Erlent

Varð fyrir snjóbolta og dró upp byssu

Myndskeið, sem nú má sjá á vefnum YouTube, sýnir, að því er virðist, hvar lögreglumaður á frívakt í Washington dregur upp skammbyssu eftir að snjóbolta var kastað í bíl hans á laugardaginn.

Erlent

Viðskiptavinir gripu ræningja

Nokkrir viðskiptavinir í verslun í Østervrå á Norður-Jótlandi sýndu mikið snarræði í gærkvöldi þegar þeir hlupu uppi tvo ræningja og yfirbuguðu þá.

Erlent

Bilið minnkar milli bresku flokkanna

Munurinn á fylgi Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins í Bretlandi mælist nú aðeins níu prósent samkvæmt könnun sem birtist í breska blaðinu Independent og hefur ekki verið svo mjótt á munum síðan í maí.

Erlent

Standa með Stalín

Aðdáendur Jósefs Stalín, bæði í Rússlandi og Georgíu, minntust þess í gær að 130 ár eru liðin frá fæðingu þessa alræmda einræðisherra, sem stjórnaði Sovétríkjunum í tæpa þrjá áratugi.

Erlent

Þingmenn missi nefndarlaun

Formaður Sjálfsstjórnarflokksins í Færeyjum, Kári P. Højgaard, segist tilbúinn til þess að þingmenn fái hér eftir ekki greitt sérstaklega fyrir embætti innan þings, svo sem þegar þeir fara með formennsku í þingnefndum, heldur verði þingfararkaup látið duga.

Erlent

Fimm menn handteknir

Fimm menn voru handteknir seint á sunnudagskvöld fyrir stuld á járnskiltinu alræmda, sem var yfir hliði útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Póllandi.

Erlent

Samþykki nú nánast öruggt

Demókratar í öldungadeild Bandaríkjanna telja nú nánast öruggt að frumvarp um nýja skipan heilbrigðistrygginga verði samþykkt í deildinni fyrir jól.

Erlent

Útskrifaðar fyrir afmælisdag

Tvíburarnir Krishna og Trishna frá Bangladess voru útskrifaðir frá sjúkrahúsi í Ástralíu í gær, þar sem þær undirgengust erfiða aðgerð fyrir fimm vikum.

Erlent

Breskri leiðtogar í fyrsta sinn í sjónvarpskappræður

Leiðtogar þriggja stærstu stjórnmálaflokka Bretlands munu mætast í kappræðum í sjónvarpi fyrir kosningar sem fyrirhugaðar eru einhverntíma á næsta ári, líklegast í maí. Þetta er í fyrsta sinn í breskri sögu sem þessi háttur er hafður á. Gordon Brown, Verkamannaflokki, David Cameron, Íhaldsflokki og Nick Clegg fyrir Frjálslynda demókrata munu mætast í kappræðum á sjónvarpsstöðvunum ITV, Sky og BBC. Kappræðurnar verða haldnar fyrir framan áhorfendur í sjónvarpsal og verður hver þáttur um 90 mínútna langur.

Erlent

Tugþúsundir flýja eldfjall

Tugþúsundum hefur verið fyrirskipað að yfirgefa heimili sín á Fillipseyjum en vísindamenn reikna með því að eitt stærsta eldfjall landsins fari að gjósa á næstu dögum. Fleiri en 9000 fjölskyldur, eða tæplega 45 þúsund manns, hafa verið fluttar í búðir sem reistar hafa verið í hæfilegri fjarlægð frá fjallinu Mayon. Sumir íbúar í nágrenninu kjósa þó heldur að halda sig heima og óttast margir að þjófar fari ránshendi um heimili þeirra yfirgefi þeir þau.

Erlent

Mál gegn Polanski ekki látið niður falla

Áfrýjunardómstóll í Kalíforníu hefur hafnað beiðni kvikmyndaleikstjórans Romans Polanskis um að mál gegn honum verði látið niður falla. Polanski var árið 1977 ákærður og dæmdur fyrir barnaníð í ríkinu. Hann flúði til Evrópu og hefur aldrei snúið aftur á bandaríska grund.

Erlent

Öngþveiti í Evrópu

Öngþveiti ríkir í samgöngumálum í Evrópu vegna mikils fannfergis rétt þegar milljónir manna ætla að bregða sér af bæ um hátíðarnar.

Erlent

Bandaríkin æfa eldflaugaárás frá Íran

Bandaríkjamenn ætla í janúar að æfa hvernig þeir myndu verjast langdrægri kjarnorkueldflaug frá Íran. Þeir hafa áður æft hvernig þeir myndu verjast eldflaugaárás frá Norður-Kóreu.

Erlent

Bannað að barna á vígvellinum

Bandarískur hershöfðingi í Norður-Írak hefur hótað að leiða liðsmenn sína fyrir herrétt ef þeir verða ófrískir á meðan þeir gegna herþjónustu þar í landi.

Erlent

Ísraelar viðurkenna líffæraþjófanði

Mikið upphlaup varð í sumar þegar sænskur blaðamaður hafði eftir palestinskum heimildarmönnum að Ísraelar hefðu stolið líffærum úr líkum palestínumanna sem hefðu fallið í átökum við ísraelska herinn.

Erlent

Maður í gervi villisvíns skotinn til bana

Tveir grískir veiðimenn skutu þann þriðja til bana um helgina þar sem hann skreið um í skóglendi, sveipaður feldi sem hann notaði til að dulbúast sem villisvín og freista þess þannig að veiða eitt slíkt.

Erlent

Bandaríkjamenn grafa sig út úr sköflunum

Íbúar austurstrandar Bandaríkjanna eru nú í óða önn að grafa sig út úr sköflum eftir mikið fannfergi og storm þar um helgina en jafnfallinn snjór náði allt að 60 sentimetrum og var til dæmis eitt met sett í þeim efnum í Maryland.

Erlent

Auschwitz-skiltið endurheimt

Hið heimsþekkta járnskilti Auschwitz-útrýmingarbúðanna, þar sem stendur Arbeit macht Frei, Vinnan gefur frelsi, hefur verið endurheimt en því var stolið í síðustu viku.

Erlent

Þrír geimfarar halda til geimstöðvarinnar

Rússnesku Sojus-geimfari var skotið á loft frá Baikonur-geimstöðinni Kazakstan í nótt með þrjá geimfara innanborðs. Mennirnir eru frá Bandaríkjunum, Japan og Rússlandi og mun geimfarið koma að Alþjóðlegu geimstöðinni á Þorláksmessu.

Erlent

Eurostar-lestin stopp vegna frosts

Allt að hundrað þúsund manns beggja vegna Ermarsunds sjá fram á að komast ekki á milli Bretlands og meginlandsins eftir að ljóst varð í gær að lestir Eurostar-fyrirtækisins munu ekki ganga um Ermarsundsgöngin í dag og ekki þangað til veður skánar í Evrópu en þar eru nú frosthörkur og fannfergi en hitamunur ofan- og neðanjarðar veldur rafmagnstruflunum í lestunum.

Erlent

Tólf fangar sendir heim

Tólf fangar voru fluttir frá Guantánamo-fangelsinu til síns heima um helgina. Sex karlmenn frá Jemen, fjórir Afganar og tveir Sómalar voru fluttir frá fangelsinu.

Erlent