Sport

Fóru illa að ráði sínu án Tómasar

Hearts varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu skosku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag er liðið gerði 2-2 jafntefli við botnlið Livingston. Tómas Bent Magnússon var fjarri góðu gamni í liði Hearts í dag vegna meiðsla. 

Fótbolti

Goð­sögn hleður Guð­jón Val og Gum­mers­bach lofi

Gengi Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar á yfirstandandi tímabili hefur verið hreint út sagt frábært. Liðið er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti í þýsku úrvalsdeildinni og hefur nú unnið níu leiki í röð, ekki tapað leik síðan um miðjan desember á síðasta ári.

Handbolti

Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru

Ítalinn ungi, Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes í Formúlu 1 hefur vakið verðskuldaða athygli eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Kimi er að slá hvert metið á fætur öðru og gæti orðið yngsti heimsmeistarinn í sögu mótaraðarinnar. 

Formúla 1

Börsungar nýttu sér ó­vænt tap Real Madrid

Staða Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er orðin afar góð eftir leiki dagsins í deildinni. Börsungar unnu dramatískan sigur á Atletico Madrid og nýttu sér þar með óvænt tap Real Madrid fyrr í dag til hins ítrasta.

Fótbolti

Jón Axel stoðsendingahæstur í mikil­vægum sigri

Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, var stoðsendingahæsti leikmaður vallarins er lið hans San Pablo vann gífurlega mikilvægan sigur gegn Gran Canaria í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 95-109, fjórtán stiga sigur San Pablo

Körfubolti

Elías varði víti í annars svekkjandi leik

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Elías Rafn Ólafsson, varði vítaspyrnu er lið hans FC Midtjylland mátti þola afar svekkjandi 2-2 jafntefli gegn Sönderjyske í úrslitakeppni efri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. 

Fótbolti

Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni

Stjarnan er komið áfram í úrslitaeinvígið í umspili um laust sæti í Olís deild karla eftir sigur á Fjölni í oddaleik í Garðabæ í dag. Lokatölur 30-27 Stjörnunni í vil, liðið mætir liði Harðar frá Ísafirði í úrslitaeinvíginu. 

Handbolti