á græna svæðinu í Bagdad. Feeney var handtekinn í síðustu viku ásamt syni sínum en þeir gætu orðið fyrstu bandaríksu verktakarnir sem sóttir verða til saka í Írak. Erlent 13.6.2009 12:02
Norður-Kórea hótar að smíða kjarnorkusprengjur Stjórnvöld í Norður-Kóreu hóta því að smíða kjarnorkusprengjur úr plútónbirgðum sínum og hefja aftur auðgun úrans samkvæmt kjarnorkuátælun sinni. Þetta er svar Norður-Kóreumanna við einróma ákvörðun öryggisráðs Erlent 13.6.2009 10:00