Erlent

Obama fagnar áfangasigri í hryðjuverkastríðinu

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, sagði í ræðu sinni á landsráðstefnu gegn hryðjuverkum, að áfangasigur hefði náðst í hryðjuverkastríðinu. Hann sagði að hryðjuverkasamtökin Al Kaída hefði orðið fyrir miklu áfalli eftir að bandamenn hafi komið í veg fyrir röð hryðjuverkatilrauna.

Erlent

Fólki fleygt lifandi út úr flugvélum

Fyrrverandi Argentinskur herflugmaður sem nú er hollenskur ríkisborgari kom fyrir rétt á Spáni í dag. Hann er grunaður um þáttöku í dauðaflugferðunum svokölluðu í Argentínu.

Erlent

Krókódíll í miðbænum

Lögreglan í Ástralíu handtók á dögunum tveggja og hálfs metra langan saltvatns krókódíl sem var að þvælast um götur í smábæ á norðurströnd álfunnar.

Erlent

Nauðungaruppboðum fjölgar í Danmörku

Nauðungaruppboðum á fasteignum í Danmörku hefur fjölgað um þrjátíu og eitt prósent á því ári sem liðið er frá því kreppan skall á. Og þeim á enn eftir að fjölga ef marka má spár.

Erlent

Rauð andlit í varnarmálaráðuneytinu

Vegna tíðra leka á leynilegum upplýsingum lét breska varnarmálaráðuneytið semja leiðbeiningar fyrir starfsmenn sína um hvernig hægt væri að koma í veg fyrir slíkt. Þessu leyniskjali hefur nú verið lekið á netið.

Erlent

Biðja farþega að létta á sér fyrir flug

Japanska flugfélagið All Nippon Airways ætlar að setja upp eitthundrað afskermuð klósett við alla útganga sína á flugvöllum til þess að farþegarnir geti létt á sér áður en þeir ganga um borð.

Erlent

Neita að skrásetja sambúð lesbía

Þær Irina Fet og Irina Shipitko ætla að gifta sig í Kanada hinn tuttugasta og þriðja þessa mánaðar. Áður en þær létu af því verða vildu þær tryggja að hjónabandið yrði skrásett í Rússlandi, eins og gert er þegar Rússneskir þegnar gifta sig erlendis.

Erlent

Mótmæli á fundi AGS í Istanbúl

Tyrkneska lögreglan beitti táragasi og vatnsfallbyssum til þess að leysa upp mótmælafund gegn Alþjóða gjaldeyrissjóðnum sem nú stendur yfir í Istanbúl.

Erlent

Tígrisdýr veittist að manni í dýragarði

Maður er þó nokkuð slasaður eftir að hann varð fyrir árás síberíutígurs í dýragarðinum í Calgary í Kanada í gær. Maðurinn, sem er tæplega þrítugur, klifraði yfir tæplega þriggja metra háa öryggisgirðingu ásamt félaga sínum og gerði tígrisdýrinu Vitali bilt við.

Erlent

Method Man handtekinn fyrir skattsvik

Rapptónlistarmaðurinn og leikarinn Clifford Smith, einnig þekktur undir heitinu Method Man, var handtekinn í New York í gær vegna gruns um umfangsmikil skattsvik.

Erlent

Kim Jong-il segist fús til viðræðna

Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur vendað kvæði sínu í kross og lýst yfir vilja sínum til að taka á ný þátt í viðræðum sex ríkja um kjarnorkumál landsins.

Erlent

Íhaldsmenn vilja Breta lengur á atvinnumarkaði

Breskir launþegar munu verða lengur á atvinnumarkaði verði tillögur íhaldsmanna þar í landi að veruleika. Gert er ráð fyrir að George Osborn, fjármálaráðherra í skuggaráðuneyti Íhaldsflokksins, muni kynna tillögurnar í dag.

Erlent

Margir Danir stela úr vinnunni

Um 53% Dana stela af vinnustað sínum og það eru einkum eldri starfsmenn sem stela. Þetta sýnir ný rannsókn sem sérstakt glæpaforvarnaráð í Danmörku lét gera.

Erlent

Obama hittir ekki Dalai Lama

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, neitar að hitta Dalai Lama í Washington í þessari viku. Breska blaðið The Telegraph segir að með þessu vilji Obama mýkja Kínverja en þeir hafa lagst gegn því að þjóðarleiðtogar hitti Lama, sem er andlegur leiðtogi Tíbeta. Dalai Lama er handhafi friðarverðlauna Nóbels. Obama verður fyrsti forseti Bandaríkjanna sem hittir hann ekki frá því að Dalai Lama hóf reglulegar heimsóknir sínar til Washington árið 1991.

Erlent

Áttuðu sig á starfi litninga

Þrír Bandaríkjamenn fá Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár fyrir að hafa fundið skýringar á því hvernig litningar halda sér ósködduðum þegar frumur skiptast.

Erlent

Nýr leiðtogi talibana hótar hefndum

Pakistanski herinn hefur að miklu leyti barið niður sókn talibana í Swat dalnum undanfarna mánuði og er nú að undirbúa stórsókn gegn hersveitum þeirra og al-Kaida í Suður-Waziristan.

Erlent

Stukku saman ofan af hárri brú

Erskine brúin sem er rétt utan við Glasgow er yfir þrjátíu metra yfir sjávarmáli. Sjónarvottar segja að unglingsstúlkurnar tvær hafi klifrað upp á handrið brúarinnar, haldist í hendur og stokkið framaf ofan í ána Clyde.

Erlent

Flugmenn mótmæla reglum um hvíldartíma

Evrópusamband flugmanna mun standa fyrir mótmælum í dag. Mótmælin beinast að regluverki Evrópusambandsins um flug-, vakt- og hvíldartíma flugáhafna, sem samtökin telja brýnt að laga.

Erlent

Neyðarástand í Kaliforníu vegna skógarelda

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, lýsti yfir neyðarástandi í San Bernardino-sýslu í gær en þar loga miklir skógareldar sem stofna fjölda bygginga í hættu og hafa um eitt þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín.

Erlent

Úrelt veðurkort áttu þátt í Air France-slysinu

Hugsanlega hefði mátt koma í veg fyrir flugslysið 1. júní síðastliðinn, þegar Airbus-farþegaþota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshafið á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands, hefði áhöfn hennar haft aðgang að nýlegri veðurkortum.

Erlent

Ólíklegt að fleiri finnist á lífi

Hjálparstarfsmenn telja ólíklegt að fleiri finnist á lífi í rústum á eyjunni Súmötru í Indónesíu. Tveir stórir jarðskjálftar skóku eyjuna í síðustu viku. Sá fyrsti var upp á 7,6 á Richter og sá síðari upp á 6,8.

Erlent

Talibanar drápu tíu hermenn

Átta bandarískir og tveir afganskir hermenn féllu í árás í Nuristan-héraði í Afganistan um helgina. Árásin var sú mannskæðasta á herlið bandamanna á svæðinu í meira en ár.

Erlent