Mamma Gógó færir til frumsýningu 23. nóvember 2009 07:00 Búið er að færa til frumsýningu kvikmyndarinnar Mömmu Gógó til 1.janúar. Einn af framleiðendum myndarinnar er Guðrún Edda Þórhannesdóttir og getur hún því séð dóttur sína í Oliver Twist sem frumsýnt verður á annan í jólum.
Aðstandendur kvikmyndar Friðriks Þór Friðrikssonar, Mamma Gógó, hafa ákveðið að færa til frumsýningardag myndarinnar og verður hún frumsýnd þann 1.janúar 2010. Upphaflega stóð til að myndin yrði frumsýnd þann 26.desember. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu hefði það kostað mikinn mikinn hausverk fyrir fólk á borð við menntamálaráðherra því þann sama dag stóð einnig til að frumsýna Bjarnfreðarson, kvikmynd byggða á Vaktar-þáttunum, og Gerplu Baltasars Kormáks, allt viðburðir sem ráðherrar og aðrir ráðamenn væru nánast skyldugir til að mæta. En nú er dagskráin breytt. frumsýningu Gerplu hefur verið seinkað og í staðinn kemur Oliver Twist og Mamma Gógó mætir til leiks á fyrsta degi nýs árs. „Þetta er góður dagur hjá Friðriki Þór, hann hefur frumsýnt áður á þessum degi og það hefur alltaf gengið vel,“ segir Guðrún Edda Þórhannesdóttir, einn framleiðandi myndarinnar, en Englar Alheimsins voru frumsýndir á þeim degi fyrir nákvæmlega tíu árum síðan. Englarnir slógu aðsóknarmet sem stóð í tæp sjö ár eða allt þar til Mýrin felldi hana af stalli sem vinsælasta mynd Íslandssögunnar frá því að skipulagðar mælingar hófust. Guðrún upplýsir jafnframt að sérstök boðsýning verður þann 30.janúar sem tryggir Mömmu Gó Gó þátttökurétt í næstu Eddu. „Við vorum vel meðvituð um allar dagsetningar og boðsýningin er náttúrlega sett upp á þessum tíma meðal annars vegna Eddunnar,“ segir Guðrún sem sjálf mun hafa í nægu að snúast á annan í jólum því dóttir hennar, Melkorka, leikur einmitt í Oliver Twist. „Já, það var kannski gott að við færðum frumsýninguna, nú getur maður bara notið sýningarinnar hennar í rólegheitunum.“ -fgg
Mest lesið Þáttur Kimmel af sjónvarpsskjánum um óákveðinn tíma Lífið Hvernig getur kona sem er komin í tíðahvörf fundið neistann til að stunda kynlíf aftur? Lífið Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Lífið Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir Lífið „Þú ert svo falleg“ Lífið Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Lífið Fjölgar mannkyninu enn frekar Lífið Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Lífið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Þáttur Kimmel af sjónvarpsskjánum um óákveðinn tíma Hvernig getur kona sem er komin í tíðahvörf fundið neistann til að stunda kynlíf aftur? „Þú ert svo falleg“ Djúsí Ceasar vefja sem klikkar seint Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Fjölgar mannkyninu enn frekar Berjamó með sjálfum Berjakarlinum Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Robert Redford er látinn Norska konungsfjölskyldan krefst breytinga á heimildarmynd Netflix Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Fögur hæð í frönskum stíl „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu „Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“ Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa „Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“ Ein sú fegursta komin á fast Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina Sjá meira