Fíkniefnasmygl með Dettifossi

Fréttamynd

Stóra að­gerðin valdi titringi á fíkni­efna­markaði

Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Eim­skip líta smyglið mjög al­var­legum augum

Samskiptastjóri Eimskips segir að fyrirtækið líti ætlaðan innflutning á fíkniefnum um borð í Dettifossi mjög alvarlegum augum. Tveir starfsmenn félagsins eru meðal þriggja sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveir hand­teknu starfs­menn Eimskipa

Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Sex hand­teknir og um veru­legt magn sterkra efna að ræða

Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglu grunar um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi var síðast handtekinn af lögreglu í janúar grunaður um alvarlega líkamsárás á þorrablóti í Kópavogi. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu í gær og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans. Alls voru sex handteknir og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á innflutningi á verulegu magni af sterkum fíkniefnum.

Innlent
Fréttamynd

Góð­kunningjar lög­reglu grunaðir í stóru dópmáli

Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu réðst í handtökur í gær í tengslum við meintan innflutning fíkniefna til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar innflutning með gámaflutningaskipi Eimskips og var með viðbúnað á hafnarsvæði fyrirtækisins fyrri part dags í gær.

Innlent