Erlent
Tólf fórust í flóðum í Póllandi Að minnsta kosti 12 hafa farist í miklum flóðum í Póllandi um helgina. Um 20 þúsund Pólverjar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og þá er rafmagnslaust víða. Í kjölfar mikillar úrkomu flæddu árnar Vistula, Odra og Warta yfir bakka sína. Erlent 24.5.2010 07:15
Synti í jökullóni á Everest Breskur maður sem berst fyrir umhverfismálum varð í gær fyrstur manna til að synda í jökullóni á Everest fjalli. Hinn fertugi Lewis Gordon Pugh synti einn kílómeter yfir Pumori vatnið sem er í 17.400 feta hæð. Erlent 23.5.2010 22:45
Suður-Kóreumenn undirbúa viðbrögð Lee Myung-bak, forseti Suður-Kóreu, og ráðamenn í Seúl undirbúa nú viðbrögð við árás Norður-Kóreu á herskip sunnanmanna í lok mars. Forsetinn hyggst leita til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart nágrönnum sínum í norðri. Erlent 23.5.2010 21:15
Flugliðar rétta fram sáttahönd Verkfalli flugliða hjá British Airways verður aflýst ef flugmiðafríðindum starfsmanna verður aftur komið á. Þetta sagði verkalýðsforkólfurinn Tony Woodley eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum milli deiluaðila í dag. Fimm daga verkfall er boðað frá miðnætti í kvöld. Erlent 23.5.2010 18:58
Fergie sögð miður sín og full iðrunar Sarah Ferguson, hertogaynja af York, er sögð miður sín og full iðrunar eftir upp komst um tilraun hennar til að selja aðgang að Andrew Bretaprins, fyrrverandi eiginmanni hennar. Erlent 23.5.2010 15:22
Stefnir í fimm daga verkfall hjá British Airways Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum á milli samningsaðila yfirmanna British Airways og flugliða fyrirtækisins. Allt stefnir því í að boðað fimm daga verkfall flugliða hefjist á miðnætti. Erlent 23.5.2010 14:30
Mannskæð slys í Kína 32 létust í Kína í dag þegar flutningabíll á röngum vegarhelmingi lenti framan á rútu í Liaoning héraði. Mikill eldur braust út við áreksturinn. Alls létust 29 farþegar rútunnar, en tuttugu og fjórir eru slasaðir, þar af þrír alvarlega. Þeir þrír sem voru í flutningabílnum létust einnig í slysinu. Verið er að rannsaka tildrög slyssins en rútan var á leið frá Tianjin borg skammt frá Peking til Harbin í Helongjiang héraði. Erlent 23.5.2010 14:07
Prinsinn vissi ekki af samkomulagi Fergie Enn eitt hneykslið skekur nú bresku krúnuna eftir að Sarah Ferguson var gómuð af rannsóknarblaðamanni þar sem hún krafðist rúmlega 90 milljóna króna fyrir að koma honum í samband við Andrew prins, fyrrverandi eiginmann sinn. Erlent 23.5.2010 13:19
Lögreglumaður verðlaunaður fyrir að skrá fljúgandi furðuhluti Breskur lögreglumaður hefur unnið alþjóðleg verðlaun fyrir skráningu á fljúgandi furðuhlutum sem lögreglumenn verða vitni að. Gary Heseltine tók við verðlaununum í Washington fyrir vefsíðu sína prufospolicedatabase, sem hann setti á laggirnar árið 2002. Erlent 23.5.2010 13:11
Kosið í Eþíópíu Gengið verður til kosninga í Eþíópíu í dag í fyrsta sinn síðan 2005, en síðustu kosningar enduðu með blóðsúthellingum. Kosningarnar hafa farið friðsamlega fram það sem af er degi. Erlent 23.5.2010 13:01
Ryanair fer fram á skaðabætur vegna eldgossins Ryanair mun fara fram á skaðabætur vegna truflana sem félagið varð fyrir vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Erlent 23.5.2010 12:05
Þjóðarleiðtogar senda samúðarkveðjur Allir helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent indversku þjóðinni samúðarkveðjur vegna flugslyssins á Indlandi í gær þar sem 158 manns létust. Rannsókn á slysinu er hafin, en flugritar flugvélarinnar virðast ekki enn komnir í leitirnar öfugt við það sem haldið var fram í gær. Erlent 23.5.2010 10:16
Hneyksli skekur bresku krúnuna Sarah Ferguson, hertogaynjan af York, var gómuð af rannsóknarblaðamanni þar sem hún krafðist rúmlega 90 milljóna króna fyrir að koma honum í samband við Andrew prins, fyrrverandi eiginmann sinn. Erlent 23.5.2010 10:11
Gerðu áhlaup á bækistöð bandaríska hersins í Kandahar Afganskir uppreisnarmenn úr röðum talibana gerðu áhlaup á flugvöllinn í Kandahar seint í gærkvöld. Flugvöllurinn er aðalbækistöð bandaríska hersins og bandamanna þeirra í suðurhluta Afganistan. Að sögn vitna ómuðu skothvellir og sprengingar um flugvöllinn í um tvær klukkustundir, en talsmaður herliðsins segir tiltölulega fáa hafa slasast í árásunum. Enn liggur ekkert fyrir um mannfall. Erlent 23.5.2010 09:59
Móti viðbragðsáætlun vegna olíuleka Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að tryggja verði að slys eins og það sem varð á Mexíkóflóa fyrir um mánuði síðan endurtaki sig ekki. Það var 20. apríl síðastliðinn sem stór olíuborpallur BP sökk í flóanum með þeim afleiðingum að olía lekur nú í hafið. Um 800 þúsund lítrar af olíu streyma út í hafið úr borholunni á degi hverjum að sögn BP en sérfræðingar telja að magnið sé mun meira. Erlent 22.5.2010 23:00
Fimm vitorðsmenn handteknir í Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að tengjast hinu misheppnaða sprengjutilræði í New York 1. maí þegar sprengju var komið fyrir í jeppa á Times Square. Tveimur dögum síðar var maður handtekinn á JFK flugvellinum á leið til Dubai. Maðurinn sem heitir Faisal Shahzad fæddist í Pakistan en hann fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 2007. Erlent 22.5.2010 22:00
Flugritarnir fundnir Boeing farþegaflugvél indverska flugfélagsins Air India Express sem fórst við lendingu á flugvellinum í Mangalore í morgun, lenti allt of innarlega á flugbrautinni og skautaði fram af henni niður bratta hlíð þar sem hún brotnaði í sundur í þykku skóglendi. Eldur braust út í brakinu. Flugvöllurinn þykir með þeim erfiðari að lenda á þar sem hann stendur á hæð með brattar hlíðar við báða flugbrautarenda. Erlent 22.5.2010 17:04
Pabbastelpa hneykslar presta Viktoría, krónprinsessa Svía, er harðlega gagnrýnd af sænskum prestum þessa dagana. Ástæðan er sú að hún hefur ákveðið að faðir hennar, Karl Gústav konungur, skuli fylgja henni inn kirkjugólfið þegar að hún giftir sig í sumar. Erlent 22.5.2010 10:44
Þrettán ára á Everest Þrettán ára gamall drengur frá Bandaríkjunum er yngsta manneskja til að komast á topp Mount Everst fjallsins, að því er fjölskylda hans segir í viðtali við breska ríkisútvarpið. Erlent 22.5.2010 10:01
Mannskætt flugslys í Indlandi - átta komust lífs af Átta manns lifðu af og 159 fórust í flugslysi á Indlandi í morgun, þegar farþegaþota hrapaði við borgina Mangalore í suðvesturhluta landsins. Margir hinna átta sem lifðu af slysið eru mikið slasaðir en nokkrir þeirra voru þó með fulla meðvitund og gátu gefið lýsingu á því sem gerðist. Erlent 22.5.2010 09:14
Reiðin vex með degi hverjum Þykk olíuleðja lagðist yfir æ stærra svæði af votlendinu við ósa Missippifljóts. Í heilan mánuð hafa íbúar á svæðinu óttast að þetta gerðist. Erlent 22.5.2010 00:45
Ráðist að rótum talibana Bandaríkjaher hefur sett sér það markmið að ná Zhari í Kandaharhéraði á sitt vald í sumar. Talibanahreyfingin varð til fyrir meira en áratug í Zhari, þar sem leiðtogi hennar, Muhammad Omar, er fæddur og uppalinn. Erlent 22.5.2010 00:30
Þegar Mukthar átti afmæli -myndband Þegar danski strætisvagnabílstjórinn Mukthar Mohammed átti afmæli um daginn langaði vini hans til þess að koma honum á óvart. Erlent 21.5.2010 14:47
Dýr þvergirðingsháttur Ekkillinn Philip Bowler var ósköp ánægður með bláu rimlagirðinguna sem aðskildi hús hans frá húsi nágrannans. Erlent 21.5.2010 14:32
Flugvélarflakið loks fundið í Afganistan Björgunarsveitir eru nú loks komnar að flakinu af farþegavélinni sem fórst í Afganistan í síðustu viku. Erlent 21.5.2010 11:34
Í fangelsi fyrir að skipuleggja orgíur Kínverskur karlmaður á sextugsaldri sér fram á breytta lifnaðarhætti en hann var á dögunum dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að taka þátt í svallveislum. Málið hefur vakið mikla athygli í Kína en maðurinn hefur stjórnað klúbbi síðustu sex ár þar sem fólk hittist og stundar kynlíf og skiptist á mökum. Erlent 21.5.2010 11:33
Elding lagði fimm í Noregi Fimm manns voru fluttir á sjúkrahús í Sandefjord í Noregi í gær eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Erlent 21.5.2010 10:01
Barnamorð á Spáni: Dómari ákveður sig í dag Dómari á Spáni mun ákveða í dag hvort Lianne Smith, móðir tveggja breskra barna sem létust á hótelherbergi þar í landi á dögunum verði ákærð fyrir morð. Konan sem er 45 ára gömul var handtekin á þriðjudag eftir að lík hinnar fimm ára gömlu Rebekku og hins ellefumánaða gamla Daníels fundust á hótelherbergi í bænum Lloret de Mar. Erlent 21.5.2010 08:37
Bresk fjölskylda myrt í Pakistan Þrír breskir ríkisborgarar, allir úr sömu fjölskyldunni, voru myrtir í Pakistan í gær. Maður, eiginkona hans og 22 ára gömul dóttir voru skotin til bana í kirkjugarði nálægt borginni Gajat í austurhluta landsins en fjölskyldan, sem á ættir að rekja til Pakistan var í heimsókn í landinu til þess að vera viðstödd brúðkaup. Erlent 21.5.2010 08:36
Spennan magnast á Kóreuskaga Spennan magnast nú frá degi til dags á milli nágrannanna í Suður- og Norður Kóreu. Í gær fullyrtu stjórnvöld í Suður-Kóreu að tundurskeyti frá Norður-Kóreu hefði grandað einu herskipa þeirra í mars síðastliðinn. Erlent 21.5.2010 07:21