Okkar borg

Fréttamynd

Fossvogslaug – góð hug­mynd, engin fram­kvæmd

Það er fátt sem sameinar Íslendinga jafn mikið og sundlaugar. Þær eru vettvangur hreyfingar, heilbrigðis, menntunnar og daglegrar samveru. Því er athyglisvert og um leið áhyggjuefni hversu lengi hugmyndin um sundlaug í Fossvogi hefur verið til umræðu án þess að komast í framkvæmd.

Skoðun
Fréttamynd

Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunn­skólum

Þann 25. september síðastliðinn birtist eftirfarandi frétt á vef Reykjavíkurborgar: „Reykjavíkurborg hefur gert þriggja ára samning við Samtökin ’78. Í honum felst hinsegin fræðsla fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, nemendur í 3., 6. og 9. bekk grunnskóla og innan íþróttafélaga borgarinnar.“

Skoðun
Fréttamynd

Vinstrið á blússandi siglingu

Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið.

Innlent
Fréttamynd

Ein­falt er best

Auðvitað á umræðan ekki að vera einhliða. Umræðan á að vera skynsamleg og sanngjörn. Borgarlínuverkefnið er svo yfirgengilega dýrt að það er óskynsamlegt og ekki síður mun það bókstaflega eyðileggja samgöngukerfi bifreiðarinnar - vinsælasta ferðamátans.

Skoðun
Fréttamynd

Karlarnir leiða að ósk kvennanna

Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali leiðir lista Okkar borgar – Þvert á flokka í sveitarstjórnarkosningum í vor. Baldur Borgþórsson mun skipa annað sæti listans. Tilkynnt var um framboðið í október í fyrra. Hlynur Áskelsson, kennari í Fjölbrautaskólanum í Ármúla, tekur þriðja sæti á listanum. Sigfús og Baldur voru til viðtals um væntanlegt framboð í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Reykja­vík lög­sæki ríkið

„Þetta er bara hópur fólks sem er bara ósköp venjulegir borgarar hér í Reykjavík og landsmenn víða um land og ekkert öfga við það. Við erum bara með ákaflega einfalda, gamla, góða og einfalda siði sem við viljum halda í.“

Innlent
Fréttamynd

Sig­fús Aðal­steins­son: Trömpistinn sem vill bjarga Ís­landi

Sigfús Aðalsteinsson varð ungur forstöðumaður á leikskóla en hætti eftir að hafa dregið sér fé og keypti skemmtistað í miðbænum. Hann er í dag fasteignasali en leiðir einnig fjöldahreyfingu þjóðernissinna sem hafa fengið sig fullsadda af streymi hælisleitenda til Íslands.

Innlent