Erlent

Ákvarðanir forseta útskýrðar

George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sendir næsta haust frá sér sjálfsævisögulega bók, þar sem hann skýrir frá tildrögum og forsendum umdeildra ákvarðana sem hann tók á forsetaferli sínum.

Erlent

Konur vilja karlmenn sem eiga iPhone

Bresk rannsókn sýnir að konur líta karlmenn sem eiga iPhone hýrari augum en karla sem ekki eiga iPhone. Ástæðan er ekki sú að iPhone símarnir eru í sjálfu sér svo kynþokkafullir heldur gefa símareikningarnir það til kynna að mennirnir séu álitlegri en ella.

Erlent

Óttast að Madeleine skyggi á Viktoríu systur sína

Tilkynnt var um það í dag að Madeleine svíaprinsessa væri hætt með kærastanum sínum, Jonas Bergstrom. Þetta þykir sæta nokkrum tíðindum enda hafði jafnvel verið búist við því að hjónaleysin myndu ganga upp að altarinu áður en langt um væri liðið.

Erlent

Reyna að rýma til fyrir strandaglópa

Bresk flugfélög biðja nú farþega sem eiga bókað far um helgina um að fresta heimferð sinni til að skapa pláss fyrir þá farþega sem urðu strandaglópar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Erlent

Veiðibannið í endurskoðun

Tillaga formanns og varaformanns Alþjóðahvalveiðiráðsins um breytt fyrirkomulag hvalveiðibanns fyrir næstu tíu árin er sett fram í þeirri von að hún nægi til að stilla til friðar innan ráðsins, þannig að bæði hvalveiðiþjóðir og andstæðingar hvalveiða megi vel við una.

Erlent

Eru á móti bótum frá ríkinu

Flugumferð Finnair, ríkisflugfélags Finna, færist í eðlilegt horf um helgina eftir að hafa farið mjög úr skorðum í vikunni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Í tilkynningu félagsins í gær var haft eftir Mika Vehviläinen, forstjóra Finnair, að farþegar sem orðið hefðu fyrir röskunum yrðu aðstoðaðir eftir megni. Enn voru þá nokkur þúsund strand.

Erlent

Grikkir þurfa að skera grimmt niður

George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, fór í gær formlega fram á aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem á að tryggja að ríkissjóður landsins lendi ekki í greiðsluþroti á næstunni.

Erlent

Ellefu manna er enn leitað

Ellefu manna af olíuborpallinum sem sprakk á Mexíkóflóa í vikunni er enn leitað. Hrint hefur verið af stokkunum umfangsmikilli aðgerð til að koma í veg fyrir meiri háttar umhverfisslys.

Erlent

Sektuð fyrir að aka með blæju

Frönsk kona var nýlega sektuð um 22 evrur (jafnvirði tæpra 3.800 króna) fyrir að aka með höfuðblæju. Taldi lögregla að blæjan byrgði henni fulla sýn í umferðinni.

Erlent

Reyna að blása lífi í viðræður

Sendifulltrúi Bandaríkjaforseta reynir nú að blása lífi í friðarviðræður Ísraels og Palestínu sem hafa verið stopp í meira en ár. Um leið eru stirðleikar í samskiptum Bandaríkjanna og Ísraels.

Erlent

Sex lögreglumenn féllu í Mexíkó

Sjö létust í skotbardaga milli lögreglu og glæpamanna í mexíkósku borginni Ciudad Juarez í kvöld. Meðal hinna látnu eru sex lögreglumenn. Skotbardaginn hófst eftir að lögregla reyndi að stöðva bifreið en í henni var leigumorðingi.

Erlent

Palin vitnaði gegn tölvuþrjóti

Sarah Palin, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og ríkisstjóri í Alaska, bar í dag vitni gegn tölvuþrjóti sem braust inn í tölvupóstinn hennar í kosningabaráttunni fyrir tveimur árum. Tölvuþrjóturinn heitir David Kernell og 22 ára fyrrverandi nemi í Háskólanum í Tennessee þar sem hann lagði stund á nám í hagfræði.

Erlent

Leitað að bankaræningja á áttræðisaldri

Lögreglan í Kalíforníu í Bandaríkjunum leitar nú logandi ljósi að bankaræningja sem rænt hefur sjö banka í San Diego undanfarin misseri. Bankarán eru daglegt brauð í Bandaríkjunum en þessi ræningi sker sig úr en hann er talinn vera á áttræðisaldri.

Erlent

Síðasta hálmstrá Polanskis brást

Dómstóll í Kalíforníu hefur hafnað beiðni kvikmyndaleikstjórans Romans Polanskis að dæmt verði í máli hans að honum fjarverandi. Polanski var á áttund áratugi síðustu aldar dæmdur fyrir að eiga samræði við stúlku undir lögaldri en hann flúði land áður en afplánun hófst.

Erlent

Enginn skýr sigurvegari í kappræðunum í Bretlandi

Aðrar kappræður breskra stjórnmálaleiðtoga fóru fram í gær og í þetta skiptið var enginn ótvíræður sigurvegari. Önnur útsendingin af þremur þar sem formenn þriggja stærstu flokka Bretlands takast á í sjónvarpskappræðum fyrir komandi kosningar fór fram í gærkvöldi.

Erlent

Hvalveiðar verði leyfðar

Íslendingar fá að veiða 80 langreyðar og 80 hrefnur á ári ef málamiðlunartillaga formanns og varaformanns Alþjóðahvalveiðiráðsins nær fram að ganga á næsta fundi ráðsins í júní.

Erlent

Skítur hvala nærir höfin

Hvalaskítur gerir heimshöfin járnríkari. Þessu hafa ástralskir vísindamenn komist að eftir að hafa stundað rannsóknir í Suðurhöfum.

Erlent

Viðmiðunarmörk vegna gosöskunnar voru færð til

Flugbannið í Evrópulöndum stóð í tæpa viku og varð til þess að fella þurfti niður meira en 100 þúsund flugferðir. Beinn kostnaður flugfélaga er kominn yfir 200 milljarða króna að mati alþjóðlegu flugmálastofnunarinnar IATA, og ómæld eru þá hvers kyns óþægindi flugfarþega sem urðu innlyksa víðs vegar um Evrópu sem og annarra er treystu á vöruflutning með flugvélum.

Erlent

Getum margt lært af Íslandi

Þýskaland Þýska þingið samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að heimila Evrópusambandinu að hefja aðildarviðræður við Ísland.

Erlent

Aukin harka í kappræðum

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði andstæðinga sína, þá Nick Clegg, leiðtoga Frjálslynda demókrataflokksins, og David Cameron, leiðtoga Íhaldsflokksins, báða vera hættulega Bretlandi í sjónvarpskappræðum þeirra í gærkvöld. Meiri harka var í kappræðunum nú en fyrir viku, en allra augu beindust að Nick Clegg sem óvænt stóð sig það vel í fyrstu kappræðunum að flokkarnir þrír standa nú nokkuð jafnt að vígi fyrir þingkosningarnar 6. maí.- gb

Erlent

Obama taki ábyrgð

Vinsældir Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, hafa aukist um 3% og segjast nú 46% Bandaríkjamanna vera ánægðir með störf hans. Jafnmargir segjast vera ósáttir við störf hans sem forseta. Þetta kemur fram í skoðanakönnun bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar Fox News.

Erlent

Fundar með Ísraelum og Palestínumönnum

George Mitchell, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Mið-Austurlanda, er á leið Ísraels og Palestínu. Hann hyggst reyna hvað hann getur til að fá Ísraela og Palestínumenn til að setjast á nýjan leik við samningaborðið.

Erlent

Neyðarfundur í kjölfar sprenginga í Bangkok

Að minnsta kosti þrír eru látnir og meira en 80 eru særðir eftir að fimm sprengjur sprungu í dag í Bangkok, höfuðborg Tælands, í dag. Meðal hinna særðu eru útlendingar. Í framhaldinu kallaði forsætisráðherrann Abhisit Vejjajiva ríkisstjórn landsins saman til neyðarfundar.

Erlent

Mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Sky

Aðrar sjónvarpskappræður leiðtoga þriggja stærstu stjórnmálaflokka Bretlands fara fram klukkan sjö að íslenskum tíma. Mikill fjöldi mótmælenda eru samankomnir fyrir utan höfuðstöðvar Sky sjónvarpsstöðvarinnar sem sýnir beint frá kappræðunum. Í hópnum eru andstæðingar stríðsrekstrar Breta í Írak og Afganistan áberandi.

Erlent

Höfundum South Park hótað

Höfundum teiknimyndaþáttanna South Park hefur verið hótað líkamsmeiðingum eftir að Múhameð spámaður birtist í þættinum í bjarnarbúningi. Þættirnir hafa alla tíð þótt umdeildir og höfundarnir Matt Stone og Trey Parker oft þurft að svara fyrir efni þáttanna.

Erlent

Ríkisstjórn Belgíu fallin

Ríkisstjórn Belgíu er fallin eftir að forsætisráðherrann Yves Leterme tilkynnti um afsögn sína í dag. Það gerði hann kjölfar þess að einn af stjórnarflokkunum ákvað að slíta stjórnarsamstarfinu. Erfiðasta verkefni stjórnarinnar hefur verið að halda í skefjum deilum Vallóna og Flæmingja, sem búa hvorir í sínum helmingi landsins.

Erlent