Óánægja hjá slökkviliðsmönnum 23. apríl 2005 00:01
Megn óánægja er meðal slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli með framkomu starfsmannahalds varnarliðsins. Þetta segir háttsettur slökkviliðsmaður í samtali við Víkurfréttir. Heimildarmaðurinn segir að enn hafi reynt á þolrif slökkviliðsmanna þegar tilkynning frá starfsmannahaldinu var hengd upp á slökkviliðsstöðinni í síðustu viku. Þar er tekið fram að launum þeirra starfsmanna sem hafði verið sagt upp verði haldið eftir ef þeir skila aðgöngupassanum sínum ekki á réttum tíma. „Þetta sýnir það bara að þeir sem sjá um þessi mál eru löngu hættir að líta á starfsmennina á vellinum sem fólk,“ segir viðmælandinn. Í svari upplýsingafulltrúa varnaliðsins við fyrirspurn Víkurfrétta kemur fram að þar sem varnarsvæðið sé öryggissvæði með takmörkuðum aðgangi beri starfsmönnum, sem ljúka störfum, að skila aðgangspassa til vinnuveitenda, enda sé það liður í formlegum starfslokum. „Bregðist starfsmaður þeirri skyldu sinni á atvinnurekandi á Keflavíkurflugvelli ekki annars úrkosta en að fresta lokauppgjöri þar til bætt hefur verið úr.“ Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir í samtali við Víkurfréttir að sambandið muni ekki sætta sig við þessar aðgerðir. „Þeir hafa engan rétt á að halda eftir einhverju sem þeir eiga ekki. Ef laun verða ekki greidd fara þau bara í innheimtu. Það er svo einfalt.“ Slæmt ástand hefur myndast meðal starfsfólks á vellinum í óvissuástandi síðustu mánaða sem hófst með einhliða uppsögnum varnarliðsins á einstökum liðum kjarasamninga. Heimildamaður Víkurfrétta segir að vinnubrögð við uppsagnir starfsfólks séu einkennileg, svo ekki sé meira sagt. Þar væri ekki farið eftir reynslu, menntun eða hæfni og hefur það haft mikil og neikvæð áhrif á vinnuandann. „Það er alveg grafalvarlegt hvernig komið er fram við starfsfólkið á vellinum. Það skilar sér í því að mórallinn á vinnustaðnum er alveg búinn. Áður var þetta þannig að menn lögðu sig alla fram af ánægju við að sinna sínu starfi vel, en nú eru menn hræddir um sig og sína afkomu.“
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira