Innlent

Fréttamynd

Afsöguð haglabyssa í skottinu

Ein kona og tveir karlmenn voru handtekin eftir að afsöguð haglabyssa fannst falin í bílskotti fyrir hádegi í gær. Eins fannst lítilræði af kannabisefnum við húsleit á Eyrarbakka heima hjá öðrum manninum.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta í höfuðborginni

Maður í annarlegu ástandi missti stjórn á bíl sínum og velti á Reykjanesbraut á móts við Breiðholtsbraut í nótt. Hann slapp með minniháttar meiðsl en stórskemmdi bílinn.

Innlent
Fréttamynd

RKÍ á hamfarasvæðunum næstu 10 ár

Enn er mikið uppbyggingarstarf fyrir höndum á hamfarasvæðunum í Asíu þar sem flóðbylgjan reið yfir í lok síðasta árs - svo mikið að Rauði kross Íslands gerir ráð fyrir að starfa þar næstu tíu árin.

Innlent
Fréttamynd

Kannabisefni finnast við húsleit

Fernt var handtekið í gærkvöldi eftir að húsleit var gerð í sumarbústað í uppsveitum Árnessýslu. Lögreglan á Selfossi hafði fengið húsleitarheimild og fannst nokkurt magn af kannabisefnum í leitinni.

Innlent
Fréttamynd

Stórhveli í Reykjavíkurhöfn

Stórhveli má sjá synda um í Reykjavíkurhöfn þessa stundina og þurfa Hvalaskoðunarfyrirtæki í Reykjavík ekki að sigla langt með gesti sína í dag. Gestir Kaffivagnsins og aðrir vegfarendur hafa fylgst með hvalnum í morgun en ekki er vitað hvers vegna hann hefur ákveðið að heiðra höfuðborgarbúa með nærveru sinni.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um sameiningu sveitarfélaga

Kosið er í dag um sameiningu fimm sveitarfélaga í Borgarfirði, Mýrum og í Hnappadal. Kosið er um sameiningu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Skorradalshrepps.

Innlent
Fréttamynd

Ávarpaði ráðstefnu um glæpi

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, ávarpaði í dag elleftu ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn glæpum og opinbert réttarfar sem haldin er í Bangkok, höfuðborg Taílands, 18. til 25. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Málið fer líklega fyrir dómstóla

"Ekki er ólíklegt að málið fari dómstólaleiðina, það er um slíkar upphæðir að tefla," segir Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilo á Íslandi, um nýfallinn úrskurð yfirskattanefndar um ítalska og portúgalska verkamenn fyrirtæksins.

Innlent
Fréttamynd

Lögin í endurskoðun

Þingmenn Framsóknarflokksins vissu ekki betur en að lög um eftirlaun þingmanna og ráðherra væru til endurskoðunar, segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður, en Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær að hann sæi enga ástæðu til að breyta lögunum.

Innlent
Fréttamynd

Ólíklegt að Halldór bakki

"Mín tilfinning er sú að Halldór bakki nú ekki svo glatt enda hefur hann lýst því yfir að hann vilji sjá á þessu breytingar," segir Magnús Stefánsson, samflokksmaður Halldórs í Framsóknarflokknum.

Innlent
Fréttamynd

Ærnar í sónar

Vorið er komið og fyrstu lömbin farin að líta dagsins ljós. Það er þó fátt sem kemur bændunum að Heiðarbæ í Þingvallasveit á óvart í þeim efnum, enda fara allar ærnar í sónar áður en þær bera.

Innlent
Fréttamynd

Hálkuvari í stða nagladekkja

„Hálkuvarinn“ gæti orðið staðalbúnaður í bifreiðum á Íslandi þegar fram líða stundir og telja ungir hönnuðir hans að búnaðurinn geti komið í stað nagladekkja.

Innlent
Fréttamynd

Framsóknarmenn bakka ekki glatt

"Mín tilfinning er sú að Halldór bakki nú ekki svo glatt enda hefur hann lýst því yfir að hann vilji sjá á þessu breytingar," segir Magnús Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins vegna ummæla Davíðs Oddsonar, utanríkisráðherra og formanns sjálfstæðisflokksins. Davíð segir að ekki standi til að endurskoða lög um eftirlaun ráðherra og þingmanna.

Innlent
Fréttamynd

Hnúfubakur í Reykjavíkurhöfn

Hnúfubakur lagði leið sinni inn í Reykjavíkurhöfn og vakti mikla lukku hjá ferðamönnum. "Þetta er í fyrsta sinn sem ég veit til þess að stórhveli hafi komið inn í höfnina hér í Reykjavík," segir Einar Örn Einarsson, skipstjóri á hvalaskoðunarskipinu Eldingu.

Innlent
Fréttamynd

Barni bjargað af botni vatns

Um miðjan dag í gær var barni bjargað úr Þingvallavatni. Foreldrarnir litu af þriggja ára gömlu barni sínu andartak og rölti það að árbakkanum. Við leit fannst barnið á botninum.

Innlent
Fréttamynd

Óánægja hjá slökkviliðsmönnum

Megn óánægja er meðal slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli með framkomu starfsmannahalds varnarliðsins. Þetta segir háttsettur slökkviliðsmaður í samtali við Víkurfréttir.

Innlent
Fréttamynd

10 milljarða munur

Vísbendingar benda til þess að um 10 milljarða króna munur sé á ráðstöfun og öflun skatttekna á Norðausturlandi á hverju ári. Þetta kom fram í máli Vífils Karlssonar, dósents við Viðskiptaháskólann á Bifröst, á ráðstefnu um skiptingu skatttekna sem haldin var á Akureyri í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Plant ítrekað klappaður upp

Hinum heimsfræga rokkara, Robert Plant, var ákaft fagnað og hann ítrekað klappaður upp í Laugardalshöll í gærkvöldi en hann hélt þar tónleika ásamt hljómsveit sinni, The Strange Sensation.

Lífið
Fréttamynd

Reglur breytast óháð sameiningu

"Einhverjir munu missa spón úr aski sínum en aðrir munu fá meira en þeir hafa hingað til fengið," segir Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjómanna. Kosið verður um sameiningu hans við lífeyrissjóðinn Framsýn á miðvikudaginn kemur en bent hefur verið á að sjómenn muni bera skarðan hlut verði sameiningin að veruleika.

Innlent
Fréttamynd

Miklar framkvæmdir í Vatnsmýrinni

Framkvæmdir verða alls ráðandi í Vatnsmýrinni næstu árin, ekki síst á lóðinni sem Háskólinn í Reykjavík hefur fengið. Reiknað er með að þar hefjist byggingaframkvæmdir á næsta ári en þeim fylgir jafnframt mikil gatnagerð.

Innlent
Fréttamynd

Uppbygging í tíu ár til viðbótar

Rauði kross Íslands sendir á næstu dögum fimm sendifulltrúa til viðbótar til hamfarasvæða flóðanna sem urðu eftir jarðskjálftann mikla á annan í jólum. Unnið er að skipulagningu hjálparstarfsins næstu ár í samvinnu við alþjóðastofnanir.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast lögbanns á ráðningu

Skjár einn telur á sér brotið með ráðningu Helga Steinars Hermannssonar, fyrrverandi dagskrárstjóra Skjás eins, til 365 ljósvakamiðla og hefur farið fram á lögbann. Helgi vísar ásökunum á bug og sakar sjónvarpsstjóra Skjás eins um hótanir.

Innlent
Fréttamynd

Læknafélag Íslands kærir ríkið

Læknafélag Íslands hefur stefnt Landspítala-háskólasjúkrahúsi fyrir að veita unglæknum ekki uppsafnað frí fái þeir ekki ellefu klukkustunda hvíld á sólarhring.

Innlent
Fréttamynd

Hestasýningin hefur mikla þýðingu

Næstsíðasti dagur hestadaga í Skagafirði, sem kallast „Tekið til kostanna“, var í dag. Ingimar Ingimarsson sýningarstjóri segir sýninguna hafa mikla þýðingu fyrir hestamennsku á svæðinu, sem og samfélagið í heild sinni.

Innlent
Fréttamynd

Skyndihjálparþekking skipti sköpum

Kona, sem með snarræði bjargaði þriggja ára stúlku frá drukknun á Snæfellsnesi í gær, segir að þekking sín á skyndihjálp hafi tvímælalaust skipt sköpum um björgunina.

Innlent
Fréttamynd

Bjargaði börnum úr háska

Tvö þriggja ára börn, drengur og stúlka, voru hætt komin þegar þau féllu fram af sjávarkambi og ofan í sjó við Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi í gær. Kona bjargaði lífi þeirra með því að sýna mikið áræði.

Innlent
Fréttamynd

Tíu ár í stjórn

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Davíð Oddsson utanríkisráðherra boðuðu til blaðamannafundar eftir hádegi í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins tók við völdum.

Innlent