Erlent

Búlgarar rannsaka lottómálið

Svilen Neykov, íþróttamálaráðherra Búlgaríu, hefur fyrirskipað rannsókn á framkvæmd lottósins þar í landi eftir að nákvæmlega sömu sex tölurnar komu upp í lottóinu tvo útdrætti í röð, 6. og 10. september.

Erlent

Stærsti heróínfundur Bretlands

Risafarmur af heróíni sem talið er vera um 25 milljóna punda virði hefur verið gerður upptækur á Bretlandi. Þetta er talið vera stærsti heróínfundur í landinu. Landamæraeftirlit Bretlands á Heathrow stöðvaði vörusendingu með smávarningi sem kom til landsins frá Suður Afríku, fyrr í þessu mánuði. Þegar sendingin var skoðuð betur komu um 165 kíló af efninu í ljós.

Erlent

Lottótölur gera Búlgara brjálaða

Búlgörsk stjórnvöld hafa hleypt af stokkunum rannsókn vegna ótrúlegs atviks sem átti sér stað í ríkislottói landsins á dögunum. Þá voru dregnar út tölurnar 4 - 15 - 23 - 24 - 35 og 42, sem væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá staðreynd að nákvæmlega sömu tölur komu upp úr kassanum í drættinum vikuna á undan.

Erlent

Hótelgestir fá afslátt ef þeir búa til barn

Karabíska hótelið Westin Resort býður gestum sem dvelja á hótelinu afslátt af gistingu ef þeir geta barn á meðan að á dvöl þeirra á hótelinu stendur. Hótelið er staðsett á karabísku eyjunni Aruba.

Erlent

Færri börn deyja á hverju ári

Dánartíðni barna undir fimm ára aldri hélt áfram að lækka á árinu 2008 og hefur hún lækkað samfellt í tuttugu ár, segir í nýrri skýrslu frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Erlent

Misnotaði dóttur sína í 30 ár

Ástralar eru slegnir yfir máli föður í Viktoríufylki sem hélt dóttur sinni fanginni frá ellefu ára aldri og misnotaði hana kynferðislega nánast daglega í 30 ár. Nágrannar feðginanna játuðu að þá hefði grunað eitthvað en vildu þó ekki segja neitt þar sem þeir vildu ekki valda neinum vandræðum.

Erlent

Danskir Vítisenglar handteknir

Lögregla í bænum Vejle á Suður-Jótlandi réðst í gær til inngöngu í félagsheimili vélhjólaklúbbsins Vítisengla sem nýlega var tekið í notkun þar í bænum. Nokkrir hafa verið handteknir en talsmaður lögreglunnar í Vejle vill ekki tjá sig um það enn sem komið er hvort vopn eða fíkniefni hafi fundist í húsnæðinu.

Erlent

Deilt um háhælaskyldu

Bresk stéttarfélög deila nú við vinnuveitendur um það hvort hægt sé að skylda konur til að ganga í háhælaskóm í vinnunni.

Erlent

Einn af hverjum sjö vill múrinn aftur

Einn af hverjum sjö Þjóðverjum vill gjarnan fá Berlínarmúrinn aftur og telur þessi hópur lífið hafa verið mun betra þegar Þýskalandi var skipt milli austurs og vesturs.

Erlent

Breskur sjúklingur heldur matarbingó

Sjúklingi á breskum spítala ofbýður svo maturinn sem fyrir hann er borinn að hann hefur birt myndir af honum á Netinu og býður almenningi að reyna að giska á um hvaða rétti sé að ræða.

Erlent

Yfirheyra grunaðan al Qaeda-liða í Denver

Bandaríska alríkislögreglan FBI yfirheyrir nú rúmlega tvítugan mann í Denver í Colorado en hann er talinn tengjast hópi á vegum al Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í New York sem lögreglan handtók í byrjun vikunnar.

Erlent

Burt Reynolds í meðferð

Leikarinn Burt Reynolds er kominn inn á meðferðarstofnun í þeim tilgangi að reyna að venja sig af sterkum verkjalyfjum sem hann ánetjaðist í kjölfar skurðaðgerðar á baki, sem hann gekkst undir á dögunum.

Erlent

Ókannað skilaboð Buffets hefði getað breytt sögunni

Skilaboð á talhólfi hefði getað bjargað Lehman Brothers frá falli, ef aðeins milljarðamæringurinn Warren Buffet hefði kunnað að hlusta á talhólfið sitt. Buffet hefur upplýst að Barclays bankinn hafi haft samband við sig í upphafi fjármálakreppunnar í september á síðasta ári, og falast eftir því að hann leggði fram tryggingar vegna tilboðs bankans um kaup á Lehman.

Erlent

Barroso endurkjörinn

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso var í dag endurkjörinn í embætti til fimm ára. Hann hefur gegnt stöðunni síðastliðin fimm ár og Evrópuþingið kaus hann til áframhaldandi setu með nokkrum meirihluta. 736 þingmenn eru á Evrópuþinginu og hlaut Barroso 382 atkvæði. 219 voru andsnúnir því að Barroso yrði endurkjörinn og restin sat hjá eða mætti ekki til atkvæðagreiðslu.

Erlent

Ný lög um tónlistarstuld í Frakklandi

Frakkar skera nú upp herör gegn ólöglegu niðurhali tónlistar á Netinu og hafa samþykkt lög sem heimila háar sektir og jafnvel fangelsisdóma, gerist netnotendur sekir um brot á höfundarrétti með ólöglegri dreifingu eða öflun á tónlist, jafnt sem kvikmyndum.

Erlent

Hatoyama tekur við völdum

Japanska þingið útnefndi Yukio Hatoyama næsta forsætisráðherra landsins í morgun, eins og gert hafði verið ráð fyrir.

Erlent

Joe Wilson áminntur

Fulltrúadeildin á bandarískaþinginu undir forystu demókrata áminnti í kvöld þingmann repúblikana sem æpti „Þú lýgur!" að Barack Obama þegar sá síðarnefndi varði umbætur sínar í heilbrigðiskerfinu í ræðu í síðustu viku.

Erlent

Lundúnabúar skattpíndir í kjölfar íslenska bankahrunsins

Íbúar Westminster í miðborg Lundúna þurfa á næstunni að borga sérstaklega fyrir að láta fjarlægja stóra hluti á borð við sófa eða ísskápa af heimilum heimilum sínum. Þjónustan hefur hingað til verið endurgjaldslaus og hafa íbúar hverfisins átt kost á að láta fjarlægja stóra hluti þrisvar sinnum á ári. Þetta var tekið upp vegna þess að íbúar hverfisins höfðu í auknum mæli tekið upp á að henda rusli út á götur til þess að losna við það.

Erlent

Dauði Jacksons lífseigt umræðuefni

Ekkert lát er á umræðum um dauða Michaels Jackson og nú stígur Deepak Chopra, andlegur ráðgjafi og sjálfshjálparmeistari ýmissa frægra einstaklinga, þar á meðal Jacksons, fram og ræðir málið við blaðamann Telegraph.

Erlent