Erlent

Pútín styður friðaráætlun Porosjenkó

Þrátt fyrir að Porosjenkó hafi lýst yfir vopnahléi á föstudag þá hafa átök átt sér stað milli aðskilnaðarsinna og herliðs stjórnvalda yfir helgina. Aðskilnaðarsinnar segja að Úkraínski herinn virði vopnahléið að vettugi. Sex landamæraverðir hafa særst í átökunum.

Erlent

Peanut krýndur ljótasti hundur í heimi

Að sögn viðstaddra bar hann höfuð og herðar yfir alla aðra keppendur. Hundurinn Quasi Modo þótti sigurstranglegur en fékk hann þó einungis 671 atkvæði á meðan Peanut fékk 1.795 atkvæði.

Erlent

Ebóla breiðist enn út

Um 330 manns hafa látist í Vestur-Afríku á þessu ári af völdum e-bólu veiru. Sjúkdómurinn er sagður sá allra versti og skæðasti í sögunni.

Erlent

Þrýst á al Maliki forsætisráðherra

Andlegur leiðtogi sjía-múslima í Írak gagnrýnir forsætisráðherra landsins og vill að mynduð verði betri stjórn sem tekur hagsmuni annarra en sjía með í reikninginn.

Erlent

Snúa aftur heim í rústirnar

Íbúar borgarinnar Homs í Sýrlandi eru teknir að snúa aftur heim til sín eftir tveggja ára umsátur stjórnarhersins sem lauk með því að uppreisnarmenn flúðu borgina í síðasta mánuði.

Erlent

Carlsen heldur öllum titlunum

Magnús Carlsen, norski skákmeistarinn, er handhafi allra heimsmeistaratitlanna þriggja í skák sem í boði eru. Hann varð í gær heimsmeistari í hraðskák, en tefldi til sigurs tveimur dögum fyrr í móti um heimsmeistaratign í atskák. Fyrir er hann heimsmeistari í klassískri skák.

Erlent

Krefst ekki afsagnar al Malikis forseta

Barack Obama Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin reiðubúin til að senda allt að 300 manns til Íraks til að gefa íraska hernum ráð í baráttunni við herskáa íslamista.

Erlent

Hótar að sprengja sig í loft upp í miðborg Stokkhólms

Mikill viðbúnaður er nú í Gamla Stan í Stokkhólmi en svo virðist sem maður hafi hótað að sprengja sig í loft upp í byggingu í miðborginni. Maðurinn hefur haft uppi hótanir í garð Sænska jafnaðarmannaflokksins og Moderaterne eða Sænska íhaldsflokksins og fullyrðir hann að hann sé með sprengjubelti bundið um sig miðjan.

Erlent