Innlent
Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða Samkvæmt nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða er lagt til að sett verði hámark á samanlagða krókaaflahlutdeild þannig að enginn hafi yfir meiru að ráða en 6% af krókaaflahlutdeild í þorski, 9% krókaaflahlutdeild í ýsu og 6% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar. Innlent 23.1.2006 16:29
Alcan á Íslandi og Landsvirkjun ræða um raforkusamning Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samþykkt að taka upp einkaviðræður um raforkusamning fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Stefnt er að því að þeim viðræðum ljúki fyrir lok þessa árs. Innlent 23.1.2006 16:12
Landsvirkjun leggur Norðlingaölduveitu til hliðar Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta við undirbúning að Norðlingaölduveitu að svo stöddu. Landsvirkjun mun þess í stað einbeita sér að öðrum virkjunarkostum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands er ósáttur við að Landsvirkjun sé ekki tilbúin að hætta alfarið við framkvæmdirnar. Innlent 23.1.2006 15:25
Actavis eignast tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako Tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako er nú að fullu í eigu Actavis eftir kaup þess á 11 prósenta hlut í Fako fyrir rúmlega 1,2 milljarða króna. Innlent 23.1.2006 14:25
Lögreglan á Selfossi hefur afskipti af veitinga- og skemmtistöðum Lögreglan á Selfossi þurfti að hafa afskipti af fjórum veitinga- og skemmtistöðum um helgina vegna þess að þeir höfðu ekki tilskylin leyfi fyrir starfsemina. Um er að ræða vínveitinga- og skemmtanaleyfi en leyfin voru útrunnin eða þau höfðu ekki verið fengin. Innlent 23.1.2006 14:05
Actavis kaupir Fako allt Actavis hefur keypt 11 prósenta hlut í tyrkneska samheitalyfjafyrirtækinu Fako fyrir 20,4 milljónir Bandaríkjadala. Fako er nú að fullu í eigu Actavis, en í desember 2003 keypti Actavis 89 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir 63 milljónir dala. Viðskipti innlent 23.1.2006 13:22
Ljóslausir vagnar skapa hættu fyrir ökumenn Lögreglumenn á Hvolsvelli hafa undanfarnar vikur haft nokkur afskipti af ökumönnum dráttarvéla með tengivagna. Margir þessa vagna eru óskráðir og ljósabúnaður þeirra er lítill sem enginn. Vagnarnir sjást því illa í miklu myrkri og geta skapað nokkra hættu fyrir vegfarendur ef þeir sjá ekki vagnana í tæka tíð. Innlent 23.1.2006 11:59
GSA fagna fimm ára afmæli samtakanna GSA (Greysheeters Anonymous) halda upp á fimm ára afmæli samtakanna hér á landi með opnum kynnigarfundi næstkomandi fimmtudag. Um þessar mundir er verið að kynna samtökin öllum heilsustéttum í landinu og öðrum sem láta sig málið varða. Innlent 23.1.2006 12:23
Frambjóðendur njóta góðs af valdamiklum stuðningsmönnum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur á landsvísu í flokknum, hafi óeðlileg áhrif á afstöðu framsóknarmanna til prófkjörs flokksins í Reykjavík. Innlent 23.1.2006 11:35
Björn segir verið að reyna að koma höggi á sig Björn Ingi Hrafnsson, frambjóðandi í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, segir það enga tilviljun að sögusagnir af því að stuðningsmenn hans hafi veitt unglingum áfengi séu blásnar upp svo skömmu fyrir prófkjör. Björn sakar stuðningsmenn annars frambjóðanda um að reyna að koma höggi á sig. Innlent 23.1.2006 12:05
Fá útköll vegna ölvunar Helgin var róleg í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og í Hafnarfirði. Ekki var mikið um útköll vegna ölvunar í heimahúsum og rólegt var á skemmtistöðum. Alls voru fimmtán umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en engin slys urðu á fólki. Þó varð nokkuð eignatjón í nokkrum þeirra. Innlent 23.1.2006 11:09
137 verkefni hjá lögreglunni á Akranesi Lögreglan á Akranesi sinnti alls 137 verkefnum í síðustu viku en þar af voru um 80 sem tengdust umferðinni. Ellefu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Nokkur hálka var á vegum og því voru ökumenn ekki að keyra eftir aðstæðum. Innlent 23.1.2006 10:33
Kennsla hefst í kínverskum fræðum í dag Kennsla hefst í kínversku og kínverskum fræðum hjá Símenntun Háskólans á Akureyri í dag. Alls verða kennd þrjú námskeið á þessu misseri, Kínverska I, Kínversk nútímamenning og Viðskipti við Kína. Aðsókn á námskeiðin fór fram úr björtustu vonum og þurfti að vísa nemendum frá. Gert er ráð fyrir að auka námsframboð í framtíðinni en frá og með hausti 2006 munu Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands bjóða upp á sameiginlegt B.A nám í Austur-Asíufræðum. Innlent 23.1.2006 10:12
Allri áhöfn Víkings AK 100 sagt upp störfum Allri áhöfn á Víkingi AK 100 var sagt upp störfum síðastliðinn laugardag. Skipið mun þó klára þessa loðnuvertíð ef veiðanleg loðna finnst. Skipinu verður lagt eftir loðnuvertíð fram í janúar á næsta ári. Ástæða uppsagnarinnar er verkefnaskortur segir í uppsagnabréfi til starfsmanna sem undirritað var af Vilhjálmi Vilhjálmssyni deildarstjóri HB Granda. Innlent 23.1.2006 08:04
Pólitískur styrkur mismikill meðal stuðningsmanna Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur innan flokksins sé búinn að setja stuðningsmenn Önnu Kristinsdóttur og Óskars Bergssonar í prófkjöri flokksins í Reykjavík í þá aðstöðu, að ganga gegn vilja valdamikilla manna í flokknum á landsvísu. Innlent 23.1.2006 08:00
Verið að opna vegi á Vestfjörðum Nokkur hálka er á Vesturlandi, í Árnesi og Rangárvallasýslum. Á Vestfjörðum er verið að opna veginn til Patreksfjarðar um Klettsháls og Kleifarheiði og þaðan til Bíldudals um Háldfán. Þá er einnig verið að moka frá Ísafirði um Djúp yfir Steingrímsfjarðarheiði og suður fyrir. Á Öxnadalsheiði er skafrenningur, og hálka eða hálkublettir eru víða á Norðurlandi og Austurlandi. Innlent 23.1.2006 07:57
Hafnaði upp á vegriði Drukkinn ökumaður misti stjórn á bíl sínum í nótt með þeim afleiðingum að hann hafnaði upp á vegriði og komst hvorki lönd né strönd. Þetta gerðist rétti við Skeiðarvogsbrúnna yfir Miklubraut og sat ökumaðurinn enn í bílnum, þegar lögregla kom á vettvang. Hún fjarlægði ökumanninn og kranabíll bílinn hans, sem skemmdist nokkuð. Innlent 23.1.2006 07:20
Engar áætlunarferðir um sunnanvert Snæfellsnes Engar áætlunarferðir eru lengur um sunnanvert Snæfellsnes eftir að Sæmundur í Borgarnesi hætti sérleyfisakstri um síðustu mánaðamót og nýr aðilli tók við rekstirnum. Þannig geta stut ferðalög á Vesturlandi breyst í langferðir eins og til dæmis ef einhver úr Staðarsveit á sunnanverðu nesinu þarf að komast til Akraness. Innlent 23.1.2006 07:18
Skólahald með eðlilegum hætti Skólahald verður með eðlilegum hætti í Fellaskóla í Reykjavík í dag eftir mikla herferð gegn músagangi í skólanum um helgina. Umhverfissvið borgarinnar hafði í vikunni gert skólayfirvöldum að koma í veg fyrir músaganginn, ella yrði ekkert skólahald í dag eða næstu daga. Við úttekt umhverfissviðs á skólanum í gærkvöldi kom í ljós að árngur hafði orðið af alls herjar hreingerningu og holufyllingum í skólanum um helgina. Innlent 23.1.2006 07:11
Hækkandi raforkuverð ekki ástæðan Landsvirkjun mótmælir þeirri skýringu, sem stjórnendur Sæsilfurs gáfu nýverið, þess eðlis að hækkandi raforkuverð sé önnur aðal ástæða þess fyrirtækið ætli að hætta öllu laxeldi í Mjóafirði, en þar er meira en helmingur alls laxeldis í landinu. Innlent 23.1.2006 07:09
Kanna hvort ungmennum hafi verið veitt áfengi Lögregla rannsakar nú hvort stuðningsmenn Björns Inga Hrafnssonar, frambjóðanda í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, hafi veitt unglingum undir lögaldri áfengi. Innlent 22.1.2006 18:03
Rafiðnaðarmenn frá öllum heimsálfum Rafiðnaðarmenn frá öllum heimsálfum nema Suðurskautslandinu eru komnir til starfa á Íslandi. 101 erlendur rafiðnaðarmaður er félagi í Rafiðnaðarsambandi Íslands. Flestir eru frá Slóvakíu, nítján, og Króatíu, átján. Aðrir koma svo langt frá sem Kólumbíu, Suður-Afríku og Víetnam. Innlent 22.1.2006 13:11
Öllum skipverjum sagt upp Öllum skipverkjum á Víkingi AK 100 frá Akranesi hefur verið sagt upp störfum. Í bréfi þar sem þeim er tilkynnt um uppsögnina kemur fram að engin verkefni séu fyrirsjáanleg fyrir skipið að loðnuvertíð lokinni fyrr en í janúar á næsta ári. Innlent 22.1.2006 13:18
Sátt getur náðst milli umhverfisverndarsjónarmiða og virkjunar Níu af hverjum tíu landsmönnum telja að sátt geti ríkt milli umhverfisverndarsjónarmiða og virkjunar gufuafls og tveir af hverjum þremur telja að einnig megi ná sáttum milli umhverfisverndar og vatnsaflsvirkjana. Þetta kemur fram í Gallupkönnun fyrir Samtök atvinnulífsins. Innlent 22.1.2006 13:03
Árangurinn kom Ásthildi á óvart Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttu fjögurra einstaklinga um annað sætið á framboðslista Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Einna mesta athygli í prófkjöri þeirra í gær vekur þó árangur nýliðans Ásthildar Helgadóttur sem segir árangurinn hafa komið sér á óvart. Innlent 22.1.2006 12:14
Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa Sjálfstæðismenn fengju níu borgarfulltrúa af fimmtán í Reykjavík ef gengið væri til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Frjálslyndi flokkurinn næði inn borgarfulltrúa. Innlent 22.1.2006 12:03
Fjórtán ára tekinn á bíl Fjórtán ára piltur var stöðvaður í Sandgerði snemma í morgun þar sem hann ók um á bifreið sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi heima hjá sér. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu fyrr en eftir nokkra eftirför lögreglu. Innlent 22.1.2006 10:39
Viðbúnaður á Suðurnesjum vegna roks Uppsláttur að húsi í Innri-Njarðvík féll niður í miklu hvassviðri í gærkvöldi. Tréplötur fukur á hús og bíl í nágrenninu og varð tjón á bílnum. Í Sandgerði var björgunarsveit kölluð út þar sem óttast var að hús í byggingu fyki og tókst að koma í veg fyrir það. Þá fuku nokkrar þakplötur úr porti BYKO en ekki er vitað um skemmdir vegna þess. Innlent 22.1.2006 10:37
Sameining samþykkt Íbúar fjögurra sveitafélaga í Þingeyjasýslu samþykktu sameiningu í gærkveldi og tekur sameiningin gildi við sveitarstjórnarkosningar í vor. Innlent 22.1.2006 10:32
Gunnsteinn vann baráttuna um annað sætið Gunnsteinn Sigurðsson vann baráttuna um að skipa annað sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Þrír karlmenn skipa efstu sætin eftir prófkjör í gær og konur urðu í næstu sjö sætunum. Innlent 22.1.2006 10:29