Matty Cash af­greiddi City

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Matty Cash skoraði markið sem skildi liðin að.
Matty Cash skoraði markið sem skildi liðin að. Simon Stacpoole/Offside/Offside via Getty Images

Aston Villa vann afar sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Heimamenn í Aston Villa voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og Matty Cash kom liðinu yfir með marki á 19. mínútu.

Í síðari hálfleik voru gestirnir í Manchester City mun líklegri til afreka og leikurinn fór að miklu leyti fram í kringum vítateig Aston Villa.

Gestunum tókst þó ekki að finna jöfnunarmarkið og niðurstaðan því 1-0 sigur Aston Villa sem nú situr í sjöunda sæti deildarinnar með 15 stig eftir níu leiki, einu stigi minna en Manchester City sem situr í fjórða sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira