Ærnar í sónar 23. apríl 2005 00:01
Vorið er komið og fyrstu lömbin farin að líta dagsins ljós. Það er þó fátt sem kemur bændunum að Heiðarbæ í Þingvallasveit á óvart í þeim efnum, enda fara allar ærnar í sónar áður en þær bera. Það eru 515 ær á Heiðarbæ og því meira en nóg að gera þegar sauðburður hefst. Allt er þó kirfilega skráð og ærnar merktar eftir því hvort þær eru ein-, tví- eða þrílembdar. Fóstrin eru talin þegar þær fara í sónarskoðun. Það eru þó alltaf einhverjar sem kunna að fara í kringum kerfið. Tvær komu ekki af fjalli fyrr en í janúar og voru þá fengnar, svo það eru komin þrjú lömb. Sem krökkunum á bænum finnst ekki verra. Þau segjast stundum vaka um nætur að hjálpa til við sauðburðinn. Ólöf Björg Einarsdóttir bóndi segir vorið eðlilega vera annasamasta tíma ársins, því þótt allt snúist um sauðburðinn og fjölskyldan dveljist meira og minna í fjárhúsunum meðan á honum stendur, þá þurfi líka að plægja og sá og undirbúa úti fyrir. Hún segir því mjög gott ef hægt væri að sleppa öllum svefni. Í fjárhúsunum eru útbúnar sjötíu einkastíur því hver kind fær sérpláss með sínum lömbum fyrstu dagana eftir burð. Þetta er sem sagt orðið næstum eins og spítali - sónarskoðun og einkastofur. Það væsir greinilega ekki um Heiðabæjarrollurnar. Og ekki spillir útsýnið yfir Þingvallavatnið. Eins og Björg segir: „Við þurfum ekki að kaupa Kjarval - hann er hérna.“
Fréttir Innlent Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Sjá meira