Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Arnar Grétarsson er meðal þeirra sem orðaður er við þjálfarastarf Breiðabliks. Hann hefur ekki heyrt frá félaginu en segir starfið spennandi. Magnús Már Einarsson segist ekki hafa fundað með Blikum. Íslenski boltinn 28.10.2026 14:02
Strax aftur á sigurbraut Eftir fjögurra marka tap gegn KA í síðustu umferð vann Afturelding fjögurra marka sigur á hinu Akureyrarliðinu, Þór, í Mosfellsbæ í kvöld, 38-34, í fyrsta leik 8. umferðar Olís-deildar karla í handbolta. Handbolti 27.10.2026 20:31
Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið KA vann Aftureldingu 32–28 í hröðum og skemmtilegum leik í KA-heimilinu í kvöld. Heimamenn voru sterkari á lokakaflanum og bundu enda á þriggja leikja sigurgöngu Mosfellinga í deildinni. Með sigrinum fór KA upp fyrir Aftureldingu í annað sætið. Handbolti 22.10.2026 18:45
Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi knattspyrnumaður, furðar sig á verðlaunafénu sem er veitt fyrir sigur í bikarkeppni í fótbolta hér heima. Íslenski boltinn 12. september 2026 08:54
Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Breiðablik varð í kvöld bikarmeistari karla í fótbolta í annað sinn og í fyrsta sinn í 17 ár. Gleðin var mikil í Laugardalnum. Íslenski boltinn 11. september 2026 23:15
„Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Þetta eru blendnar tilfinningar. Ég hef aldrei verið jafn stoltur Mosfellingur og í dag,“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir að liðið þurfti að sætta sig við 2-1 tap gegn Breiðablik í úrslitum Mólkurbikars karla í knattspyrnu í kvöld. Íslenski boltinn 11. september 2026 22:19
„Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var hrærður og meyr er hann mætti í viðtal eftir að liðið tryggði sér bikarmeistaratitil karla í knattspyrnu í kvöld. Íslenski boltinn 11. september 2026 21:52
Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Breiðablik er bikarmeistari karla í knattspyrnu í annað skipti í sögunni eftir nokkuð öruggan 2-1 sigur gegn Aftureldingu í úrslitum Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 11. september 2026 21:03
Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni „Við erum mjög vel stemmdir og orðnir ansi spenntir að sjá Rauða hafið í stúkunni,“ segir Aron Elí Sævarsson, fyrirliði Aftureldingar, fyrir leikinn í kvöld. Afturelding mætir Breiðablik í bikarúrslitum Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 11. september 2026 16:00
Meðvitaðir um pressuna „Það er komin mikil tilhlökkun og spenna,“ segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, sem mætir Aftureldingu í bikarúrslitum Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli í kvöld en leikur hefst klukkan 19:00. Íslenski boltinn 11. september 2026 14:18
„Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ „Það er klárlega gleði og mikil stemning fyrir leiknum, bara tilhlökkun að fara að keppa hérna á Laugardalsvelli. Við höfum frábærar minningar frá því að við unnum Keflavík og skrifuðum nýjan kafla í fótboltanum í Mosfellsbæ fyrir tveimur árum. Frábær minning með stuðningsmönnum okkar hérna og við erum að skrifa nýjan kafla í fótboltanum í Mosó,“ segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Breiðabliki í kvöld. Íslenski boltinn 11. september 2026 12:02
Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Breiðablik og Afturelding mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. Þjálfari Breiðabliks skilur tal kollega síns hjá Aftureldingu sem segir alla pressu á Blikum í leik kvöldsins en er ekki sammála honum. Íslenski boltinn 11. september 2026 10:02
„Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ FH gerði í kvöld jafntefli gegn Aftureldingu í Myntkaup höllinni að Varmá, 33-33. FH leiddi nánast allan leikinn, en missti frá sér forystuna undir lokin sem Aron Pálmarsson, þjálfari liðsins, pirraði sig á í viðtali eftir leik. Handbolti 10. september 2026 22:21
Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Afturelding og FH skildu jöfn 33-33 í 2. umferð Olís deildar karla í handbolta í Mosfellsbæ í kvöld eftir hörkuleik. Handbolti 10. september 2026 21:50
„Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Aðeins um 17 klukkutímar líða frá fögnuði bikarmeistara karla á vellinum annað kvöld þar til að konurnar hefja þar upphitun daginn eftir. Íslenski boltinn 10. september 2026 15:02
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Íslenski boltinn 10. september 2026 13:32
Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Afturelding tekur á móti FH í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta og reynir um leið að slá hinn fullkomna tón fyrir sögulegan dag fyrir félagið á morgun. Handbolti 10. september 2026 12:00
Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Bikarhelgi er fram undan í fótboltanum og af nægu er að taka í aðdraganda úrslitaleikjanna tveggja sem fram fara á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 10. september 2026 08:32
Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Afturelding vann nýliða Víkings í fyrstu umferð Olís-deildar karla í dag. Síðari hálfleikur leiksins var spilaður klukkan 13 í dag. Handbolti 6. september 2026 13:56
Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun Leikur Aftureldingar við Víking í Olís-deild karla í handbolta verður kláraður á morgun, tæpum tveimur sólarhringum eftir að hann hófst. Flauta þurfti hann af vegna rafmagnsleysis. Handbolti 5. september 2026 14:07
Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Áðeins tókst að ljúka fyrri hálfleik í fyrsta leik tímabilsins hjá Aftureldingu og Víkingi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, áður en rafmagnslaust varð í Mosfellsbæ. Handbolti 4. september 2026 21:46
„Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Birkir Már Sævarsson fór yfir málin með Andra Má Eggertssyni, Nablanum, eftir að hafa átt sinn þátt í að koma Aftureldingu aftur upp í Bestu deildina í dag, á miðri bæjarhátíð Mosfellinga. Birkir ætlar að hvíla sig vel áður en hann tekur ákvörðun um næstu leiktíð. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 23:00
Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Afturelding er búin að tryggja sig í Bestu deildina á næsta tímabili eftir að hafa unnið Vestra á heimavelli. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 16:03
Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Einn leikur fór fram í Lengjudeild karla í kvöld þar sem topplið Aftureldingar vann 2-0 sigur á Gróttu. Fótbolti 25. ágúst 2026 21:11