
Tindastóll

Njarðvík, ÍR og Tindastóll í undanúrslit
Átta liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta er lokið og ljóst er hvaða lið eru komin í undanúrslit. Njarðvík, ÍR, Tindastóll og Stjarnan eru öll komin í undanúrslit keppninnar.

Umfjöllun: Tindastóll - Stjarnan 1-2 | Stjarnan sendi Tindastól niður í Lengjudeildina
Stjarnan vann 2-1 útisigur á Sauðárkróki í lokaumferð Pepsi Max deildar kvenna í fótbolta. Það þýðir að Tindastóll er fallið og leikur í Lengjudeild kvenna að ári.

Tindastóll þarf hálfgert kraftaverk
Keppni í Pepsi Max-deild kvenna lýkur í dag með þremur leikjum. Valur fékk Íslandsmeistarabikarinn afhentan á föstudaginn og Fylkir fellur en það skýrist í dag hvaða lið fer niður með Fylkiskonum.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Tindastóll 1-3 | Tindastóll heldur í veika von um að bjarga sér frá falli
Tindastóll vann gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur gegn Selfyssingum í Pepsi Max deild kvenna í dag. Liðið heldur nú í veika von um að halda sæti sínu í deild þeirra bestu þegar aðeins ein umferð er eftir.

Guðni Þór: Með þennan vilja er hægt að gera allt
Guðni Þór Einarsson, þjálfari Tindastóls, var eðlilega sáttur með 3-1 sigur liðsins gegn Selfyssingum á Jáverk-vellinum í dag. Liðið heldur enn í veika von um að halda sæti sínu í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili, en Guðni segir sigurinn í dag hafa verið verðskuldaðan.

Sjáðu hvernig Eyjakonur kváðu falldrauginn í kútinn og öll hin mörkin
ÍBV og Keflavík unnu afar mikilvæga sigra í botnbaráttu Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í gær. Staða Tindastóls er hins vegar orðin afar erfið.

Umfjöllun: Tindastóll - Keflavík 0-1| Aerial Chavarin hetja Keflavíkur
Keflavíkurstúlkur hafa verið að spila vel í undanförnum leikjum. Þær hafa nú safnað sjö stigum í síðustu þremur leikjum.Aerial Chavarin gerði eina mark leiksins og reyndist hetja Keflavíkur þegar liðið vann 0-1 sigur á botnliði Tindastóls sem var fyrir leik aðeins tveimur stigum frá Keflavík.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Tindastóll 6-1 | Tólfti titill Valskvenna
Valskonur tryggðu sér í kvöld sinn tólfta Íslandsmeistaratitil í fótbolta með öruggum sigri á botnliði Tindastóls, 6-1, í þriðja síðasta leik sínum í sumar.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Tindastóll 1-0 | Mikilvægur fyrsti heimasigur Þórs/KA
Þór/KA vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Tindastóll á SaltPay vellinum á Akureyri í kvöld en um var að ræða leik í 14. umferð Pepsí Max deildar kvenna. Tindastóll var fyrir leikinn í næst neðsta sæti deildarinnar með 11 stig en Þór/KA tveimur sætum ofar eða í sjöunda sæti deildarinnar með 15 stig. Þetta var því sannkallaður sex stiga leikur eins og oft er sagt.

Barist um Norðurlandið og lífsnauðsynleg stig í beinni í kvöld
Þór/KA hefur enn ekki unnið heimaleik í Pepsi Max deild kvenna í sumar og í kvöld er komið að baráttunni um Norðurlandið þegar Stólarnir koma í heimsókn í Þorpið.

Umfjöllun: Tindastóll - Breiðablik 1-3 | Íslandsmeistararnir skutu Norðankonur niður í fallsæti
Breiðablik vann 3-1 sigur á Tindastóli í 13. umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Blikakonur halda því í við topplið Vals sem einnig vann sinn leik fyrr í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 2 - 1 Tindastóll | Þrjú mikilvæg stig urðu eftir í Eyjum
Tindastóll hafði unnið tvo af síðustu þremur leikjum sínum fyrir leikinn í dag og með sigri á Hásteinsvelli hefði liðið komist upp fyrir ÍBV í Pepsi Max deild kvenna.

Sjáðu markaveislurnar á Hlíðarenda og í Kópavoginum og hvernig Stólarnir komust upp úr fallsæti
Hvorki fleiri né færri en 24 mörk voru skoruð í leikjum gærkvöldsins í Pepsi Max-deild kvenna. Toppliðin unnu bæði fimm marka sigra og Tindastóll komst upp úr fallsæti.

Tindastóll upp úr fallsæti eftir mikilvægan sigur
Tindastóll tók á móti Fylki í fallbaráttuslag í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Liðin voru tveim neðstu sætum deildarinnar fyrir leikinn, en 2-1 sigur heimakvenna lyftir þeim upp í áttunda sæti.

Tindastóll sækir reynslumikla leikmenn út fyrir landsteinana
Tindastóll hefur sótt tvær landsliðskonur frá Rúmeníu og Moldóvu fyrir komandi átök í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Stólarnir sitja á botni deildarinnar með 8 stig, aðeins stigi frá öruggu sæti.

Stólarnir halda áfram að safna liði: Hafa samið við sænskan landsliðsmann
Tindastóll heldur áfram að safna liði fyrir næsta tímabil og hefur nú samið við reynslumikinn sænskan landsliðsmann.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - Tindastóll 2-0 | Þróttur upp í þriðja sætið
Þróttur vann 2-0 sigur á Tindastóli í Pepsi Max-deild kvenna á Eimskipsvellinum í Laugardal í kvöld. Tindastóll er sem fyrr á botni deildarinnar en Þróttur fer upp í þriðja sæti með sigrinum.

Aurskriða inn í íbúð, ónýtur bíll og týndur köttur en buguð Bryndís fagnaði
Það féll aurskriða inn í íbúðina hennar, kötturinn týndist, bíllinn bilaði og hún veiktist en stóð samt uppi sem sigurvegari í mikilvægum fótboltaleik í Garðabæ í gærkvöld. Þetta er ekki handrit að bíómynd heldur vika í lífi Bryndísar Rutar Haraldsdóttur.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Tindastóll 0-1 | Stólarnir stóðu af sér storminn og unnu dísætan sigur
Tindastóll vann frækinn 1-0 sigur gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld og krækti þar með í sín fyrstu stig á útivelli í sumar, í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta.

Sjáðu mörkin úr óvæntum sigri Stjörnunnar á Íslandsmeisturum Breiðabliks
Stjarnan vann einkar óvæntan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Þá gerðu nýliðar Tindastóls og Selfoss markalaust jafntefli á Sauðárkróki.

Tindastóll fær verðlaunavarnarmann sem tók þátt í nýliðavali NBA
Tindastóll heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir næstu körfuboltaleiktíð eftir vonbrigðaniðurstöðu á síðustu leiktíð þar sem liðinu var sópað út af Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Selfoss 0-0 | Stólarnir náðu í fyrsta stigið í rúman mánuð
Tindastóll og Selfoss gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust á Sauðárkróki í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Alfreð: Það þarf að vökva völlinn
„Svekktur að hafa ekki tekið þrjú stig en það er eins og það er, við fengum bara eitt. Vindurinn var erfiður fyrir bæði lið en ég tel að við hefðum getað fengið meira út úr þessu,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss eftir jafntefli gegn Tindastóli í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.

Írskur landsliðsmaður fylgdi Arnari á Krókinn
Körfuknattleiksdeild Tindastóls heldur áfram að semja við leikmenn og hefur tryggt sér krafta Taiwo Badmus á næstu leiktíð.

Landsliðsmaður heim á Krókinn
Sigtryggur Arnar Björnsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur ákveðið að snúa aftur heim úr atvinnumennsku og spila með Tindastóli á næstu leiktíð.

Vill sjá Tindastól sækja sér liðsstyrk í glugganum til að nýta meðbyrinn
Tindastóll þarf að fá liðsstyrk þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður til að eiga betri möguleika á að halda sæti sínu í Pepsi Max-deild kvenna. Þetta segir Árni Freyr Guðnason, einn sérfræðinga Pepsi Max markanna.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 1-0 | Heimastúlkur höfðu betur í nýliðaslagnum
Botnlið Tindastóls hefur tapað fimm leikjum í röð en Keflavík er í fínum málum eftir tvo sigurleiki í röð.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Tindastóll 2-1 | Fyrsti sigur Árbæinga
Fylkir hafði betur gegn Tindastól í botnslag Pepsi Max deildar kvenna í kvöld en lokatölur voru 2-1 og var þetta fyrsti sigur Fylkis í deildinni.

Fær erlendu leikmennina í mat, leyfir þeim að fara í heita pottinn og prjónar á þær peysur: „Eins og dætur mínar“
Erlendu leikmennirnir á Sauðárkróki hafa verið þar í mörg ár og vilja ekkert fara. Það er kannski ekkert skrýtið eftir að Helena Ólafsdóttir fékk að vita meira um lífið hjá þeim í heimsókn sinni á Krókinn.

Umfjöllun: Tindastóll - Valur 0-5 | Valskonur svöruðu fyrir sig
Valur svaraði heldur betur fyrir skellinn gegn Breiðabliki í síðustu umferð Pepsi Max deildar kvenna er liðið vann 5-0 sigur á nýliðum Tindastóls á Sauðárkróki í dag.